Bæjarbót - 01.03.1982, Qupperneq 5
Bæjarbót
5
íþróttahúsið
— hver verður framkvæmdahraðinn?
Flestir bæjarbúar vita
líklega að íþróttahús er í
byggingii hér í Grindavík.
Bygging slíks mannvirkis
er mikið fjárhagslegt fyrir-
tæki, sem tekur stóran skerf
af ráðstöfunarfé bæjarins.
Auðvitað eru skiptar skoð-
anir á þessu máli, eins og
flestum fjárfrekum fram-
kvæmdum. Það er ekki
allra að stunda íþróttir.
Margir telja að þeir pening-
ar, sem í húsið fara, muni
skila sér vel til baka í nýtari
þjóðfélagsþegnum. Til að
komast hjá getgátum og
misskilningi vegna þessa
máls, voru lagðar nokkrar
spurningar fyrir fulltrúa
flokkana í byggingarnefnd
hússins. Það skal tekið
fram að fulltrúi UMFG,
Wiliard Olason, hefur enn
ekki verið boðaður á fundi
nefndarinnar að hans sögn.
Formaður nefndarinnar er
Eiríkur Alexanderson,
bæjarstjóri.
1. Ert þú áncegður með störf
nefndarinnar og hvernig
hefur veriÖ staÖið að
byggingu htíssins?
2. Telur þú að minnkun
hússins um % hluta hafi
verið réttmœt og hverjar
voru forsendur þeirrar
ákvörðunar?
3. Hvers vegna varÖ að
fresta uþþsetningu ein-
inganna nú í haust? Mun
þaÖ seinka nœsta bygg-
ingaráfanga?
4. Hverjar eru áœtlanir
nefndarinnar varÖandi
nœsta byggingaráfanga?
5. Verður einhver starfsemi
í húsinu nœsta haust?
Aðalgeirjóhannsson:
1. Já. Af hálfu nefndarinn-
ar hefur verið staðið vel
að málum. Það er við
aðra að sakast vegna
frestunar við
reisninguna.
2. Já. Forsendurnar voru
þær að talið var að við
hefðunt ekki efni á að
byggja stærra hús vegna
fjárskorts.
3. Verktakinn fór fram á
frest til 1. mars s.l. Hann
fcllst á að reisa húsið
fyrir sama verð og í
haust. Hann fullyrti að
um seinkun á öðrum
áfanga yrði ekki að ræða.
4. Nefndin er ekki búin að
gera ncina áætlun um
annan áfanga ennþá.
Menn hafa verið að láta
sér detta í hug að koma
gólfinu í lag með haust-
inu. Húsið á alla vega að
klárast á þremur árum.
5. Ég vil ekki vera með
neinar tálvonir.
Halldór Ingvason:
1. Já, ég er nokkuð ánægð-
ur með nefndarmenn,
samt finnst mér að for-
maðurinn mætti sýna
svolítið meiri frískleika.
Nefndinni er nauðsyn-
legt að koma oftar
saman, en hún hefur
verið einhuga um að
koma þessu húsi áfram.
2. Það má segja að þetta
hafi veruð fjármálalega
rökrétt gagnvart ríkis-
valdinu, ef tillit er tekið
til þeirra norma sem það
miðar við. Mín skoðun er
samt sú að þetta hafi verr
ið röng ákvörðun. Það
hcfði mátt koma af stað
frjálsum framlögum,
reisa allt húsið, en láta
síðan '/diluta hússins
standa eftir fokheldan.
3. Verktakinn óskaði eftir
frestun. Hann færði þau
rök í'yrir því að um frest-
un á sjálfri byggingunni
yrði ekki að ræða, en
vegna óhagstæðs veðurs
á þessum árstíma yrði
erfitt að reisa húsið.
Hann benti á að . tafir
hefðu þegar átt sér stað
vegna jarðvinnu. Þjöpp-
un náði ekki tilskildum
þéttleika. Verkfræðing-
ur hússins mælti með
frestun og taldi hana
ekki koma að sök cins og
verkið stæði í dag. Verk-
taki kvaðst skila húsinu
1. apríl eins og kveðið er
á um í samningi.
Seinkunin verður bæn-
um að kostnaðarlausu.
Ég samþykkti þessa
frestun fyrir mitt leyti.
4. Nefndin hefur ekki
komið saman í þrjá
mánuði liverju sem um
er að kcnna. A síðasta
fundi var ákveðið að
byrja aftur á húsinu og
keyra áfram af krafti
meðan fjármagn leyfir.
5. Nei.
Sigurður Ágústsson:
1. Nefndin hefur starf-
að vel og samþykktir
hennar gengið fljótt og
vel fyrir sig. Ég var ósátt-
ur við teikningar af 1.
áfanga. I þeim var
hvergi að sjá gufubað og
þrekherbergi. Því lagði
ég fram tillögu um breyt-
ingu á skipulagi í þjón-
ustubyggingunni, þann-
ig að þetta tvennt yrði
tekið inn á teikningarn-
ar. Sú tillaga var sam-
þykkt. Gufubaðið lenti í
þeim hluta sem
byggingu var frestað á.
Fundir í nefndinni
mættu vera fleiri. Mér
finnst mjög bagalegt að
nefndarmenn hafa ekki
eintak af teikningum, sér
til glöggvunar. Fór því
fram á það við verkfræð-
inginn að úr því yrði
bætt, en það hefur ekki
orðið enn.
2. Sú ákvörðun var alröng
og vægt til orða tekið
mikil mistök. Ég lagði til
að húsið yrði allt reist
fokhelt. Éf við síðan
stæðum frammi fyrir því
að fjárhagurinn leyfði
ekki að við gætum klárað
það í þeirri stærð, þá
mætti loka af Vs og
geyma þar til bejur stæði
á. Þessi skoðun mín er
byggð á vitneskju, sem
ég hef aflað mér, frá
mönnum sem staðið
hafa í sambærilegum
byggingum. Þeir segja að
sá veggur, sem á að loka
enda hússins, sé ill eða
ófæranlegur. Þá geta all-
ir séð hvert áframhaldið
verður. Við þessa
ákvörðun var ekki haft
samráð við arkitekt húss-
ins, hann varð furðu
lostinn yfir þessu og varð
að endurteikna húsið.
Ákvörðun um að byggja
aðeins % hluta hússins
var einhliða ákvörðun
bæjarstjórnar. Um for-
sendur þeirrar
ákvörðunar vísa ég því til
hennar.
3. Mér var tjáðafverkfræð-
ingi hússins að því hafi
valdið seinkun á
jarðvinnu (?). Það
seinkaði grunninum
fram á haustið. Síðan
bað verktakinn um frest,
sem nemur því að húsið
skuli vera reist og tilbúið
frá hans hendi 1. apríl.
Nefndin komst að þeirri
niðurstöðu að frágangur
á þaki yrði erfiður í jan.
- feb. og að þessi beiðni
myndi ekki seinka fram-
kvæmdum frekar en
orðið var. Var frestunar-
beiðnin því samþykkt.
4. Samþykkt var á síðasta
fundi að koma salnum í
gagnið sem fyrst. Þá er
átt við lýsingu, hita og
dúk á gólfið.
5. Ég held ég megi segja að
það sé von okkar allra í
nefndinni að íþróttafólk-
inu megi hlotnast sú
gæfa.
Guðni Þ. Ölversson:
1. I úpphafí starfaði nefn-
din mjög vel. Nefndar-
menn skoðuðu ýmsar
gerðir af íþróttahúsum,
skiptust á skoðunum um
þau og reyndu að gera
sér grein fyrir því hvers
konar húsgerð væri
heppilegust fyrir
Grindavík. Endanleg
ákvörðun var svo tekin
um byggingu á því húsi
sem nú er hafin vegna
sérstaklega hagstæðra
samninga við fram-
leiðanda, en segja má að
um nokkurskonar
fjöldaframleiðslu afslátt
hafi verið að ræða þar
sem framleidd voru
a.m.k.þrjú samskonar
hús í einu. Síðan þá hef-
ur nefndin nánast verið
afgreiðslunefnd og ekk-
ert starfað að öðru leyti.
2. I pólitík er ekkert rétt-
mætt og ekkert órétt-
mætt. Stærð hússins er
æði mikið peningaspurs-
mál og í bæjarstjórn var
ekki meirihluti fyrir því
að byggja allt húsið í einu
vegna þess, hve ríkið
hefði þá greitt lítið hlut-
fall af verði hússins.
M.ö.o. meirihlutinn taldi
að það hefði verið bæn-
um ofviða. En um
byggingu íþróttahúsa
gilda áveðin norm og
samkvæmt þeim greiðir
ríkissjóður ákveðið hlut-
fall af stærð hússins mið-
að við hausatölu. Þannig
hefði ríkið ekki greitt
nema u.þ.b. 25% af verði
hússins í fullri stærð en á
nú að greiða 37,88% af
þeim hluta sem nú er í
smíðum, á móti 62,12%
sem bærinn greiðir.
Auðvitað hefði verið
skynsamlegast að a.m.k.
reisa allt húsið í einu þó
svo ekki hefði verið lokið
við nema %hluta þess
sem nú er ákveðið að
reisa og ljúka við í náinni
framtíð. Sú hætta er nú
fyrir hendi að seint verði
lokið við íþróttahúsið og
jafnvel aldrei.
3. Páll Þorbjörnsson verk-
taki og framleiðandi
hússins fór fram á frest-
un vegna mikilla anna í
öðru verki og Ágúst
Jónsson verkfræðingur
mælti eindregið með því
að fresturinn yrði veittur
á þeirri forsendu að
hann vildi að fram-
leiðandi eininganna
reisti þær sjálfur með
sínum bestu mönnum til
að tryggja það sem allra
best að verkið væri eins
vel unnið og kostur er.
Þetta átti ekki að tefja
framkvæmdina, því ald-
rei stóð til að gera neitt
meira í haust en að reisa
húsið. Páll fékk síðan
umræddan frest til mán-
aðamóta febrúar og
mars til að hefja verkið
og síðan átti að halda
áfram þar til húsið væri
tilbúið undir tréverk.
Þannig á sú áætlun sem
bæjarstjórn gerði að geta
staðist, þ.e. að húsbygg-
ingunni verði lokið
haustið 1983.
4 Áætanir nefndarinnar
hafa náttúrulega engan-
veginn staðist því hún
gerði í upphafi ráð fyrir
því að í Grindavík væri
komíð gott þróttahús
ekki seinna en árið 1981.
En eins og fram er komið
er nú meiningin að húsið
verði tilbúið haustið
1983.
5. Ég er nú svo bjartsýnn að
ala á þeirri von að hugs-
anlega gætu einhverjar
æfingar farið fram í
þessu íþróttamannvirki
einhvern tíman næsta
vetur.
Grindvíkingar!
Eins og yður er eflaust kunnugt, þá höfum við opnað skrifstofu að Víkurbraut 40, neðri hæð.
Auk allrar almennrar fasteigna og skipasölu, þá sjáum við einnig um gerð skattframtala
fyrir einstaklinga. Verið velkomin.
Eignamiðlun Suðumesja
Opið alla daga nema sunnudaga kl. 9-12 f. h. Víkurbraut 40
Sími8245
Samantekt: LPJ