Feykir - 08.02.2017, Qupperneq 5
Sterkur liðssigur Tindastólsmanna
Dominos-deildin :: Tindastóll – Keflavík 86–77
Tindastóll og Keflavík mættust
í hörkuleik í Síkinu sl. fimmtu-
dagskvöld. Það var skarð fyrir
skildi að í lið Stólanna vantaði
Chris Caird, sem á í hnémeiðsl-
um, og óttuðust sumir stuðn-
ingsmanna liðsins hið versta,
enda spilamennskan ekki verið
upp á það besta í janúar. Lið
Tindastóls spilaði hins vegar
hörku vörn allan leikinn og
uppskar á endanum sanngjarn-
an sigur. Lokatölur 86-77.
Þetta var sigur liðsheildarinn-
ar. Allir skiluðu sínu, varnar-
leikurinn var frábær frá fyrstu
mínútu og sóknarleikurinn
rúllaði lengstum vel. Viðar (14
stig), Björgvin (17 stig) og
Helgi Viggós (11 stig, 9 fráköst
og þar af fimm í sókninni) voru
Hester og Stevens eigast við undir körfu Keflvíkinga. MYND: HJALTI ÁRNA
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Bergmann nýr formaður
Knattspyrnudeild Tindastóls
Á aðalfundi knattspyrnu-
deildar Tindastóls sem haldinn
var sl. mánudag var Bergmann
Guðmundsson kjörinn nýr
formaður deildarinnar. Tók
hann við af Ómari Braga
Stefánssyni sem gegnt hefur
stöðunni sl. 25 ár. Bergmann
er bjartsýnn á framtíðina og
segir starfið leggjast vel í sig.
„Knattspyrnan á Króknum er á
góðum stað, mikil uppbygging
framundan og mikið af góðu
fólki sem starfar við
knattspyrnudeildina. Það er
mikil gróska í fótboltanum og
ég hlakka til að gera gott starf
betra,“ segir Bergmann.
Fyrstu verk nýs formanns
verða að koma á laggirnar
ráðum í kringum starfsemina
eins og barna- og unglingaráði,
meistaraflokksráði o.fl. og halda
áfram að reyna að auka iðk-
endafjöldann og fagmennsk-
una í kringum félagið ásamt því
að vinna í að bæta aðstöðu og
þjálfun fyrir íþróttafólkið.
Aðspurður um hvort eitt-
hvað hafi verið gert á fundinum
sem þykir fréttnæmt, segir
Bergmann það ekki vera.
„Fundurinn var í sjálfu sér
hefðbundinn aðalfundur og
ekki fréttnæmur sem slíkur
nema fyrir þá staðreynd að
Ómar Bragi gaf ekki kost á sér
til áframhaldandi setu sem
formaður knattspyrnudeildar.
Ég vil nota tækifærið og þakka
honum enn og aftur fyrir alla
þá áratugi sem hann hefur gefið
fótboltanum á Króknum.“
Í stjórn knattspyrnudeildar
sitja áfram þau Sunna Atla-
dóttir, Ingvi Hrannar Ómars-
son, Guðni Þór Einarsson,
Guðrún Jenný Ágústsdóttir og
Guðjón Örn Jóhannsson sem
kemur nýr inn. „Þetta er flottur
hópur af kraftmiklu fólki sem
gaman verður að vinna með,“
segir Bergmann. /KSE
Ómar Bragi tekur á móti blómvendi frá nýjum formanni, Bergmanni Guðmundssyni,
fyrir einstaka eljusemi og dugnað. MYND: FB-SÍÐA STUÐNINGSMANNA TINDASTÓLS
ATVINNA HJÁ HEILBRIGÐISSTOFNUN NORÐURLANDS
SUMARAFLEYSINGAR 2017
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar
á starfsstöðvum stofnunarinnar á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, Dalvík,
Akureyri, Húsavík og Norðurþingi.
Um er að ræða hjúkrunarfræðinga/nema, ljósmæður, geislafræðinga, lífeindafræðinga, sjúkraliða/
nema, aðstoðarfólk í umönnun, móttökuritara, læknaritara og önnur störf s.s.
í eldhúsi, ræstingu og þvottahúsi. Störfin eru á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviðum HSN.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á vef stofnunarinnar www.hsn.is.
Lögð er áhersla á faglegan metnað, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs og stofnanasamningum HSN.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2017.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSN með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnun-
arinnar; www.hsn.is, undir flipanum Laus störf hjá HSN eða á www.starfatorg.is
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar
uppfylla ekki framangreind skilyrði. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Nánari upplýsingar veita:
Lára Bettý Harðardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Dalvík, lara.betty.hardardottir@hsn.is s. 466 1500
Anna Gilsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Fjallabyggð, anna.gilsdottir@hsn.is s. 460 2172
Sigríður Jónsdóttir, yfirhj.fr. Húsavík, Norðurþingi og Reykjahlíð, sigridur.jonsdottir@hsn.is s. 464 0500
Ásdís H. Arinbjarnardóttir, yfirhj.fr. Blönduósi og Skagaströnd, asdis.arinbjarnardottir@hsn.is s. 455 4100
Herdís Klausen, yfirhj.fr. Sauðárkróki, herdis.klausen@hsn.is s. 455 4011
Þórdís Rósa Sigurðardóttir, yfirhj.fr. Akureyri og Grenivík, thordis.rosa.sigurdardottir@hsn.is s. 460 4652
Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, gudny.fridriksdottir@hsn.is s. 464 0500
Þórhallur Harðarson, mannauðsstjóri, thorhallur.hardarson@hsn.is s. 460 4672
HSN starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði.
Stofnunin þjónar rúmlega 35.000 íbúum frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri.
Starfseiningar HSN eru 18 talsins.
HSN vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Þóranna Ósk sigraði í há-
stökki og setti héraðsmet
WOW Reykjavik International Games 2017
Frjálsíþróttakeppni WOW
Reykjavik International
Games 2017 fór fram í
Laugardalshöllinni
laugardaginn 4. febrúar. Um
var að ræða boðsmót þar
sem fremsta frjálsíþróttafólki
Íslands var boðið til keppni,
auk valinna erlendra
keppenda.
Skagfirðingarnir Þóranna
Ósk Sigurjónsdóttir og Ísak
Óli Traustason voru meðal
keppanda.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að Þóranna Ósk Sigur-
jónsdóttir hafi staðið sig
frábærlega á mótinu en hún
sigraði í hástökki kvenna.
Stökk hún 1,72 m og bætti
sinn fyrri árangur um 5 sm og
setti nýtt skagfirskt héraðsmet.
Ísak Óli Traustason var
einnig valinn til keppninnar
og stóð sig vel, hann hljóp 60
m á 7,18 sek (pm-jöfnun) og
stökk 6,71 m (pm-ih) í lang-
stökki. /PF
Þóranna Ósk.
MYND: PF
gríðarlega öflugir í leiknum og
stigu sannarlega upp þegar
Caird naut ekki við. Helgi
Margeirs hefur oft hitt betur en
í gær en hann spilaði engu að
síður frábærlega og skilaði 13
stigum. Hester átti flottan síðari
hálfleik og endaði með 20 stig
og 10 fráköst. Pétur hefur verið
að spara góðu skotin sín upp á
síðkastið og það varð lítil
breyting á því í gær. Engu að
síður spilaði hann eins og
hershöfðingi og skilaði sjö
stigum og níu stoðsendingum.
/ÓAB
06/2017 5