Fréttablaðið - 30.04.2020, Side 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
PRETZEL CRISPS
85 G - 2 TEG & VOGA
ÍDÝFA-KRYDD 175 G
599
KR/STK
COMBO
FREYJU
STERKUR
DRAUMUR - 50 G
299
KR/STK
5980 KR/KG
HARIBO
120 G - 2 TEG
249
KR/STK
2075 KR/KG
KIT KAT
4 FINGRA
41,5 G
99
KR/STK
2386 KR/KG
NOCCO
330 ML
329
KR/STK
997 KR/L
COLLAB
ÁSTARALDIN &
LÍMÓNU 330 ML
249
KR/STK
756 KR/L
FANTA &
FANTA EXOTIC
500 ML
169
KR/STK
338 KR/L
NÓA
TROMP
45 G - 2 TEG
169
KR/STK
3756 KR/KG
Þættirnir eru bókstaflega heimatilbúin skopstæl-ing af raunveruleika-þáttaforminu,“ segir Sölvi Fannar, einka-þjálfari, leikari og ljóð-
skáld svo fátt eitt sé nefnt, um þætt-
ina Love Stronger Than Quarantine
sem hann og kærastan hans, Nadi
Fadina, byrjuðu með á YouTube í
gær.
Parið býr á Englandi þar sem
COVID-19 hefur jafnvel bitið fastar
en hér og varúðarráðstafanir yfir-
valda síst verið vægari, þannig
að Sölvi og Nadi ákváðu að snúa
varnarbaráttunni gegn einangr-
unardoðanum í grínsókn með því
að skrifa og leika öll hlutverkin í
„raunveruleikaþáttum“ þar sem
ástin er einangruninni yfirsterkari.
„Eins og hjá f lestum þá hefur
hægst verulega á f lestu sem við
vorum að vinna við og einangr-
unin var farin að sverfa að en í stað
þess að gefast upp fyrir neikvæðum
áhrifum ákváðum við að gera eitt-
hvað saman,“ segir Sölvi en fyrsti
þátturinn kom inn á YouTube.com/
solvifannar í gær.
„Flestir hafa gaman af því að
gantast og hér erum við að færa það
yfir í víðara samhengi,“ segir Sölvi
sem trúir á húmorinn sem eitt besta
vopnið í þeirri baráttu sem heims-
byggðin stendur nú í.
Gagnvirkt grín
„Ef laust eigum við eftir að geta
hlegið að vitleysunni í okkur í þessu
fordæmalausa ástandi þegar við
horfum á þessa þætti eftir nokkur
ár þótt mörgum sé skiljanlega
alls ekki hlátur í huga um þessar
mundir.
Markmið okkar eru annars vegar
að skemmta fólki og hins vegar að
safna fé handa Læknum án landa-
mæra í baráttunni við COVID-19,“
segir Sölvi og bætir við að þættirnir
séu gagnvirkir þar sem áhorfendur
geti haft áhrif á framvinduna.
„Þættirnir fjalla um sex ólík pör
sem eru föst saman í einangrun í
kórónavírusástandinu og þeir eru
gagnvirkir að því leyti að áhorf-
endur geta valið hver af pörunum
verða send „heim“ ef þannig má að
orði komast,“ segir Sölvi og víkur
að mikilvægi samkenndarinnar á
tímum veirunnar.
„Hún er sú tilfinning sem við
ættum líklega að leggja áherslu á
um þessar mundir. Við sitjum jú öll
í sömu súpunni, beint eða óbeint,
og upp úr því sprettur hugmyndin
á bak við að áhorfendur geti kosið
að tekið þátt.“
Dauðans alvara
Þótt Sölvi kjósi að mæta ástandinu
með glensi leggur hann áherslu á að
ástandið sé vitaskuld ekkert grín.
„Að öllu gamni slepptu þá er þessi
faraldur auðvitað dauðans alvara,“
segir hann og dregur í efa að hægt sé
að finna nokkra hliðstæðu við far-
aldurinn með andleg, fjárhagsleg,
og heilsufarsleg áhrif í huga.
„Að vera í stríði við ósýnilegan
óvin, sem reynist sumum banvænn,
hefur mikil áhrif bæði tilfinninga-
lega og líkamlega, ekki síst fyrir þá
sem eru viðkvæmir fyrir. Þess vegna
eigum við að leggja okkur fram um
að sýna samstöðu og vera dugleg
að eiga samskipti við aðra til þess
að skapa meiri nánd og minna sjálf
okkur og aðra á að við erum ekki
ein.“
Gagnkvæmt traust
Sölvi bendir einnig á að óhjá-
kvæmilega „höfum við nú frekar en
nokkru sinni tíma til þess að rækta
sambönd okkar við þá sem okkur
þykir vænt um“ og að með fjar-
fundatækni og samfélagsmiðlum
hafi þetta aldrei verið jafn auðvelt.
„Þetta ástand hefur reynt virkilega
á en við trúum því að það sem skiptir
máli sé að vera opinská um hvernig
okkur líður en gefa hvort öðru um
leið rými,“ segir Sölvi þegar hann
er spurður hvernig þau Nadi höndli
þvingaða lífsstílsbreytinguna.
„Þetta hefur því fært okkur nær
hvort öðru og það hefur hjálpað
talsvert að við höfum verið dugleg
að tala saman og eiga góð samskipti
við fjölskyldumeðlimi og vini.“
toti@frettabladid.is
Ástin sigrar doðann
Sölvi Fannar og Nadi Fadina verjast COVID-leiðindunum með
heimagerðu raunveruleikaþáttagríni sem þau deila á YouTube.
Sem heilsuráðgjafi leggur Sölvi áherslu á að fólk haldi í „einhvers konar rútínu í lífsstílnum“ á meðan faraldurinn
gengur yfir og hugi að mataræði, hvíld og reglulegri hreyfingu með til dæmis heimaæfingum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sölvi og Nadi leika öll pörin í þáttunum en pör úr röðum áhorfenda geta
boðið sig fram eða skorað á önnur pör að taka bókstaflega þátt.
AÐ ÖLLU GAMNI
SLEPPTU ÞÁ ER ÞESSI
FARALDUR AUÐVITAÐ DAUÐANS
ALVARA.
3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð