Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201938
LÍF&STARF
Helga KristínSnæbjörnsdóttir ráðin verkefnastjóri nýs Rannsóknarseturs um sveitarstjórnarmál á Laugarvatni:
Snýst um aukna upplýsingamiðlun, námskeiðahald
fyrir fulltrúa stjórnsýslunnar og stefnumótun
Helga Kristín Sæbjörnsdóttir
hefur verið ráðin verkefnisstjóri
nýs Rannsóknaseturs um
sveitarstjórnarmál sem hefur
tekið til starfa á Laugarvatni
í húsnæðinu þar sem
íþróttafræðasetur Háskóla Íslands
var áður á Laugarvatni.
–– Ríkið leggur 36 milljónir
króna til nýja setursins næstu þrjú
árin. En hver er Helga Kristín og út
á hvað gengur nýja starfið?
„Ég er fædd í Reykjavík en
ólst upp á Egilsstöðum í eldri
hluta bæjarins í nálægð við
Egilsstaðabýlið og með útsýni til
Snæfells. Ég kláraði stúdentspróf við
Menntaskólann á Egilsstöðum, kom
við á Hólum í Hjaltadal þar sem ég
nam ferðamálafræði og lauk þaðan
diplomaprófi. Síðan lá leiðin um allar
trissur en ég endaði á Laugarvatni
þar sem ég hóf nám í íþróttafræði
við Kennaraháskólann sem varð
svo að Háskóla Íslands meðan á
náminu stóð. Ég lauk námi í íþrótta-
og heilsufræði með kennararéttindi
2010. Ég og maðurinn minn, Bjarni
D. Daníelsson, drifum okkur
saman í meistaranám en við fórum
í fjarnám í forystu og stjórnun við
Háskólann á Bifröst haustið 2016 og
útskrifuðumst árið 2018, ég í febrúar
en hann í ágúst.“
Helga Kristín og Bjarni kynntust
í gegnum Björgunarsveitina Ingunni
á Laugarvatni þar sem hann sinnti
formennsku. Þau bjuggu í Miðdal
þar til sumarið 2017 þegar þau fluttu
á Laugarvatn. Saman eiga þau tvö
börn, Theodóru Þuríði, fædda 2010
og Arnald Inga, fæddan 2012. Bjarni
átti þrjú börn fyrir sem eru í dag
orðin stálpuð og búa í Reykjavík
og Danmörku. Fjölskyldan á einnig
heimilisvininn og hundinn Lísu.
Langar að hafa jákvæð áhrif á
stjórnsýsluna
– En hvað kom til að Helga Kristín
ákvað á sækja um nýja starfið á
Laugarvatni?
„Mig langaði að breyta til og
láta til mín taka á nýjum vettvangi.
Í gegnum námið á Bifröst jókst áhugi
minn á stjórnun og þá sérstaklega
breytinga- og krísustjórnun. Þegar
ég skrifaði meistaraverkefnið mitt
las ég mikið um hið opinbera og
þá starfsemi sem á sér stað innan
stjórnsýslunnar og það vakti áhuga
minn. Þar að auki þurfti ég að hafa
samband við nokkur sveitarfélög í
tengslum við rannsóknina mína sem
fjallaði um innleiðingu heilsueflandi
samfélags í opinberum rekstri. Sú
upplifun var áhugaverð og jókst þá
áhugi minn enn frekar á starfsemi
opinberra stofnana. Mig langar að
hafa jákvæð áhrif á stjórnsýsluna
og það verður mitt markmið með
starfinu sem leggst afar vel í mig.“
Upplýsingamiðlun, námskeið og
stefnumótun
Helga Kristín segir að starfið sé
nýtt og í mótun og því erfitt að
segja nákvæmlega út á hvað það
gangi en ákveðin sýn sé þó komin
á hlutina sem á eftir að festa betur
í stefnu og markmiðasetningu fyrir
Rannsóknasetrið.
„Í mjög stuttu máli sagt er aukin
upplýsingamiðlun, námskeiðahald
fyrir fulltrúa stjórnsýslunnar og
stefnumótun þó stór partur af því sem
fram undan er, auk þess að styðja
þarf vel við rannsóknir og þróun í
stjórnsýslufræðum. Þau verkefni
sem unnið verður að til að byrja
með munu miðast við þessa þætti
meðal annars, en listinn er langur og
skemmtilegur og af nógu að taka. Ég
verð ein með aðsetur á Laugarvatni
en í góðu samstarfi við fulltrúa okkar
innan félagsvísindadeildar Háskóla
Íslands. Teymisvinna er mikilvæg
í starfi sem þessu og mun ég því
ferðast eitthvað á milli,“ segir Helga
Kristín.
Horfir á pólitík með opnu
hugarfari
Þegar Helga Kristín er spurð um
áhuga sinn á sveita rstjórnar málum
er hún ekki lengi að svara.
„Já, mér finnst sveitar-
stjórnarmál mjög áhugaverð.
Uppbygging sveitarfélaganna er
svo fjölbreytt en samt þurfa allir
að starfa innan sama ákveðna
ramma. Svo bætist við rekstur
og samkeppni einkaaðila sem
veitir þessu enn meiri fjölbreytni
og flækjustigið eykst þegar
horft er á stærð og ekki síður
staðsetningu. Þessi fjölbreytni
í annars hægu umhverfi getur
verið mjög áhugaverð og margir
sem geta lært af reynslu og
þekkingu annarra þegar kemur
að sveitarstjórnarmálum. Ég hef
aldrei setið í sveitarstjórn, er
óflokksbundin og reyni frekar
að horfa á pólitík með opnu
hugarfari.“
Efla þarf landsbyggðina
Helga Kristín segir mjög brýnt
að efla sveitarstjórnarstigið enda
sé það mjög mikilvægt í íslensku
samfélagi. Öllum sveitarfélögum
ber jú að veita grunnþjónustu óháð
kostnaði og hlúa að íbúum á þann
hátt að það sé eftirsóknarvert að búa
og starfa innan hvers sveitarfélags.
„Mér finnst það í raun og veru
segja allt sem þarf. Ef kjörnir
fulltrúar eru ekki samvinnuþýðir
til uppbyggingar þá er ólíklegt að
fólk vilji staldra við. Kröfur um
þjónustu hafa aukist á sama tíma
og þjónusta dregst saman og það
er töluvert á skjön við það sem
ætti að vera. Það verður að vera
öflugt samstarf hagsmunaaðila og
vilji til samvinnu því bæjarfélögin
byggja oftar en ekki á krafti
fólksins. Ef fólkið er ekki til
staðar þá er ekki mikil orka í
sveitarstjórnarmálum og hlutir
komast síður í framkvæmd.
Að mínu mati þarf að efla
landsbyggðina og ýta undir
þekkingu og reynslu þeirra sem
þar vilja búa en fyrst verður að
tryggja að grunnþjónusta sé til
staðar.“
Fyrstu verkefnin
Fyrstu verkefni Helgu Kristínar
eru að hitta samstarfsfólk sitt í
Reykjavík hjá Háskóla Íslands og
koma sér svo fyrir á Laugarvatni.
Fram undan er frekari
stefnumótun og markmiðasetning
fyrir Rannsóknasetrið, sækja þarf
um styrki til frekari rannsókna
og efla upplýsingamiðlun. Hún
segist reikna fastlega með því að
verkefnum verði forgangsraðað
fljótlega eftir að formleg opnun
setursins er afstaðin.
Staðsetningin frábær á
Laugarvatni
– En hvað með staðsetningu
nýja Rannsóknasetursins á
Laugarvatni, er það heppilegur
staður undir svona starfsemi?
„Já, staðsetningin er frábær
því við höfum mjög gott húsnæði
sem nýtist undir ráðstefnur,
styttri námskeið eða lengri og
kennslu. Auk þess höfum við
flotta möguleika á gistingu,
frábært drífandi umhverfi í
kyrrðinni og yndislegt útsýni
og möguleika á útiveru. Í dag
fer mikið af samskiptum fram
í gegnum netið og því skiptir
staðsetningin ekki öllu máli hvað
varðar upplýsingamiðlun. En
tækifærin eru ótal mörg og styrkir
samfélagið okkar hérna enn
frekar,“ segir Helga Kristín um
leið og hún hvetur alla áhugasama
að kíkja inn á Facebook-
síðuna sem heitir einfaldlega;
„Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála“ og svo er líka hægt
að fara inn á heimasíðuna www.
stjornsyslustofnun.hi.is /MHH
Helga Kristín sem er fædd í Reykjavík
en ólst upp á Egilsstöðum. Í dag býr
hún á Laugarvatni með eiginmanni
og börnum. Mynd / Ívar Sæland
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sveitarstjórnarmála, undirrituðu
samning um nýja rannsóknar- og fræðasetrið á Laugarvatni í haust á ársfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Nýja
setrið er hluti af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands en stofnunin og stjórnmálafræðideild
skólans hafa lagt áherslu á rannsóknir á sviði sveitarstjórnarmála. Mynd /Magnús Hlynur Hreiðarsson
Helga Kristín að róla með Theodóru
Þuríði og Arnaldi Inga í skóginum á
Laugarvatni. Mynd / einkasafn
Fjölskyldan fagnar hér afmæli Bjarna Dan í Perlunni, talið frá vinstri: Bjarni Daníel Daníelsson, Bjarni Smári Nordby
Bjarnason, Þorsteinn Bjarnason, Daníela Karen Bjarnadóttir, Helga Kristín Sæbjörnsdóttir, Arnaldur Ingi Bjarnason
og Theodóra Þuríður Bjarnadóttir. Mynd / einkasafn
Helga Kristín og Bjarni Dan giftu
sig 25. júlí 2015, mynd tekin við
Laugarvatn. Mynd / einkasafn