Fréttablaðið - 30.04.2020, Side 8
Breytingarnar
munu vafalaust
hjálpa einhverjum fyrir-
tækjum að komast í nauð-
synlegt skjól til þess að
endurskipuleggja rekstur
sinn.
Jóhannes Þór
Skúlason,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónust-
unnar
Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn í fjarfundi fimmtudaginn
14. maí 2020 kl. 17 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.
Í ljósi aðstæðna er einungis gert ráð fyrir að starfsmenn og stjórnarmeðlimir mæti á Sléttuveginn.
Aðrir fundarmenn taka eingöngu þátt með rafrænum hætti í gegnum forritið Zoom.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á fundinum fyrir fram og er skráningarform að finna á
heimasíðu félagsins www.msfelag.is. Þátttakendur fá sendan tölvupóst miðvikudaginn 13. maí
með hlekk sem veitir aðgang inn á fundinn.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Vinsamlega athugið að framboð til stjórnar og nefnda skal tilkynna til skrifstofu eigi síðar en viku
fyrir aðalfund og að atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar
en viku fyrir fundinn og hafa greitt árgjald. Nánari upplýsingar á www.msfelag.is
Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt og skrá sig sem fyrst.
Virðingarfyllst, Stjórn MS-félags Íslands
FUNDARBOÐ
Aðalfundur MS-félags Íslands
Breska fjártæknifyrirtækið Rapyd,
sem keypti Korta fyrr í þessum
mánuði, greiðir um 2,8 milljarða
króna fyrir allt hlutafé félagsins,
samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins. Endanlegt kaupverð ræðst
af afkomu Korta á þessu ári og getur
hæst orðið um 3,2 milljarðar eða
lækkað niður í um 2,4 milljarða.
Arik Shtilman, forstjóri Rapyd,
sagði í viðtali við Markaðinn að
félagið ætlaði að fjárfesta veru
leg a í upp bygg ingu á starf semi
fær slu hirðinga r f y r ir t æk isins .
Fjár fest ingin miðar að því að tvö
falda markaðshlutdeild Korta á
næstu þremur árum og að byggja
upp miðstöð vöruþróunar Rapyd
í Evrópu.
Kvika og hópur einkafjárfesta
keyptu Korta á eina krónu í lok árs
2017 og lögðu félaginu um leið til
nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé
til að forða því frá gjaldþroti. Ári
síðar var hlutafé Korta aukið um
1.055 milljónir króna.
Kvika var fyrir söluna stærsti
hluthafi Korta, með ríflega fjörutíu
prósenta hlut, en aðrir helstu hlut
hafar eru Aðalsteinn Jóhannsson,
Jakob Már Ásmundsson, forstjóri
Korta, félagið Óskabein, Sigurður
Bollason og Sigurður Valtýsson,
fyrrverandi forstjóri Exista. – hae
Korta selt á 2,8
milljarða króna
Brýnt er að löggjafinn breyti án tafar lögum um gjaldþrotaskipti og auðveldi fyrirtækjum sem glíma við rekstrarvanda að fá heimild til
greiðslustöðvunar, að mati lög
manna á lögmannsstofunni BBA//
Fjeldco. Koma þurfi í veg fyrir að
lífvænleg fyrirtæki sem séu ekki
greiðslufær verði gefin upp til gjald
þrotaskipta.
Framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar segir fjölda
gjaldþrot í atvinnugreininni enga
lausn. Slíkt myndi hamla verulega
uppbyggingu í greininni á ný.
„Munurinn á því að halda fyrir
tækjum á lífi til þess að þau geti
náð viðspyrnu og því að keyra þau
í gjaldþrot er munurinn á því hvort
það takist að endurreisa efnahag
landsins með aðstoð ferðaþjón
ustunnar á stuttum eða löngum
tíma,“ segir framkvæmdastjórinn
Jóhannes Þór Skúlason í samtali við
Fréttablaðið.
Í samræmi við tillögur ríkis
stjórnarinnar sem kynntar voru í
fyrradag vinnur dómsmálaráðu
neytið nú að tillögum til þess að
einfalda tímabundið reglur um fjár
hagslega endurskipulagningu fyrir
tækja. Er þá einkum horft til reglna
um greiðslustöðvun.
Tillögurnar, en réttarfarsnefnd
hefur yfirumsjón með útfærslu
þeirra, munu miða að því að fyrir
tæki geti komist í skjól á einfaldan
hátt á meðan verið er að meta stöðu
þeirra og þar til meiri vissa fæst um
framtíðarhorfur þeirra.
Óli Björn Kárason, formaður
efnahags og viðskiptanefndar
Alþingis, segir það skynsamlega
ráðstöfun við þessar aðstæður að
auðvelda fyrirtækjum að fara í
fjárhagslega endurskipulagningu í
skjóli greiðslustöðvunar.
„Hins vegar á eftir að koma í ljós
hver lagalega útfærslan verður en
Koma þurfi í veg fyrir fjöldagjaldþrot
Fjöldagjaldþrot í ferðaþjónustu væru til þess fallin að hamla verulega uppbyggingu í greininni á ný að sögn framkvæmdastjóra
Samtaka ferðaþjónustunnar. Lögmenn á BBA//Fjeldco vilja einfalda skilyrði greiðslustöðvunar sem þeir segja vannýtt úrræði.
Ljóst er að mörg ferðaþjónustufyrirtæki, sem voru fjárhagslega heilbrigð fyrir útbreiðslu kórónaveirunnar en hafa
mátt þola tekjufall, hafa þörf fyrir greiðslustöðvun til þess að geta komist í tímabundið skjól. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
hún skiptir vitaskuld miklu máli,“
nefnir hann.
Í minnisblaði sem lögmenn á
BBA//Fjeldco hafa skrifað Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmála
ráðherra og Markaðurinn hefur
undir höndum er bent á að fjölda
fyrirtækja beri nú þegar skylda
til þess að gefa bú sín upp til
gjaldþrotaskipta, lögum sam
kvæmt, enda séu þau ógreiðslufær
og ljóst sé að greiðsluörðugleikar
þeirra muni ekki líða hjá innan
skamms.
Vannýtt úrræði
Í því skyni að koma í veg fyrir að
lífvænleg fyrirtæki verði tekin til
gjaldþrotaskipta og tryggja að þau
fái nauðsynlegt skjól frá kröfuhöf
um leggja lögmennirnir þannig til
að skilyrði greiðslustöðvunar verði
einfölduð, meðal annars að erlendri
fyrirmynd, en í minnisblaðinu
kemur meðal annars fram að ríkis
stjórn Noregs hafi þegar viðurkennt
þörfina fyrir „skilvirkara úrræði til
að hreinsa upp í skuldavanda fyrir
tækja“.
Rétt eins og í Noregi er greiðslu
stöðvun, sem felur í grunninn í sér
tímabundna vernd skuldara gegn
vanefndaúr ræðum k röf uhafa,
vannýtt úrræði hér á landi en lög
menn BBA//Fjeldco telja ástæðuna
meðal annars þá að skilyrði hennar
séu of þung í vöfum. Þau séu
auk þess ekki nægilega aðgengileg
fyrirtækjum í bágri fjárhagsstöðu.
Þannig er lagt til í minnisblað
inu að réttarvernd endurskipu
lagningar, það er greiðslustöðv
unar, miðist við þann dag sem
fyrirtæki senda dómstólum beiðni
um hana, umsóknarferlið verði ein
faldað umtalsvert og höfnunarskil
yrðum dómstóla verði fækkað og
þau þrengd.
Jafnframt verði ráðstöfunar
heimildir fyrirtækja í endurskipu
lagningarferli útvíkkaðar í sam
ræmi við þarfir fyrirtækjanna
sem þurfa meðal annars að geta
tekið rekstrarlán og veðsett eignir í
þeim tilgangi að geta haldið rekstri
sínum gangandi. Auk þess er lagt til
að heimild til endurskipulagningar
verði veitt til þriggja mánaða í senn
en samkvæmt gildandi lögum þarf
dómari að samþykkja áframhald
andi greiðlustöðvun á allt að þriggja
vikna fresti.
Ábyrgð stjórnenda takmörkuð
Lögmenn BBA//Fjeldco telja enn
fremur mikilvægt að ábyrgð stjórn
enda verði takmörkuð með þeim
hætti að þeim sem stýra lífvæn
legum fyrirtækjum verði heimilt
að sækja um endurskipulagningu,
án þess að það verði metið þeim til
sakar, þó svo að fyrirtækin séu ekki
greiðslufær.
Það sé enda ljóst að fylgi stjórn
endur slíkra fyrirtækja lagaskyld
um sínum – og gefi bú fyrirtækj
anna til gjaldþrotaskipta – verði
„lítið eftir af fyrirtækjum í landinu
í lok árs 2020“.
Jóhannes Þór segir afar skynsam
legt að einfalda reglur um greiðslu
stöðvun í núverandi aðstæðum.
„Breytingarnar munu vafalaust
hjálpa einhverjum fyrirtækjum að
komast í nauðsynlegt skjól til þess að
endurskipuleggja rekstur sinn. Það
á svo eftir að koma í ljós hve mörg
fyrirtæki munu nýta sér úrræðið en
það fer væntanlega eftir rekstrinum
á hverjum stað,“ segir hann.
Mikilvægast af öllu sé að koma
í veg fyrir fjöldagjaldþrot innan
ferðaþjónustunnar og aðgerðir
ríkisstjórnarinnar taki mið af því.
Kristinn
Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
MARKAÐURINN
3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð