Fréttablaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 21
Á tímum sem þessum þar sem mikil óvissa ríkir í umhverfi okkar, sem hefur
tekið miklum breytingum með
tilheyrandi takmörkunum, hefur
líklega aldrei verið jafn mikilvægt
fyrir okkur að hlúa vel að okkur
sjálfum. Öll gerum við okkar besta
við að fylgja fyrirmælum sér-
fræðinga til að verja okkur og þá
sem eru viðkvæmir gegn þessari
nýju veiru sem hefur breytt okkar
daglega lífi frá því sem áður var.
Í þessum streituvaldandi
aðstæðum er lykilatriði að missa
ekki dampinn og reyna að við-
halda heilsusamlegu líferni og
styrkja með því varnir líkamans.
Takmarkanir á hreyfingu, útiveru
og því að njóta dagsbirtunnar
geta haft slæm áhrif á okkur, bæði
líkamlega og andlega. Sólin er
mikilvægur hlekkur í að tryggja að
við fáum nægar D-vítamín birgðir,
en skortur á dagsbirtu getur ein-
mitt verið ávísun á depurð.
Nægur svefn, hollur matur og
dagleg hreyfing eru gríðarlega
mikilvægir þættir í að byggja upp
og viðhalda sterku ónæmiskerfi,
en andleg næring spilar einnig
stærra hlutverk en marga grunar.
Uppbyggileg samskipti og allt
það sem nærir okkur andlega eins
og umhyggja, virðing, skilningur,
stuðningur, þakklæti og traust
hefur jákvæð áhrif á heilsuna. Öll
þurfum við að upplifa það að við
skiptum máli og að okkur sé sýnd
virðing og einnig er nærandi að
gefa af sér til annarra.
Ef viljinn er fyrir hendi þá er það
bæði einfalt og ódýrt að tileinka
sér jákvæðan lífsstíl. Iðkun hug-
leiðslu eykur andlega vellíðan og
um leið viðnám gegn streitu.
Við berum ábyrgð á heilsu okkar
og getum gert ýmislegt til efla
okkur:
n Veldu fjölbreytt og
hreint mataræði
n Hreyfðu þig reglulega
n Njóttu þess að vera úti
í dagsbirtunni
n Hugaðu að andlegri næringu
n Passaðu upp á góðan nætur
svefn
n Taktu inn mikilvæg bætiefni
Beta glúkan styður við
ónæmiskerfið
Heilbrigður lífsstíll og góð næring
eru mikilvægustu þættirnir fyrir
Settu heilsuna í forgang
Mikilvægt er að huga að heilsunni sérstaklega á tímum kórónaveirunnar. Svefn, hreyfing, matar
æði og andleg heilsa skipta mestu máli, ásamt því að huga vel að því að styrkja ónæmiskerfið.
Jurtir og önnur
náttúruefni
hafa verið
notuð í gegnum
aldirnar til að
bæta heilsu
okkar og efla
varnir líkamans.
heilsuna og varnir líkamans. Við
þurfum fjölbreyttan og næringar-
ríkan mat til að líkaminn fái öll
þau næringarefni sem hann þarf
á að halda en einnig er hægt að
tryggja það með því að taka inn
bætiefni. Jurtir og önnur náttúru-
efni hafa verið notuð í gegnum
aldirnar til að bæta heilsu okkar
og efla varnir líkamans og hafa
mörg af þessum náttúruefnum
verið rannsökuð og virkni þeirra
staðfest.
Beta Glucan Immune support+
er dæmi um háþróuð bætiefni frá
Natures Aid sem inniheldur afar
öfluga blöndu af jurtum, víta-
mínum og steinefnum sem efla
ónæmiskerfi líkamans og varnir
okkar gegn sýkingum.
Beta glúkan er í aðalhlutverki
í þessari ónæmisstyrkjandi
blöndu en það er tegund af upp-
leysanlegum trefjum sem geta
haft jákvæð áhrif ónæmiskerfið og
einnig á kólesteról og hjartaheilsu.
Beta glúkan finnst m.a. í heilkorni,
höfrum, byggi og sumum sveppa-
tegundum eins og maitake- og
reishi-sveppum.
Beta Glucan Immune support
inniheldur einnig aðrar þekktar
lækningajurtir eins og hvítlauk,
sem er þekktur fyrir að veita vörn
gegn vírusum, og ylli sem hefur
öldum saman verið notuð til að
styrkja ónæmiskerfið.
Önnur virk innihaldsefni eru til
að mynda steinefnin selen og sink,
ásamt A-, D-, og C-vítamínum sem
öll eiga það sameiginlegt að vera
mikilvæg fyrir varnir líkamans.
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og Hagkaupi.
Beta glúkan getur
haft jákvæð áhrif
ónæmiskerfið og einnig
á kólesteról og hjarta-
heilsu.
Loksins
aftur
fáanlegt
Kannast þú við þetta vandamál?
• Lítil eða slöpp þvagbuna
• Tíð þvaglát
• Næturþvaglát
• Erfitt að hefja þvaglát
• Þvaglegi eða erfitt að stöðva þvaglát
• Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir það síðasta
• Sviði eða sársauki við þvaglát
Getur veitt lausn gegn tíðum þvaglátum
sem verða vegna góðkynja stækkunar frá
blöðruhálskirtli.
™
Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 0