Feykir - 22.03.2017, Page 7
150 g smjör
4 egg
600 ml stífþeyttur rjómi
Aðferð: Byrjið á því að bræða gróft
saxað Toblerone og smjör yfir
vatnsbaði. Þegar súkkulaðiblandan
er slétt og fín er hún tekin af
hitanum. Eggjunum bætt út í, einu í
einu og hrært vel á milli. Síðan er
súkkulaðiblöndunni hellt varlega
saman við stífþeyttan rjómann og
að lokum er blöndunni skipt niður í
8-12 glös/skálar.
Kælið í lágmark 3 klst. Það getur
svo verið gaman að skreyta þetta
með smá þeyttum rjóma og berjum
eða súkkulaðispænum.
RÉTTUR 3
Kornflexmarengs
Marengs:
220 g sykur
4 eggjahvítur (stór egg)
2½ bolli Kornflex
1 tsk lyftiduft
Fylling:
5 dl rjómi
Nóg af Nóa kropp
Karamellukrem:
4 eggjarauður
4 msk flórsykur
100 g Pipp súkkulaði með
bananakremi
2 msk rjómi eða mjólk
Aðferð: Ofn hitaður í 120 gráður
við blástur. Eggjahvítur, lyftiduft og
sykur er stífþeytt. Þá er kornflexi
bætt varlega út í marengsinn með
sleikju. Marengsinum er skipt í
tvennt og hann mótaður í tvo
jafnstóra hringi á sitthvora plötuna.
Því næst er slétt jafnt úr honum
með sleikju eða spaða. Þá er
marengsinn bakaður í 120°C í
heitum ofni í u.þ.b. 50 – 60 mínútur.
Rjóminn er þeyttur, Nóa kroppinu
er bætt út í rjómann og sett á milli.
Eggjarauður og flórsykur þeytt
vel saman. Pippið er sett í skál
ásamt 2 msk af rjóma eða mjólk og
brætt yfir vatnsbaði. Eggjarauðu-
og flórsykurblöndunni er svo
blandað út í súkkulaðið. Kreminu
er því næst dreift yfir marengs-
tertuna
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Ásta, Tinna, Lóa og Sunna.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Margir fara á svona fund.
Fylgir nafni á hrafni.
Syngur dýrð með sumarlund.
Sólin öðru nafni.
Feykir spyr...
Hvert er besta
Júróvisionlag
allra tíma?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ég er ekki mikill júrómaður og verð
að viðurkenna að heilu keppnirnar
fara framhjá mér án þess að ég taki
mikið eftir þeim. En það eru samt
nokkur lög sem ég held upp á.
När vindarna viskar mitt namn,
söngvarinn, Roger Pontare, af
samískum ættum. Alltaf haldið upp
á þetta lag og hlusta stundum á það.
Samsuða af iðnaðarrokk/diskó/
Júrópoppi og svo er júróhækkunin
þarna auðvitað.“
Halldór Þormar Halldórsson
Finna skal kvenmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Nýlega heyrðust þær ásakanir úr Ameríkunni vestra að Dónaldur
Trumpur hefði sakað Bárek Óbama um að hafa hlerað síma sinn
í nýafstöðnum forsetakosningum. Þá sagði WikiLeaks frá því
fyrir stuttu að CIA notaði margvísleg snjalltæki til að hlera fólk.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá er bannað að hlera eigin símtöl í Illinois
í Bandaríkjunum.
Þrír gómsætir
eftirréttir
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
Ólöf hefur orðið: „Ég ætla að
byrja á því að þakka Ingu Skag-
fjörð fyrir að koma mér í þessa
klípu, ég þurfti að leggja höfuðið í bleyti til að koma mér í þessi
skrif. Ég ætla ekki hefðbundnu leiðina og koma með forrétt,
aðalrétt og eftirrétt heldur ætla ég að gefa ykkur þrjár uppskriftir
af uppáhalds eftirréttunum mínum. Þessar gómsætu uppskriftir
er tilvalið að hafa í veislum, hitting eða bara einn góðan sunnudag.
Vonandi munuð þið njóta góðs af þeim.
Annars erum við ansi hefðbundin fjölskylda, maður, kona og
tvær litla prinsessur sem elska að láta dekra við sig. Við höfum gaman
af því að njóta tímans með fjölskyldunni okkar og vinum og lifa
lífinu. Okkur langar að skora á Sæunni Kristínu Jakobsdóttir og
Birgi Smára Sigurðsson, þau hafa örugglega eitthvað gott í poka-
horninu handa ykkur kæru lesendur.“
Ólöf Ösp Sverrisdóttir og Snorri Geir Snorrason
á Sauðárkróki eru matgæðingar Feykis
Tilvitnun vikunnar
Svartsýnismaður er einstaklingur sem hefur þurft að hlusta
á alltof marga bjartsýnismenn. – Don Marquis
RÉTTUR 1
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
4 stk egg
Súkkulaðikrem:
150 g suðusúkkulaði
70 g smjör
2-3 msk síróp
Aðferð - botn: Þeytið eggin og
sykurinn vel saman. Bræðið
smjörið og súkkulaðið saman við
vægan hita í potti. Blandið hveitinu
saman við eggin og sykurinn.
Bætið bráðnu súkkulaðinu og
smjörinu að lokum varlega út í
deigið. Bakið í vel smurðu
tertuformi (ath. ekki lausbotna) við
170°C í 30 mínútur.
Aðferð – krem: Látið allt saman í
pott og bræðið saman við vægan
hita. Kælið bráðina svolítið og
berið hana síðan á kökuna þegar
hún hefur kólnað.
Kakan á að vera blaut í
miðjunni. Gott er að bera kökuna
fram með rjóma eða ís og berjum,
til dæmis jarðarberjum, hindberj-
um eða bláberjum.
RÉTTUR 2
Toblerone súkkulaðimús
500 g Toblerone súkkulaði
(gróft saxað)
„Minn hinsti dans.“
Jóel Þór Árnason
„Besta Júróvisjónlag allra tíma hlýtur
að vera hið sænska Fanget av en
stormvind með hinni kraftmiklu
Carola. Frábær söngkona og ótrúlega
grípandi lag sem nánast krefst þess
að vindvélar séu staðalbúnaður á
hverju heimili. Ég er nokkuð viss um
að þetta hafi verið lagið sem máði
"rewind" merkið af takkanum á
gamla myndbandstækinu heima hjá
afa og ömmu, algjörlega ógleymanleg
æskuminning Júrónördsins.“
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Ólöf Ösp og Snorri Geir með dæturnar tvær. MYND: DAVÍÐ MÁR
„Í keppninni er það lagið sem ekki
vann Gente di mare, ítölsk snilld.“
Eva Hjörtína Ólafsdóttir
12/2017 7