Feykir - 05.09.2018, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
33
TBL
5. september 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Helgistund í friðlýstri kirkju
Sjávarborgarkirkja í Skagafirði
Sigfús tekur við lyklavöldum
Formleg lyklaskipti í Ráðhúsinu á Sauðárkróki
Formleg lyklaskipti fóru fram í Ráðhúsinu á Sauðárkróki
sl. mánudag þegar Ásta Pálmadóttir, fráfarandi
sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, afhenti
nýjum sveitarstjóra, Sigfúsi Inga Sigfússyni lyklana.
Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að oddvitar
meirihlutans, Stefán Vagn Stefánsson og Gísli Sigurðsson,
hafi þakkað Ástu vel unnin störf og óskað henni velfarn-
aðar á komandi tímum og buðu þeir nýjan sveitarstjóra
velkominn til starfa. /PF
Sunnudaginn 26. ágúst sl. var haldin helgistund í
Sjávarborgarkirkju í Skagafirði þar sem léttir sálmar
voru sungnir af söfnuðinum við harmonikkuundirleik
Rögnvaldar Valbergssonar organista. Prestur var séra
Sigríður Gunnarsdóttir.
„Þetta var helgistund, ég reyni að hafa messu eða
helgistund á hverju sumri á Sjávarborg. Kirkjan er gömul
og falleg og skemmtilegt að koma þangað. Kirkjan er
friðlýst og í umsjón Þjóðminjasafnsins, hún er ekki
sóknarkirkja eins og flestar kirkjur. Borgarbæirnir nota
kirkjuna gjarnan fyrir athafnir í fjölskyldunni, þar var t.d
fermingarmessa sl. vor. Annars er hún ekki mikið notuð,“
segir Sigríður.
Á heimasíðu Þjóðminjasafns Íslands segir að Sjávar-
borgarkirkja standi á Borg, klettahöfða skammt frá
Sauðárkróki, og rís hátt upp frá sléttlendinu í kring. Þarna
var kirkjustaður að minnsta kosti frá því á 14. öld. Kirkjan
er úr timbri, byggð af Ólafi Guðmundssyni frá Húsey árið
1853, og stóð húsið upphaflega rétt norðan gamla
torfbæjarins. Húsið er opið gestum á eigin ábyrgð daglega
kl. 8-18 og eru gestir vinsamlegast beðnir um að ganga vel
um.
Finnur Friðriksson á Sauðárkróki var meðal kirkju-
gesta og tók meðfylgjandi myndir. /PF
Baldvin Kristjánsson meðhjálpari í kirkjudyrunum. MYNDIR: FF
Miðapantanir í síma 453 5216
Ath. Eingöngu er tekið við
miðapöntunum í gegnum síma.
Góða skemmtun! við Skagfirðingabraut
Fylgist með okkur á Facebook
Ósóttar miðapantanir eru seldar
10 mín. fyrir auglýstan sýningartíma
(nema um annað sé samið)
SUNNUDAG 9. SEPT. KL. 16
HOTEL TRAN-
SYLVANÍA 3
Sumarfríið
MÁNUDAG 10. SEPT. KL. 20
LOF MÉR AÐ FALLA
FIMMTUDAG 13. SEPT. KL. 20
THE HAPPYTIME
MURDERS
FIMMTUDAG 6. SEPT. KL. 20
THE MEG...mynd
með Ólafi Darra
í stóru hlutverki
1612
SUNNUDAG 9. SEPT. KL. 20
MAMMA MIA:
Here we go again
ÍSL. TAL
12
LOKASÝNING
Séra Sigríður í prédikunarstól. Rósa Róars, Jóhanna Björns og Finnur Alexander Lazar.
9. mars 1947: Sveinn Sveinsson bóndi í Enni í
Viðvíkursveit hlaut byltu af hestbaki“og fór úr liði á
honum öxlin“.
1847: Guðmundur
Jónsson var skipaður
hreppstjóri í
Lýtingsstaðahreppi
ásamt Jónasi
Jónssyni á Syðra-
Vatni. Áður höfðu Páll Magnússon á Ytri-Mælifellsá
og Gunnlaugur Hinriksson á Tunguhálsi haft þann
starfa með höndum. – Ólafur Ólafsson í Sólheimum
var hreppstjóri í Akrahreppi eftir Jónatan Þorfinnsson
á Uppsölum. /PF
Skagfirskur annáll
Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947
Í gamla daga...
Lyklarnir skipta um hendur. MYND: SKAGAFJORDUR.IS
Vonast eftir vatni
í nýtanlegu magni
Borað eftir köldu vatni á Nöfum
Á næstu dögum mun Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
hefja borun á könnunarholu fyrir kalt vatn á Nafa
brúnum ofan við Lindargötu. Holan er staðsett á landi í
eigu Sveitarfélagsins og er staðsetning holunnar
ákveðinn í samráði við sérfræðinga hjá ÍSOR, Íslenskum
Orkurannsóknum.
Á heimasíðu Skagafjarðarveitna kemur fram að áætlað
sé að bora niður á um 50m dýpi. Ef neysluhæft vatn finnst í
nýtanlegu magni í holunni er áætlað að tengja holuna við
stofnlögn vatnsveitu sem liggur frá Sauðárgili og að
vatnstönkum á Gránumóum. /PF