Feykir - 22.03.2017, Blaðsíða 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
12
TBL
22. mars 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
200 manns mættu í veisluna
Þann 12. júní árið 1966 kom nokkur hópur fólks saman
í félagsheimilinu Héðinsminni í Akrahreppi. Tilefnið
var stofnun nýs félags, Krabbameinsfélags Skaga-
fjarðar. Stofnfélagar voru 47 talsins, flestir þeirra bú-
settir í Akrahreppi. Það átti eftir að breytast því í dag
eru félagar Krabbameinsfélags Skagafjarðar um 470
talsins, búsettir alls staðar í héraðinu og víðar.
Ástæðan fyrir stofnun félagsins var aukin áhersla
heilbrigðisyfirvalda á forvarnir og fræðslu um
sjúkdóminn krabbamein. Þá var á þessum árum verið
að gera stórátak í að leita skipulega að fyrstu merkjum
um krabbamein með t.d. leit að brjósta- og
legkrabbameini í konum. Það voru enda konur og
kvenfélög sem voru miklir hvatamenn að stofnun
félagsins hér ásamt héraðslækni, Friðrik Friðrikssyni,
og skal á engan hallað þó sú mæta kona, Helga
Kristjánsdóttir á Silfrastöðum, sé nefnd sérstaklega í
þessu samhengi.
Sunnudaginn 19. mars var haldið upp á þessi
tímamót í sögu félagsins með hátíðarsamkomu í
menningarhúsinu Miðgarði. Um 200 manns sátu
fagnaðinn, hlýddu á skemmtidagskrá og þáðu veitingar.
Af 47 stofnfélögum eru 10 lifandi og sáu nokkrir þeirra
sér fært að mæta í afmælið. Sr. Dalla Þórðardóttir,
formaður félagsins, stýrði samkomunni og flutti
nokkur orð um sögu félagsins. Frábærir listamenn úr
héraði komu fram og minntu okkur enn og aftur á það
hvílíkur mannauður og menning þrífst hér meðal
okkar. Þær Guðrún Helga Jónsdóttir og Íris Olga
Lúðvíksdóttir sungu við undirleik Stefáns R. Gíslasonar
og Stefán spilaði einnig undir hjá Gunnari Rögn-
valdssyni sem hafði með sér leynigestinn Jón Hall
Ingólfsson auk Írisar Olgu. Þá flutti Sigríður Garðars-
dóttir í Miðhúsum bráðskemmtilega tölu um nokkra
sveitunga sína sem voru í hópi þeirra sem stofnuðu
félagið. Má þar nefna Helgu og Jóhann Lárus á
Silfrastöðum, Unni og Gísla á Víðivöllum, Helgu og
Gunnar í Flatatungu, Önnu á Stekkjarflötum, Soffíu á
Borgarhóli, Guðrúnu og Gísla í Miðhúsum, Maríu og
Sigurð á Stóru Ökrum, Sólveigu og Árna á Uppsölum
ásamt fleiri ógleymanlegum persónum. Um ljúffengar
veitingar í afmælisfagnaðinum sáu Kvenfélag Seylu-
hrepps og Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps.
Við þessi tímamót voru félaginu einnig færðar
stórgjafir. Ólafur Jónsson frá Kiwanisklúbbnum
Drangey, sem hefur einnig látið til sín taka í baráttunni
við krabbamein, færði félaginu 100 þúsund krónur.
Kvenfélag Akrahrepps færði félaginu einnig 100
þúsund krónur og það var formaður félagsins, Drífa
Árnadóttir sem afhenti. Bjarni Maronsson, formaður
stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga, færði félaginu eina
milljón króna úr Menningarsjóði KS. Stjórn félagsins
vill koma á framfæri innilegum þökkum fyrir þessar
stórgjafir og þykir vænt um þann hlýhug sem þær birta.
Þá vill stjórn félagsins einnig þakka félögum
Krabbameinsfélags Skagafjarðar fyrir þátttöku þeirra
því án félaga væri ekkert félag. Félagið nýtur velvildar í
samfélaginu sem sést á stórum og smáum gjöfum til
félagsins og sölu minningarkorta. Allt þetta stuðlar að
virkri starfsemi félagsins og gerir því kleift að styðja við
þá sem eru í krabbameinsmeðferð auk þess að fræða og
auka forvarnir við sjúkdómnum. Stjórn Krabbameins-
félags Skagafjarðar vill þakka þennan hlýhug og velvild
og þakkar einnig þeim sem komu og glöddust með
okkur við þessi tímamót. /AÐSENT
50 ára afmæli Krabbameinsfélags Skagafjarðar
Guðný doktor í fornleifafræði
Byggðasafn Skagfirðinga
Guðný Zoëga, fornleifa- og mannabeinafræðingur hjá
Byggðasafni Skagfirðinga, varði doktorsritgerð sína í
fornleifafræði við Óslóarháskóla 28. febrúar síðastliðinn.
Fjallar ritgerðin um íslensk miðaldaheimili, og byggir á
fornleifa- og mannabeinarannsóknum.
Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að kjarni ritgerðar
Guðnýjar sé uppgröftur 11. aldar kirkjugarðs sem kom
óvænt í ljós við framkvæmdir í Keldudal í Hegranesi árið
2002 en einnig er notast við samanburðarefni úr öðrum
skagfirskum kirkjugörðum. /PF
Nýr framkvæmdastjóri
Héraðsþing USVH 2017
Héraðsþing USVH var haldið í Félagsheimilinu Víðihlíð
miðvikudaginn 15. mars og sá ungmennafélagið Víðir
um utanumhald þingsins að þessu sinni. Þingið var vel
sótt.
Góðir gestir frá UMFÍ komu í heimsókn, þau
Sabína Steinunn Halldórsdóttir landsfulltrúi og Auður
Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri, og frá ÍSÍ þau
Þórey Edda Elísdóttir, fyrsti varamaður í stjórn ÍSÍ og
Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Tilkynntar voru breytingar á framkvæmdastjóra
USVH en Sveinbjörg Pétursdóttir hefur óskað eftir
ársleyfi frá störfum og mun Eygló Hrund Guðmunds-
dóttir leysa hana af í millitíðinni.
Kosið var um varaformann, gjaldkera, ritara, og þrjá
varamenn. Varaformaður var kjörinn Halldór Sigfús-
son, Ómar Eyjólfsson sem gjaldkeri og Sara Ólafsdóttir
ritari. /FE