Feykir - 14.06.2017, Blaðsíða 7
nærveruna því nærvera þeirra
fyrir handan er sterk. En maður
þarf kannski fyrst og fremst að
sætta sig við hana sjálfur, vita
að það er eitthvað fylgst með
manni. Því þú þarft að opna
hjarta þitt svo hægt sé að kom-
ast að þér,“ segir Þórhallur og
leggur áherslu á að fólk hefur
frjálsan vilja og orku til að aftra
því að framliðnir nálgist það.
Hugsunin um að opna hjarta
sitt til að opna á samband eða
aukið næmi kallar á spurning-
una hvort allir gætu náð sam-
bandi við aðra heima með
einhvers konar þjálfun. Þór-
hallur segir það hægt en
spurningin sé á hvern hátt það
samband myndi þróast. „Sum-
um er þetta náttúrulega gefið.
Sumir geta þjálfað sig upp því
öll erum við næm, það verður
ekki af okkur tekið. Það er til
góð saga og sönn að það var
kona sem sat í bænahring eða
þróunarhring. Hennar heitasta
ósk var að fara upp á svið og
vera með skyggnilýsingafund
og gefa skilaboð að handan.
Hún sat í nokkurn tíma þangað
til stjórnandi hringsins segir:
Jæja! Nú ertu tilbúin og þú
verður með skyggnilýsinga-
fund, einhvern ákveðinn dag.
Eftir þrjár eða fjórar fjórar vikur
hélt hún fundinn með pompi og
prakt og gerði allt mjög vel og
hún gekk af sviðinu stolt og
ánægð á eftir. Daginn eftir
kvaddi hún,“ segir Þórhallur og
ítrekar að hægt sé að þjálfa sig
en til þess þarf þolinmæði. Og
mikilvægt sé að átta sig á til
hvers sé verið að þróa næmnina.
Ófullkomið
handrit
Þeir sem hafa farið á miðilsfundi
hafa eflaust velt því fyrir sér af
hverju fólk kemur með kveðjur
eða skilaboð en enginn þekkir
viðkomandi eða kemur honum
ekki fyrir sig. Skyldi þörfin hjá
þeim vera mikil fyrir að koma í
gegn?
„Já, sérstaklega í Skagafirði.
Alveg 100%. Það eru skagfirskir
andar og straumar sem eru
mjög skemmtilegir. En jú það er
alltaf einhver á sveimi. Fólk
áttar sig kannski ekki alltaf á
því. Þegar fólk mætir á skyggni-
lýsingarfund þá er það opið
fyrir að fá skilaboð, vegna þess
að það sendir í huganum ósk
um að einhver komi og láti vita
af sér. Þá ert þú búinn að opna
fyrir. Stundum kemur fólk sem
maður á síst von á. En það er
alltaf einhver á sveimi í kringum
mann. Þegar þú kemur inn
kemur þú með ákveðna orku
með þér. Stundum alveg hlut-
laus og veist ekkert hverju þú átt
von á en það kemur alltaf með
þér eitthvað og maður þarf bara
að lesa rétt úr því.
Stundum fær maður skila-
boð og viðkomandi hefur ekki
hugmynd. Ég þurfti t.d að lesa
út fyrir eina konu, ekki hér í
Skagafirði, og ég las og las og
las. Hún stóð upp eftir 45
mínútur og sagði: Veistu Þór-
hallur! Ég hef ekki hugmynd
um hvað þú hefur verið að
segja. Ég rétti henni kasettuna
og sagði henni að geyma hana
mjög vel. Þetta væri leiðbeining
til hennar fyrir lífið seinna meir.
Hún tók kassettuna og þrjú ár
liðu en þá gekk hún í gegnum
erfiðleika og hún fullyrti það
við mig að ef hún hefði ekki
fengið þessar leiðbeiningar
hefði hún verið ein rjúkandi
rúst. Þannig að þeir fyrir
handan vita stundum meira
fram í tímann en við gerum
okkur grein fyrir. Þess vegna
skilur maður ekki alltaf hvað
verið er að segja. Stundum er
þetta fyrir mér líkt og að tala
rússnesku.“
Aðspurður hvort búið sé að
skrifa handritið að lífinu fyrir-
fram segir Þórhallur að vissu-
lega sé hver og einn með
ákveðið handrit í höndunum.
Kannski ekki fullskrifað né
fullmótað því allir hafa fullt
vald til að skrifa og móta.
„Handritið kemur að hluta til
með þér úr síðustu lífum en að
hluta til að fylla með þessu lífi.
Og hvort síðurnar passi, nái
saman eða ekki, þá kannski
skerast hlutirnir á einn eða
annan hátt. En þú ert alltaf með
þinn fúsa og frjálsa vilja með
þitt vald til að ákveða hlutina
sjálfur. Það er enginn sem getur
stjórnað þér. Þú stjórnar!“
Þegar steinninn
birtist
Það gerðist á einum fjöldafundi
í Safnahúsinu fyrir mörgum
árum síðan að lítil steinvala
birtist sem úr lausu lofti og
skoppaði eftir gólfinu. Enginn
hafði skýringu á tilkomu
steinsins og er enn á huldu hvað
gerðist. Þórhallur segist ekki
skilja enn þann dag í dag hvað
var um að vera. „Steinninn kom
bara einhvers staðar frá. Ég hélt
fyrst að hann hefði komið úr
buxnaskálminni á mér en þetta
voru einhver skilaboð um að
þeir þarna fyrir handan eru að
fylgjast með. Það séu til teng-
ingar og orka þar sem eitthvað
birtist manni.
Talandi um líkamninga. Það
var kona á fundi hjá miðli sem
að líkamnaðist og gat látið gjafir
birtast. Það kom gjöf til einnar
konu. Stór og falleg rós. Einu
skilaboðin voru þau að það
mætti enginn snerta hana nema
hún. Konan fer með þessa rós
heim til sín og setur inn í skáp
og allir dáðust að rósinni. Ein-
hverra hluta vegna gleymdi hún
eitt sinn að loka skápnum og
systir hennar opnaði skápinn og
kom við rósina sem hvarf með
það sama.
Þeir að handan geta birst
okkur, ekki bara í draumi. Þeir
geta birst okkur í nærveru, það
sterkri að þú getur hér um bil
verið viss um að pabbi þinn
standi við hliðina á þér, bara
með því að finna það. Þá fer
hann inn á orkusviðið og þú
þekktir pabba þinn og þú vissir
hvernig hátt hann hafði og
ákveðnar tilfinningar sem voru
alltaf með honum. Þetta getur
hann framkvæmt bara með því
að standa við hliðina á þér þó
þú sjáir hann ekki. Því þarna er
skynjunin þín komin við það,“
segir Þórhallur.
Hann segir að ekkert álíka
og birting steinsins í Safna-
húsinu hafi komið fyrir hjá
honum aftur. „Nei, ekki svo
minni reki til. Þarna voru skag-
firsku skilyrðin kannski bara
svona rosalega góð,“ segir Þór-
hallur en aðspurður segist hann
ekki hafa hugmynd um hvað
varð um steininn.
Tilgangur lífsins
Ein spurning er það sem
undirritaður hefur lengi langað
til að spyrja viðmælanda, en
aldrei fundið tilefnið. Hver er
tilgangur lífsins? Í lokin gat
blaðamaður ekki setið á sér og
með bros á vör var hún borin
fram. En Þórhalli fannst hún
bara ekkert skrítin né óvenjuleg
og svaraði án þess að hika. „Það
er tilgangur fyrir hvern og einn
einstakling að þroska sig og
gera sig að betri manni. Við
erum öll breysk og höfum okkar
að vinna úr, meðvitað og ómeð-
vitað. Ef þetta líf er ekki til þess
að gera sig að örlítið betri manni
og sjá örlítið meira af því sem
innra með manni er með að
þroska sig og stækka, þá held ég
að þú hafir náð að finna örlítinn
tilgang með lífinu.
Þegar maður deyr er spurt
hvað maður lætur mikið eftir
sig, en englarnir munu spyrja:
Hvað hefur hann sent mörg
góðverk á undan sér? Góð-
verkin í þessu lífi eru uppskeran
í því næsta. “
trufli hann ekki lengur en gerði
það á yngri árum. „Þetta er ekki
truflandi þannig en það verður
náttúrulega ekki tekið af manni
að maður sér og finnur ýmis-
legt og það er nú bara eðli máls
samkvæmt og maður getur
ekkert breytt því. En það hefur
aldrei verið manni til neikvæðra
hluta, í þeirri merkingu verið
eitthvað viðkvæmur fyrir því.
Þetta er bara eðlilegur hlutur.
Móðuramma mín var mikill
spíritisti og það var tvennt sem
maður áttaði sig á þegar ég var
lítill. Þegar hún klæddi sig í
upphlut eða peysuföt þá var
hún annaðhvort að fara á
miðilsfund eða á jarðaför. Hún
fór alltaf til Hafsteins miðils.
Hún lét vita af sér daginn eftir
að hún kvaddi þessa jarðvist.
Móðir mín hafði pantað tíma
hjá Hafsteini og einhver ákveð-
inn tími gefinn en svo hringir
hann og biður um að fresta
fundinum og gaf henni aðra
dagsetningu. Sú dagsetning var
allt í lagi en amma kvaddi þá
daginn fyrir fundinn. Hún lá þá
á Kristnesi og mamma var
eitthvað rög við að fara á fund-
inn en fór samt og amma lét
vita af sér. Sagði að þetta væri
bara hólkur og var alveg með
það á hreinu hvað þetta var
eðlilegt og sjálfsagt og trúði
mikið á mátt bænarinnar. En
hún horfði á þetta mjög
skemmtilegum augum,“ segir
Þórhallur og útskýrir að það sé
mjög misjafnt hvenær fólk
kemur fram.
„Stundum gerist þetta eins
og með hana og svo eins og með
aðra konu. Hún kom á fund til
mín og inn í herbergi. Ég segi:
Fyrirgefðu, varstu að koma af
jarðarför? Hún segir já. Það
fylgdi henni kona og eftir að
hafa lýst henni þá kom í ljós að
hér var komin konan sem verið
var að jarða. Þá var hún bara að
láta vita af sér og að henni liði
vel. Það er þessi örfíni þráður
sem er á milli þessa heims og
annars. Hann er fyrir hendi.
Við skulum aldrei vanmeta
Þórhallur kemur sér vel fyrir í horninu í herberginu hjá Sálarrannsóknarfélaginu.
Þórhallur við minnisvarðann um horfna sem er í kirkjugarði Sauðárkróks.
Þórhallur segir að þrátt fyrir að framtíðin sé skrifuð að hluta fyrir hvern og einn sé
stjórnin ávallt hjá einstaklingnum.
23/2017 7