Fréttablaðið - 30.04.2020, Side 34
MÉR LÍÐUR HVERGI
BETUR EN ÞEGAR ÉG
HEF ELDHÚSIÐ ALVEG ÚT AF
FYRIR MIG OG GET ELDAÐ
ALLAN DAGINN, ÞAÐ ER HIN
FULLKOMNA HUGARRÓ FYRIR
MÉR.
Bakarinn Gunnlaugur Arnar Ingason hefur verið að gera það ein-staklega gott undan-farið og vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir
skemmtilegar myndir og færslur
um baksturinn. Hann er fæddur
og uppalinn í Hafnarfirði og hefur
búið þar alla sína tíð.
„Ég æfði fótbolta með FH frá sex
ára aldri og fram til tvítugs. Eins
og svo margir ungir krakkar átti
ég mér þann draum að komast í
atvinnumennsku í fótbolta en fljót-
lega eftir að ég byrjaði í bakaranám-
inu fann ég mig algjörlega í því og
aðrir æskudraumar fengu að víkja.
Eftir tvö misheppnuð ár í Flensborg
ákvað ég að breyta til og hóf nám í
bakstri og sé ég ekki eftir því í dag,“
segir Gunnlaugur.
Íþróttir og bakstur
Hann segist alltaf hafa haft mikinn
áhuga á matreiðslu og var duglegur
við eldamennskuna á sínum yngri
árum.
„Sjónvarpsþættir um matreiðslu
voru í miklu uppáhaldi hjá mér. Mér
þótti mjög gaman í matreiðslutím-
um í grunnskóla en ég hafði þó aldr-
ei hugsað mér að læra bakstur eða
matreiðslu en á unglingsárunum fór
ég að spá í að læra kokkinn sem var
svona fyrsti valmöguleiki á undan
bakstrinum. Mér þótti vinnutím-
inn þó í bakstrinum henta betur
þar sem ég var á fullu í íþróttum á
þessum tíma og einnig hefur mér
alltaf þótt gott að vakna snemma og
hafa allan daginn eftir,“ segir hann.
Gunnlaugur fann sig illa í bóklegu
námi og telur líklegt að hann hefði
ekki fundið sína hillu í lífinu sem
baksturinn er ef ekki væri fyrir þá
staðreynd.
„Ég hef alltaf átt mjög erfitt með
lestur og skrift og er það helst vegna
þess að ég held ekki athygli til að
lesa meira en eina blaðsíðu,“ segir
hann og hlær. „Mér gekk ekkert
illa í bóklegu námi til að byrja með
en í seinni hluta grunnskólagöngu
minnar man ég meira eftir mér
frammi á göngum eða úti á skóla-
lóðinni heldur en í skólastofunni
sjálfri. Svo þegar ég fór í Flensborg
gekk mér illa, þótti námsefnið erfitt
og féll eða sagði mig úr f lestöllum
áföngum.
Verklegt nám hentaði mér síðan
fullkomlega þar sem ég átti erfitt
með að sitja kyrr heila kennslu-
stund og orkuþörfin hjá mér alveg
að springa. Ég tel það klárlega
ástæðu þess að mér gekk og gengur
vel í bakstri,“ segir hann.
Launað nám
Hann segir ákveðna fordóma hafa
verið fyrir iðnnámi hér á árum
áður en það sé statt og stöðugt að
breytast.
„Í dag finn ég fyrir miklum áhuga
á því sem ég geri enda hafa allir
áhuga á fallegu handverki. Ég finn
hálfpartinn fyrir öfund hjá vinum
mínum og fólki í kringum mig yfir
að hafa valið iðnnámið. Ég þurfti
því ekki að vera með námslán á bak-
inu og fékk greitt á meðan á náminu
mínu stóð en starfaði á sama tíma
við það sem ég hef mestu ástríðu
fyrir. Ég gæti ekki mælt nógu mikið
með iðnnámi. Ég mæli með því að
ungt fólk sem er efins með það hvað
það vill gera skoði hvað sé í boði,
því fögin á Íslandi eru mörg og fjöl-
breytt,“ segir hann.
Gunnlaugur átti að taka þátt í
heimsmeistaramótinu í kökugerð
í Taívan núna í mars, en því var
seinkað vegna COVID-19 farald-
ursins.
„Ég var mjög vel undirbúinn og
búinn að æfa mikið þegar ég fékk
skilaboð um að fresta ætti keppn-
inni fram á verslunarmannahelg-
ina. Ég sýndi því að sjálfsögðu skiln-
ing og ætlaði að ráða mig í vinnu og
Fann hugarró
í bakstrinum
Gunnlaugur Arnar Ingason fór í bakarann
eftir að honum var ljóst að bóknámið
hentaði ekki. Það var eflaust hans besta
ákvörðun enda einn fremsti bakari lands-
ins nú þegar, og aðeins 25 ára að aldri.
Gunnlaugur stefndi lengi að því að verða fótboltamaður en fann sig svo í bakstrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnlaugur lærði hjá einum þekkt-
asta konditor í Kaupmannahöfn.
Hann segist hafa sérstaklega gaman
af því að baka flóknari uppskriftir.
halda svo áfram æfingum þegar líða
mundi á sumarið. Þegar veiran var
orðin að heimsfaraldri var tekin
ákvörðun um að fresta keppninni
algjörlega en óvíst er hvort ég taki
þátt að ári.“
Æskuvinir
Gunnlaugur hóf nám hjá einu virt-
asta og elsta konditoríi í Danmörku
árið 2018.
„Umsóknarferlið var langt enda
er staðurinn einn sá f lottasti í Evr-
ópu og erfitt að fá nemapláss þarna.
Eftir nokkur viðtöl og eina prufu
fékk ég starfið. Þarna er mjög gott
að læra og heldur staðurinn í gamlar
hefðir, þannig lærir þú grunninn í
kökugerð. Eftir útskrift getur þú svo
tekið þína eigin stefnu,“ segir Gunn-
laugur.
Nýverið stofnaði Gunnlaugur
veisluþjónustu ásamt æskuvini
sínum, fótboltakappanum Böðvari
Böðvarssyni.
„Við erum staðsett á Flatahrauni
í Hafnarfirði og ég er einstaklega
glaður yfir að hafa fundið staðsetn-
ingu í mínum heimabæ. Við gerum
allt frá litlum makkarónum upp í
stórar brúðartertur. Viðtökurnar
hafa verið stórkostlegar og kann ég
mikið að meta það þegar fólk deilir
með mér upplifun sinni af þjón-
ustunni. Ég hef ótrúlega gaman af
þessu enda alltaf reynt að sækjast í
nýjar áskoranir og gert hlutina eftir
mínu höfði.“
Böðvar er enn þá í Póllandi, en þá
félagana hafði lengi dreymt um að
fara í rekstur saman.
„Hugmyndin hefur gerjast hjá
okkur í um fimm ár en síðastliðin
tvö ár hafa verið markvissar sam-
ræður varðandi reksturinn. Ég sé
um allan daglegan rekstur og fram-
leiðslu. Böðvar kemur inn í þetta
sem meðeigandi, hann veit varla
hvernig hveiti lítur út, en hann
hefur ávallt verið minn stærsti
stuðningsmaður í bakstursferlinu
og það er gott að hafa einhvern með
mér í þessu sem treystir mér, og því
sem ég stend fyrir, fullkomlega,“
segir hann.
Hugarró í eldhúsinu
Gunnlaugi finnst skemmtilegast að
baka það sem krefst mikillar tækni
og vandvirkni.
„Mér finnst til dæmis gaman
að blanda mismunandi mössum
saman og að vinna með mismun-
andi áferð og rétt hitastig. Ég hef
undanfarið sérhæft mig í makka-
rónugerð og ætli það sé ekki það
sem mér þykir skemmtilegast, enda
er það tæknilegt ásamt því að fjöl-
breytileikinn með bragðtegundir og
útlit er óendanlegur. Ekki skemmir
fyrir hvað makkarónur eru fallegar
og myndrænar,“ segir Gunnlaugur.
Baksturinn er þó ekki eina áhuga-
mál Gunnlaugs, enda hefur hann
alltaf verið mikill íþróttamaður.
„Mér þykir gaman að stunda golf
og að hjóla er eitthvað sem mér
finnst yndislegt eftir dvöl mína
í Kaupmannahöfn. Það tæmir
hugann að fara út að hjóla og allar
áhyggjur af vinnu og daglegu amstri
getur maður skilið eftir á meðan á
því stendur.
Mitt stærsta áhugamál er samt
alltaf að elda og að borða góðan
mat. Mér líður hvergi betur en þegar
ég hef eldhúsið alveg út af fyrir mig
og get eldað allan daginn, það er hin
fullkomna hugarró fyrir mér,“ segir
Gunnlaugur. Hægt er að fylgjast
með bakstri Gunnlaugs á Instagram
undir @gulliarnar.
steingerdur@frettabladid.is
3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ