Bæjarbót - 01.03.1982, Side 1
Blað
frjálsra
skoðana
l.árg.
mars 1982
Grindavík
1. tbl.
Nú þegar úrslit liggja
fyrir í sameiginlegu
prófkjöri flokkanna í
Grindavík er ekki úr vegi að
rifja upp úrslit kosning-
anna 1978. Alþýðuflokkur-
inn fékk þá 271 eða 32,1%
gildra atkvæða og tvo full-
trúa. Alþýðubandalagið
fékk 189 atkvæði, 22,4% og
tvo fulltrúa. Framsókn fékk
166 atkvæði eða 25,6% og
tvo menn kjörna.
Þetta má heita „söguleg
upprifjun” sem gaman er
að draga fram nú með hlið-
sjón af úrslitum prófkjörs-
ins um síðustu helgi. Þær
sviptingar, sem urðu þar,
sýna svo að ekki verður um
villst, að í hönd fara átaka-
kosningar þar sem barist
verður um hvert atkvæði.
Urslit prófkjörsins urðu
annars þessi:
Alþýðuflokkur ....... 159 (23,0%)
Alþýðubandalag ..... 63 (9,1%)
Framsóknarflokkur .. 154 (22,2%)
Sjálfstæðisflokkur .... 317 (45,7%)
Þegar þessi úrslit lágu
fyrir fóru „stjórnmála-
spekúlantar” flokkanna að
reikna og fengu út, að ef
þetta hefðu verið kosninga-
úrslit, væri Sjálfstæðis-
flokkurinn með hreinan
meirihluta í bæjarstjórn,
þ.e. fjóra fulltrúa. Alþýðu-
flokkurinn með tvo og
Framsókn einn. En þetta
voru bara ekki kosningar,
heldur prófkjör. Kosning-
aúrslitin eru enn jafn
óráðin gáta. Vafalaust
leggjast flokksbroddarnir
nú undir feld og spá í bar-
áttuna sem framundan er.
Þessir menn urðu efstir
hjá flokkunum. Tölurnar
sýna heildaratkvæðamagn á
mann, þ.e. í öll sætin.
Alþýðuflokkur:
Jón Hólmgeirsson ........... 130
Magnús Olafsson............ 113
Sigurður Agústsson........ 88
SverrirJóhannsson .......... 75
Björg Einarsdóttir.......... 64
Alþýðubandalag:
Kjartan Kristófersson ...... 45
Hinrik Bcrgsson ............ 45
Helga Enoksdóttir........... 38
Guðrún Matthíasdóttir .... 28
Qlöf Ólafsdóttir............ 28
Framsóknarflokkur:
Krístinn Gamalíelsson.... 136
Bjarni Andrésson.......... 123
Gunnar Vilbergsson ........ 76
Halldór Ingvason....... 62
Guðmundur K. Tómasson .. 52
Sjálfstæðisflokkur:
Ölína Ragnarsdóttir........ 237
Guðmundur Krístjánsson .. 244
EdvarðJúlíusson ............ 181
Viktoría Ketilsdóttir...... 158
Stefán Tómasson............. 126
BB
Jón Hólmgeirsson
Kjartan Kristófersson
Kristinn Gamalíelsson
Ólína Ragnarsdóttir
Foreldrar þroskaheftra
— þakklátir bæjarfélaginu
Þroskaheftir einstak- I daglega á Stór Reykjavíkur-
lingar eru nokkrir hér í svæðið til að sækja þjálfun
bænum. Flestir þeirra fara | allskonar, nokkrir fara á
-*■ - ^
Aflafréttir
Aflahæstu netabátar í febrúarlok:
Tonn Róðrar
Hrungnir GK 50 412,4 20
Hrafn GK 12 369,2 21
Hafberg GK 377 362,0 16
Vörður ÞH 4 345,5 22
Þorsteinn GK 16 326,8 20
Oddgeir ÞH 222 272,5 19
Hópsnes GK 77 256,1 20
Albert GK 6 253,5 22
Kópur GK 175 235,1 23
Höfrungur II GK 27 232,2 20
Aflahæstu línubátarnir í febrúarlok:
Sigurjón HF 175,8 14
Hringur GK 18 127,0 18
Freyja GK364 140,5 12
Þorbjörn GK540 104,1 14
Þorkatla GK 97 90,1 16
Afli alls í febrúarlok: 7.949,4 tonn,
þar af þorskur 3.606,4 tonn.
ww ■■ m
barnaheimili með sérdeild.
Bíll var fenginn til að ann-
ast þessa flutninga fyrir
tveimur árum. Fyrst var
farin ein ferð á dag, en eftir
nokkurn tíma reyndist
nauðsynlegt að fjölga ferð-
um. Nokkur barnanna
koma heim kl. 2:30 á dag-
inn en önnur kl. 6:00. Farið
er snemma á morgnana frá
grunnskólanum.
Talsmaður foreldra
barnanna sagði þá mjög
þakkláta bæjarfélaginu
fyrir aðstoðina við börnin.
Að sögn Þórðar Magnús-
sonar bílstjóra, sem annast
aksturinn, er samstarfið við
foreldra barnanna og
starfsfólk viðkomandi
stofnana mjög gott. Sér-
staklega gat hann þess hvað
börnin væru stillt og við-
ráðanleg. Þá vildi talsmaður
foreldra barnanna koma á
framfæri sérstöku þakklæti
til bílstjórans fyrir alúð og
nærgætni við þörnin. Þess
má geta að stofnanir þær
sem fara þarf á daglega eru
6 talsins.
Ríkissjóður greiðir 85%
og bæjarfélagið 15% af
kostnaði við ferðirnar. gg
Frá útgefendum
Góðir Grindvíkingar.
Þetta blað, sem nú er að hejja göngu
sína, markar á vissan hátt tímamót hér í bœ.
Aldrei áður hefur komið út í Grindavík
frjálst óháð fréttablað, opið öllum skoðun-
um, svo framarlega sem efnið hcefir almennu
velscemi og stcerð blaðsins. Ollum einstak-
lingum erfrjálst að tjá hug sinn og skoðanir
í blaðinu. Blaðið hvetur Grindvíkinga, eldri
ogyngri, til að stinga niður penna og senda
inn greinar.
Bcejarbúum hlýtur að vera það nokkur
metnaður að svona blaðgetigengið, en öllum
má vera Ijóst, aðþað skrifar sig ekki sjálft.
Þess vegna er leitað eftirþví við ykkur, les-
endur góðir, aðþið festið kugsanir ykkar á
blað. Mjög fróðlegt vœri að fá frásagnir og
fréttir af atburðum, félagastarfi og síðast en
ekki sístfrásagnirfrá liðinni tíð.
Blaðinu er œtlað að koma út á tveggja
mánaða fresti, ef grundvöllur reynist
traustur.
Utgefendur.
' -