Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 14

Fréttablaðið - 30.04.2020, Síða 14
Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum. 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HANDBOLTI „Maður er orðinn vanur og svolítið ónæmur fyrir því að fyrrverandi liðsfélagar séu að hætta en það tók langan tíma að meðtaka þetta,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, þegar Fréttablaðið slær á þráðinn til hans til að ræða ákvörðun Guðjóns Vals Sigurðs- sonar um að leggja skóna á hilluna. Björgvin og Guðjón voru herbergis- félagar um árabil hjá íslenska lands- liðinu og hluti af silfurliði Íslands á Ólympíuleikunum 2008 og brons- liðinu á Evrópumótinu tveimur árum síðar. Guðjón Valur tilkynnti í gær að 25 ára leikmannaferli væri lokið. Lengst af á ferlinum lék hann í Þýskalandi með stærstu liðum Þýskalands en hann lék einnig með AG Köbenhavn, Barcelona og nú síðast stjörnum prýddu liði PSG sem varð franskur meistari á dög- unum. Undanfarin ár hefur hann verið í lykilhlutverki hjá bestu liðum heims og samdi við eitt besta lið heims á fertugsaldri. „Það er svolítið honum líkt að fá að fara út á eigin forsendum. Hann hættir á toppnum. Ég held að það hafi enginn náð jafn hátt á hans aldri og hann gæti auðveldlega haldið áfram í tíu ár ef hann væri að hugsa um peningana eða sjálfan sig. Ég held að hann sé að taka skref sem er hollt fyrir hann sem per- sónu. Hann er klár maður og á eftir að láta til sín taka á fleiri sviðum en að kasta boltanum fram og til baka,“ segir Björgvin enn fremur. Kveðjum rigndi yfir Guðjón Val á Instagram-færslunni þar sem hann tilkynnti að ferlinum væri lokið. Bæði mátti sjá þar íslenskt afreks- fólk en einnig f lestar af stærstu stjörnum handboltaheimsins. Nikola Karabatic og Thierry Oma- yer, máttarstólpar franska lands- liðsins undanfarna áratugi, senda Guðjóni Vali kveðju, kalla hann goðsögn og þakka honum fyrir allt. „Íslendingar eiga það til að ein- blína á hvað hann gerði fyrir lands- liðið, hversu mörg mörk hann skoraði. Þeir sem hafa spilað með honum sjá íþróttamanninn. Ég hef ekki upplifað betri íþróttamann en Guðjón Val á öllum sviðum. Hann var leiðtogi og fyrirmynd innan sem utan vallar. Það sést á þessum skila- boðum sem hann er að fá, það sýnir hvað Guðjón skildi mikið eftir sig,“ segir Björgvin að lokum. – kpt Guðjón Valur hættir á toppnum Guðjón Valur í einum af síðustu landsliðsleikjum sínum. MYND/AFP Hann gæti auðveld- lega haldið áfram í tíu ár ef hann væri að hugsa um peningana. Björgvin Páll Gústavsson um Guðjón Val Sigurðsson HANDBOLTI Guðjón Valur kveður sem markahæsti landsliðsmaður sögunnar hjá íslenska landsliðinu, markahæsti leikmaður frá upp- hafi í sögu Evrópumótanna og er í þriðja sæti meðal markaskorara í lokakeppnum heimsmeistaramóta. Ferill Guðjóns Vals hófst á Sel- tjarnarnesinu en árið 1995 lék hann sinn fyrsta leik í meistaraf lokki fyrir Gróttu/KR sem lék þá í næst- efstu deild. Þessi 16 ára pjakkur lék þá undir stjórn Ólafs Lárussonar sem ræddi við Fréttablaðið um Guðjón Val. „Það var ljóst þegar Guðjón Valur var svona 14-15 ára að hann ætlaði sér að ná langt í handboltanum. Það komst ekkert annað að hjá honum og hann var klár í að leggja þetta auka á sig til þess að komast í fremstu röð. Á þessum tíma var Alexander Petersson einnig í her- búðum okkar. Þeir eru svipaðar týpur að mínu mati, miklir íþrótta- menn með mikið keppnisskap og þrá til þess að ná eins langt í íþrótt- inni og mögulegt er,“ segir Ólafur um sinn fyrrverandi lærisvein. „Ég man til að mynda eftir partíi sem haldið var hjá leikmannahópi Gróttu/KR. Um miðjan gleðskap- inn fóru Guðjón og Alexander að þrátta um það hvor væri sneggri að að skila sér til baka í vörnina þegar andstæðingurinn væri á leið í hraðaupphlaup. Það endaði með því að þeir útkljáðu rifrildið með því að fara í kapphlaup. Þetta segir sitt um hugarfar þeirra og vilja til þess að skara fram úr og gera liðinu gagn á báðum endum vallarins,“ segir hann enn fremur. „Guðjón var óttaleg písl þegar hann var unglingur en með mik- inn sprengikraft og gat leikið sem skytta og hornamaður. Þegar Guðjón var síðan svona 16-17 ára gamall tók Gauti Grétarsson hann upp á sína arma. Lagaði mataræðið og skrokkinn með styrktar- og sprengikraftsæfingum. Það var allt annað að sjá hann eftir nokkur ár undir handleiðslu Gauta. Hann gat vel leikið sem skytta en fór að einbeita sér meira að því að leika í horninu sem reyndist gæfuspor. Það var aftur á móti gott vopn að hann gat lyft sér upp fyrir utan og sumir þjálfarar lögðu upp úr því á ferli hans,“ segir þjálfarinn gamalreyndi. „Ég heimsótti Guðjón nokkrum sinnum út eftir að hann fór að leika erlendis. Það var auðséð að hann var mikils metinn alls staðar þar sem hann spilaði. Guðjón gaf mikið af sér og er drífandi í hóp. Eitt dæmi er þess er að hann hjálpaði danska landsliðsmanninum Mads Mensah mikið þegar þeir spiluðu saman hjá Rhein-Neckar Löwen eftir að Mensah var að koma til baka úr meiðslum. Svo eru f leiri dæmi um slíkt frá félagsliðaferlinum. Það verður vissulega skrýtið að horfa á landsliðið í komandi leikjum og stórmótum án hans þar sem lands- liðsferillinn hefur verið svo langur og glæsilegur,“ segir Ólafur. Guðjón Valur lauk ferli sínum sem leikmaður franska liðsins PSG. Hann hefur verið sigursæll með félagsliðum sínum í gegnum tíðina. Guðjón vann EHF-keppnina með Essen, varð danskur meistari og bikarmeistari með AG, þýskur meistari með Kiel tvisvar og bikar- meistari árið 2013. Með Barcelona varð Guðjón spænskur meistari tví- vegis. Vorið 2015 var Guðjón Valur í sigurliði Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Til viðbótar varð Guðjón Valur þýskur meistari með Rhein- Neckar Löwen árið 2017 og bikar- meistari árið eftir. Hann lauk svo ferli sínum sem franskur meistari hjá PSG. Guðjón lék sinn fyrsta A-lands- leik gegn Ítal íu á alþjóðlegu móti í Haar lem í Hollandi 15. des em ber 1999, þá tví tug ur að aldri. Hann tók þátt í sínu 22. stórmóti á ferlinum þegar hann spilaði á Evrópumótinu í janúar fyrr á þessu ári. Hann missti einungis af einu stórmóti þar sem Ísland átti þátttökurétt á öldinni, það er HM 2019. Hann vann til silf- ur verðlauna með ís lenska lands- liðinu á Ólymp íu leik un um í Pek- ing árið 2008 og til bronsverðlauna á Evr ópu mót inu í Aust ur ríki árið 2010. Guðjón Valur var kjör inn íþrótta- maður árs ins árið 2006. Þessi frá- bæri hornamaður varð deildar- meistari með KA árið 1998. Guðjón varð markakóngur þýsku efstu deildarinnar árið 2006 sem leik- maður Gummersbach. Hann er einn af þremur íslenskum handknatt- leiksmönnum sem hefur tekist það. Hinir eru Sigurður Valur Sveinsson og Bjarki Már Elísson, sem náðu því báðir sem leikmenn Lemgo. hjorvaro @frettabladid.is Snemma ljóst að hann ætlaði alla leið Kaflaskipti hafa orðið í íslenskri handboltasögu en Guðjón Valur Sigurðsson er hættur. Ferill hans, sem spannar aldarfjórðung í hæsta gæðaflokki, hefur runnið sitt skeið og harpixið er farið á hilluna. Guðjón Valur getur svo sannarlega gengið sáttur frá borði. Guðjón Valur Sigurðsson var sigursæll hjá þeim félagsliðum sem hann spilaði með á ferli sínum. MYND/GETTY Guðjón Valur varð landsmeistari alls sjö sinnum í fjórum mismun- andi löndum. Allir titlarnir komu eftir þrítugt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.