Feykir - 08.02.2017, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Góa, Hrefna, Eva og Katla.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Næst á eftir þorraþræl.
Þreklegt sjávarspendýr.
Í aldingarði alveg sæl.
Eldi og brennisteini spýr.
Feykir spyr...
Hvaða
mynd sástu
síðast í bíó?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ég man það ekki, það er því
miður allt of langt síðan... jú
bíddu hægur, Tarzan með
eldri syninum í Króksbíó.“
Benedikt S. Lafleur
Finna skal kvenmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Dómínó er geysivinsælt spil sem leikið er með kubbum sem merktir
eru með punktum á báðum endum. Tilgangur leiksins er að setja
saman kubba sem hafa samstæða punktafjölda á endum hvers og
eins. Sá sem notar alla kubbana sína fyrst vinnur. Ótrúlegt, en kannski
satt, þá er bannað að spila dómínó á sunnudögum í Alabama.
Vegan núðlusúpa
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
Matur sem flokkast undir að
vera vegan er mjög í tísku um
þessar mundir. Reyndar er
umsjónarmaður þessa þáttar meira fyrir súrmat en súrkál, ekki
síst á þessum árstíma, og hefur ekki ennþá rekist í vegan
þorramat. Hins vegar hefur heyrst að smákökur undir
vörumerkinu Veganesti séu orðnar ákaflega vinsælar hjá
erlendum ferðamönnum, sem misskilja vörumerkið eilítið! Að
þessu sinni leitum við enn á ný í smiðju Eldhússystranna
Rannveigar og Þorbjargar Snorradætra. Gefum þeim orðið:
„Ég elska súpur og ég elska núðlur. Við hjúin erum reglulegir
viðskiptavinir hjá Noodle Station og þessi súpa minnir á súpuna
þar. Þegar ég datt niðrá þessa súpu varð ég bókstaflega ástfangin af
henni. Ég hafði aldrei notað stjörnuanis eða kóríander fræ áður!
Þegar ég borða kóríander þá finn ég sápubragð þannig að ég var
ekkert súper spennt að setja fræin í súpuna.
Ég er samt vön að fylgja uppskriftum þegar ég er að elda eitthvað
í fyrsta skipti og ég sá ekkert eftir því, ekki vottur af sápubragði. Við
erum búin að elda hana margoft og hún er alltaf jafn góð. Við
eldum alltaf tvöfalda uppskrift.“
Leitað í smiðju Eldhússystra
Tilvitnun vikunnar
Það er fátt betra en hól frá þeim sem eru færir og vitrir.
- Selma Lagerlöf
FYRIR 2
Víetnömsk núðlusúpa
1 stór laukur, tekið utan af honum
og helmingaður
5 sm bútur ferskt engifer (flysjað)
1 kanilstöng
1 stjörnuanis
2 heilir negulnaglar
1 tsk kóríander fræ
1 líter grænmetissoð
2 tsk sojasósa
4 gulrætur, flysjaðar
og skornar gróft niður
u.þ.b. 250 gr hrísgrjónanúðlur
sveppir
muldar salthnetur
sriracha sósa
hakkaður steiktur hvítlaukur
sykur
Aðferð: Byrjið á því að grilla
laukinn og engiferið, setjið á
ofnplötu og inn í ofn á 200°c og á
grillstillingu. Grillið þar til lauk-
urinn og engiferið er byrjað að
brenna aðeins.
Á meðan laukurinn grillast eru
kanilstöngin, anisinn, negulnagl-
arnir og kóríanderfræin sett í
pottinn sem súpan verður gerð í og
kryddið þurrsteikt á miðlungs hita
þar til það fer að ilma. Passið að
hræra til að kryddið brenni ekki
við. Þegar kryddið er byrjað að
ilma er soðið, sojasósan, gulrótar-
bitarnir, laukurinn og engiferið
sett í pottinn með kryddinu.
Náið upp suðu og látið malla í
30 mínútur. Á meðan súpan mallar
þá eru núðlurnar eldaðar. Setjið
nógu mikið af vatni í pott svo það
hylji núðlurnar vel rúmlega þegar
þær fara útí og náið upp suðu.
Slökkvið undir pottinum og setjið
núðlurnar út í. Bíðið þar til núðl-
urnar eru næstum tilbúnar. Þetta
tekur 5–7 mínútur og gott er að
smakka núðlurnar reglulega. Þær
ættu að vera eins og aldente pasta.
Þegar núðlurnar eru tilbúnar
eru þær skolaðar með köldu vatni
til að þær verði ekki að steypu-
klessu.
Þegar súpan er tilbúin er hún
sigtuð og soðið sett í pottinn aftur.
Gulrótarbitarnir eru týndir úr því
sem var sigtað frá og settir í súpuna.
Ef nota á sveppi eru þeir skornir
niður og settir út í súpuna núna.
Leyfið súpunni að sjóða til að
sveppirnir eldist aðeins.
Deilið núðlunum í tvær skálar
og ausið súpu yfir.
Verði ykkur að góðu!
„Líklega var það The Nice
Guys með Ryan Gosling
og Russel Crowe.“
Anna Rún Austmar
„Ránsfengur (Ransacked) –
skylda að sjá hana – og hún
hefur verið tilnefnd besta
heimildamyndin.“
Vigdís Hauksdóttir
Ef þið viljið þá er hægt að setja smá steiktan hvítlauk, muldar salthnetur, 1/8
tsk sykur og ef þið viljið hafa súpuna sterka þá setjið þið aðeins af sriracha
sósu útá. MYND ÚR EINKASAFNI
„Síðast sá ég Trolls
með börnunum mínum.“
Kristinn Kristjánsson
06/2017 11