Feykir - 22.03.2017, Blaðsíða 2
Þrjú ný hjúkrunarrúm
á sjúkrahúsið
Góðar gjafir til HSN á Sauðárkróki
Á dögunum afhenti Minningar-
sjóður frú Sigurlaugar Gunnars-
dóttur, með formlegum hætti,
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki, þrjú hjúkrunar-
rúm ásamt fylgihlutum.
Rúmin eru þegar komin í
notkun og segir Herdís
Klausen yfirhjúkrunarfræð-
ingur, þau koma stofnuninni
afar vel þar sem þau leysa af
hólmi eldri rúm sem komin
voru á tíma. Það voru þau Örn
Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri lækninga, Engilráð M.
Sigurðardóttir og Elín H.
Sæmundardóttur sem afhentu
gjafabréfið en þau skipa jafn-
framt stjórn sjóðsins.
Minningarsjóður frú Sigur-
laugar Gunnarsdóttur frá Ási í
Hegranesi var stofnaður 7. júlí
1969 í tilefni af því, að þá voru
liðin 100 ár frá stofnun fyrsta
kvenfélags í Skagafirði, en það
var gert að Ási í Hegranesi og
að frumkvæði Sigurlaugar
Gunnarsdóttur húsfreyju þar.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Sauðárkróki,
sem áður hét Sjúkrahús Skag-
firðinga, til kaupa á lækninga-
tækjum eða öðru því sem
stjórn sjóðsins telur mesta
nauðsyn á, á hverjum tíma.
Sjóðurinn er fjármagnaður
með sölu minningarkorta,
minningargjöfum og öðrum
gjöfum. /PF
Undir-
heimar í
þriðja sæti
Stíll 2017
Þriggja manna lið frá
Félagsmiðstöðinni Undir-
heimum á Skagaströnd tók
nýlega þátt í Stíl 2017 og
stóð sig glæsilega, varð í
þriðja sæti í keppninni og
fékk auk þess verðlaun fyrir
bestu förðunina. Fulltrúar
Undirheima voru þær Dagný
Dís Bessadóttir, Hallbjörg
Jónsdóttir og Snæfríður
Dögg Guðmundsdóttir.
Stíll 2017 er árleg hönn-
unarkeppni milli félagsmið-
stöðva þar sem keppt er í
hárgreiðslu, förðun og
fatahönnun út frá ákveðnu
þema sem að þessu sinni var
gyðjur og goð. Öll vinna
keppenda við módel fór
fram á staðnum en allur
sýnilegur klæðnaður var
hannaður af hópnum fyrir-
fram. Markmið Stíls eru
m.a. að hvetja unglinga til
listsköpunar og gefa þeim
aukin tækifæri til frumlegrar
hugsunar og sköpunarhæfi-
leika auk þess að vekja
jákvæða athygli á því sem
unglingar eru að fást við á
sviði sköpunar. /FE
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Fáar byggingalóðir eftir
Uppgangur í húsbyggingum á Sauðarkróki
Mikil ásókn hefur verið í
byggingalóðir á Sauðárkróki
undanfarið sem kallar á
framkvæmdir sveitarfélagsins
enda samþykkti byggðarráð
fyrir skemmstu að fela veitu- og
framkvæmdasviði að hefja
undirbúning og hönnun á nýrri
götu í Túnahverfi, Melatúni.
Samkvæmt upplýsingum
frá sveitarfélaginu eru fáar
byggingalóðir eftir lausar við
tilbúnar götur. Aðeins þrjár
einbýlishúsalóðir og þrjár par-
húsalóðir í Túnahverfi.
Melatún liggur ofan við
Kleifatún og verða þar sjö
einbýlishúsalóðir. Verið er að
hanna götuna og ekki er vitað á
þessari stundu um fram-
kvæmdatíma. Sveitarstjórn á
eftir að samþykkja fram-
kvæmdina og setja á fjár-
hagsáætlun 2017. /PF
Það sem gerir lífið bærilegt hjá fólki, að mínu mati, er gott
samfélag. Samfélag sem tekur á öllum þáttum mannlegs
þroska, sem og breyskleika, frá vöggu til grafar. Við, og
núna alhæfi ég og fel mig bak
við það að „við“ sé teygjanlegt
hugtak, viljum hafa góða þjón-
ustu í sambandi við meðgöngu
og fæðingar, leikskóla, skóla,
tómstundir, atvinnu, læknis-
þjónustu og heilsugæslu og að
sjálfsögðu fyrirtaks þjónustu
þegar við erum komin á efri ár.
Þessi upptalning er bara brot
af því sem við viljum hafa en
ég vildi koma málefnum
aldraðra að. Ég sá nefnilega
frétt á RÚV um daginn þar sem talað var við aðstandendur
manns sem hafði verið vistmaður á dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri. Eftir að ákveðið var
að því heimili yrði lokað var hann fluttur hreppaflutningum
á annað heimili í Vík í Mýrdal, 260 km í burtu. Eiginkona
hans, sem býr enn heima, er því ekki lengur í seilingar-
fjarlægð. Hvaða greiði var honum gerður með því? – spyr
ég nú bara.
Heilbrigðisyfirvöld ákváðu að láta loka heimilinu í
kjölfar svartrar skýrslu frá Landlæknisembættinu sem hafði
ítrekað gert athugasemdir við forstöðumann heimilisins
um aðbúnað á heimilinu og krafist úrbóta, m.a. vegna
slælegs ástands húsnæðis, einkum eldri byggingar, og
ófullnægjandi mönnunar. Ekki hefur verið brugðist við
ábendingum landlæknis með viðunandi hætti þegar eftir
því var gengið, eins og segir í tilkynningu embættisins. Ég
get vel skilið að farið sé fram á úrbætur þegar eitthvað bjátar
á en mér finnst það harkalegt að skella í lás og henda fólkinu
nánast út um hvippinn og hvappinn. Mér skilst á
fréttaflutningi að heimilisfólkið hafi verið sátt við dvölina
og líkir aðgerðum við skepnuskap og mannréttindabrot.
„Ástæða þess að þetta fór svona er að ríkið greiðir of lítið
með heimilisfólkinu til þess að það sé hægt að reka heimilið
sómasamlega. Þannig er þetta á fleiri dvalarheimilum en
sumstaðar geta sveitarfélögin hlaupið undir bagga. Ég réði
bara ekki við þetta lengur,” sagði Guðni Kristjánsson,
forstöðumaður Kumbaravogs, við Fréttatímann.
Velferðarráðuneytið birti nýlega úttekt þar sem sett er
fram tillaga að úrbótum og stefnumótun til ársins 2035 og
RÚV greindi frá. „Markmiðið er að 85% þeirra sem eru
áttræðir geti búið heima og í því skyni á að leggja stóraukna
áhersla á heilsugæslu, forvarnir og endurhæfingu og draga
úr þörf fyrir ótímabæra stofnanavist með tilheyrandi
kostnaði. Þetta á meðal annars að gera með því að fækka
dvalarrýmum en efla heimahjúkrun, endurhæfingu og
dagdvöl.“
Hefði ekki verið betra að klára það verkefni fyrst og leyfa
þeim sem bjuggu á Kumbaravogi að halda því áfram. Fólkið
alla vega kaus að búa þar.
Páll Friðriksson (68 ára árið 2035)
LEIÐARI
Þegar ég verð gamall
Á Skagaströnd bárust 26 tonn á land í síðustu viku og rúmlega 294 tonn á Sauðárkróki.
Hvorki var landað á Hofsósi né Hvammstanga. Samtals var þá landað 320.204 kílóum af fiski á
Norðurlandi vestra í vikunni. /FE
Aflatölur 12.–18. mars 2017 á Norðurlandi vestra
Rúm 320 tonn á land í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 14.838
Fannar SK 11 Landb. lína 2.047
Gammur SK 12 Rauðmaganet 147
Klakkur SK 5 Botnvarpa 87.230
Málmey SK 1 Botnvarpa 189.911
Alls á Sauðárkróki 294. 173
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb. lína 7.128
Dísa HU 91 Handfæri 338
Hafrún HU 12 Dragnót 9.597
Jenný HU 40 Handfæri 516
Ólafur Magnúss. HU 54 Þorskfiskinet 6.439
Sæfari HU 212 Landb. lína 2.013
Alls á Skagaströnd 26.031
Örn Ragnarsson, Elín H. Sæmundardóttir, Engilráð M. Sigurðardóttir og Herdís Klau-
sen við afhendingu hjúkrunarrúmanna góðu. MYND: PF
Feykir
Smávaxinn að þessu sinni
en í næstu viku kemur út
stórt fermingarblað.
2 12/2017