Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 13
Í umræðum
um getu
þjóðarbús-
ins til við-
spyrnu tala
stjórnvöld
aftur á móti
einungis
um þann
styrk, sem
þau telja að
Ísland hafi
umfram
önnur lönd.
Þorsteinn
Pálsson
AF KÖGUNARHÓLI
Umræðan um smitvarnir hefur einkennst af því að segja allan sannleikann umbúðalaust. Ekk-
ert hefur verið dregið undan, hvorki
veikleikar né styrkleikar.
Í umræðum um getu þjóðarbúsins
til viðspyrnu tala stjórnvöld aftur á
móti einungis um þann styrk, sem þau
telja að Ísland hafi umfram önnur lönd.
Nefna má nokkur dæmi þar sem hálf
sagan er sögð:
1. dæmi
Stjórnvöld stappa stáli í fólk með því
að endurtaka að styrkleiki Íslands
umfram önnur lönd felist í miklum
gjaldeyrisforða og lágu skuldahlutfalli
ríkissjóðs. Þetta er í sjálfu sér rétt.
Hitt er að þessi sterka staða er að
stórum hluta til orðin vegna þess að
erlendir kröfuhafar voru þvingaðir til að
gefa upp skuldir þrotabúa. Hún skýrist
því aðeins að hluta til með innri styrk
hagkerfisins. En þetta má ekki segja.
2. dæmi
Þá er staðhæft að Ísland sé betur sett
en önnur ríki til að mæta kreppu því
Seðlabankinn hafi svigrúm til að lækka
vexti, sem Seðlabanki Evrópu hafi ekki.
Þetta er rétt svo langt sem það nær.
En hér má ekki horfa fram hjá því
að stór hluti þjóðarbúskaparins er á
höndum fyrirtækja, sem ekki eru í
krónuhagkerfinu. Vextir af erlendum
lánum þeirra ráðast af stjórn peninga-
mála í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta
má ekki segja.
Þá verður Seðlabankinn að halda
vöxtum hærri hér en í viðskiptalönd-
unum til þess að halda uppi verðgildi
krónunnar. Síðustu vaxtalækkanir
breyta þessu ekki. Samkeppnisstaða
lítilla og meðalstórra fyrirtækja í
krónuhagkerfinu verður því áfram
lakari en annarra af þessum sökum.
Þetta má ekki segja.
3. dæmi
Enn fremur er sagt að Ísland sé betur
sett en aðrar þjóðir til að hlaupa undir
bagga með atvinnulífi og fjölskyldum
af því að ríkissjóður skuldi hlutfallslega
lítið í alþjóðlegum samanburði. Þetta
er rétt að hluta. En hér skipta vextirnir
mestu máli.
Þrátt fyrir lækkun vaxta þarf ríkis-
sjóður Íslands samt að borga hærri
vexti en ríkissjóðir annarra landa.
Þetta þýðir að hlutfall ríkisskulda hér
þarf að sama skapi að vera lægra en
annars staðar til þess að vaxtagreiðslur
skerði ekki getuna til þess að halda
uppi sambærilegu velferðarkerfi.
Eftir kreppuna 2008 var hlutfall
vaxtakostnaðar ríkissjóðs til að mynda
helmingi hærra en í Grikklandi þó að
skuldahlutfallið hafi verið helmingi
lægra. Þetta má ekki segja.
4. dæmi
Sagt er að Ísland standi betur að vígi en
aðrar þjóðir fyrir þá sök að unnt sé að
auka gjaldeyristekjur með því að láta
gengið hrynja. Þetta á við um ferða-
þjónustuna og er því að hluta til rétt.
Veruleikinn er aftur á móti sá að fall
krónunnar eykur ekki gjaldeyrisöflun
sjávarútvegs og orkufreks iðnaðar, sem
skapa rúmlega helming gjaldeyris-
teknanna. Náttúrulegar skorður ráða
því. Þetta skýrir meðal annars að eftir
2008 tók útflutningur fyrr við sér á
Írlandi en hér þrátt fyrir stöðugt gengi
evrunnar og hrun krónunnar. Þetta má
ekki segja.
5. dæmi
Þá gefa stjórnvöld fyrirheit um að
hér megi reka ferðaþjónustu í sama
umfangi og verið hefur. Það er ugglaust
rétt. En til þess þarf væntanlega að færa
gengi og kaupmátt til baka um mörg ár.
Jafnframt eru gefin fyrirheit um að
viðhalda megi óbreyttu lífskjarastigi.
Það er ugglaust rétt. En til þess að svo
megi verða þarf að byggja upp alþjóð-
legan þekkingariðnað, sem þolir hátt
gengi en krefst sama gengisstöðugleika
og ríkir á stóru myntsvæðunum.
Klípan er sú að ekki er unnt að upp-
fylla bæði fyrirheitin samtímis. Það má
ekki segja.
Veikleiki og styrkleiki
Sannarlega er það eitt mikilvægasta
hlutverk stjórnvalda við ríkjandi
aðstæður að ala á bjartsýni og trú á getu
þjóðarbúsins. En hættan á mistökum
eykst ef menn draga ekki hvort tveggja
fram í dagsljósið, veikleikana og styrk-
leikana
Á endanum getur það líka grafið
undan trausti.
Það sem ekki má segja
FRÉTTAUMRÆÐA, MENNING,
HEILSA, LÍFSREYNSLA OG NÁTTÚRA
FYLGSTU MEÐ Á HRINGBRAUT!
70 ára saga
Þjóðleikhússins
Linda Blöndal ræðir við fólkið sem
þekkir söguna og skyggnist dýpra inn
í starfsemi listamannanna.
Í nýrri þáttaröð á Hringbraut
Annar þáttur af þremur um 70 ára sögu
Þjóðleikhússins er á dagskrá í kvöld
kl. 20:00.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0