Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 39 ...frá heilbrigði til hollustu Breytingar á regluverki í landbúnaði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, undirritaði fjórar reglugerðir í landbúnaði 20. desember sl. sem tóku gildi frá og með 1. janúar 2019. Um er að ræða regluverk í tengslum við framkvæmd á búvörusamningum milli ríkis og bænda. Reglugerðirnar eru að mestu óbreyttar á milli ára, en þetta eru reglugerðir um almennan stuðning við landbúnað nr. 1260/2018, um stuðning við nautgriparækt nr. 1261/2018, um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1262/2018 og um stuðning við garðyrkju nr. 1263/2018. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vann að endurskoðun reglugerðanna í samstarfi við búnaðarstofu Matvælastofnunar og Bænda- samtök Íslands. Þó að ekki hafi verið gerðar grundvallarbreytingar á regluverkinu, þá þurfti að gera ákveðnar breytingar í ljósi reynslunnar og skal gerð grein fyrir helstu breytingum í þessari grein. Þak sett á tilboð um kaup á greiðslumarki í mjólk Í reglugerð um stuðning við nautgriparækt er sett þak á það magn sem framleiðandi getur óskað eftir kaupum á. Þakið er 100.000 lítrar á búsnúmer sem framleiðandi getur óskað eftir á hverjum innlausnardegi. Þessi breyting er gerð þar sem tilboð um kaup á greiðslumarki var komið upp úr öllu valdi, og t.a.m. óskaði einn framleiðenda á síðasta ári eftir kaupum á 145 milljónir lítra, það er allt heildargreiðslumark mjólkur í landinu. Úthlutun greiðslumarks sem er í boði hverju sinni er skipt hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem framleiðandi óskaði eftir. Þá var innlausnardögum fækkað úr fjórum í þrjá. Innlausnardagar eru þá 1. mars, 1. maí og 1. nóvember. Á síðasta ári var tekið fyrir tilfærslu greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila, sem var undanþága frá meginreglu laga um að aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur eru óheimil. Heildargreiðslumark mjólkur á framleiðsluárinu 2019 verður óbreytt, eða 145 milljónir lítra, og framleiðsluskylda verður áfram 95%. Í reglugerðinni um stuðning við nautgriparækt eru skilgreiningar á mjólkurkúm og holdakúm gerðar ítarlegri í tengslum við gripagreiðslurnar. Þýðingarmikið er að bændur yfirfari skráningar á stofni og framleiðsluformi í HUPPU, skýrsluhaldskerfinu í nautgriparækt. Í fjárfestingarstuðningi í nautgriparækt og sauðfjárrækt er tæknibúnaður, sem ekki getur talist fylgifé fasteignar lögum skv., ekki styrkhæfur. Það hefur skapað ákveðna óvissu með hvaða tæknibúnaður er styrkhæfur, og hver ekki, en nú er þetta skýrt í reglugerðinni. Stuðningsgreiðslum í sauðfjárrækt flýtt Ráðherra ákvað með setningu nýrrar reglugerðar að fyrsta greiðsla stuðningsgreiðslna yrði um miðjan janúar í stað febrúar áður. Búnaðarstofa mun greiða mánaðargreiðslur fyrir janúar og febrúar, og næsta greiðsla, sem verður einnig tvöföld (mars og nóvember mánaðargreiðsla), verður þá fyrsta virkan dag í marsmánuði. Greiðslan í janúar byggir á bráðabirgðaársáætlun búnaðarstofu, sem verður endurskoðuð fyrir greiðslu í mars. Ársuppgjör stuðningsgreiðslna í sauðfjárrækt fyrir árið 2018 verður síðan að venju í febrúar. Hvað varðar svæðisbundinn stuðning í sauðfjárrækt þá er bráðabirgðaákvæði um 250 ær fallið úr gildi. Rétthafar stuðnings er þá þeir framleiðendur sem eiga 300 vetrarfóðraðar kindur eða fleiri samkvæmt haustskýrslu 2018. Framleiðendur í Árneshreppi þurfa þó aðeins að eiga 100 vetrarfóðraðar kindur eða fleiri. Umsóknarfrestur jarðræktarstyrkja og landgreiðslna verður 1. október Umsóknarfrestur jarðræktar- styrkja og landgreiðslna er færður fram um 3 vikur, eða frá 20. október til 1. október. Þetta er gert til að lengri tími vinnist til úttektarvinnu, sem búnaðarsambönd annast í umboði Matvælastofnunar. Á móti kemur að bændur þurfa að ganga frá umsóknum fyrr. Ef veðurfar var slæmt undir lok ársins gat reynst erfitt fyrir úttektarfólk að fara í vettvangsheimsóknir á tímabilinu 20. október til 15. nóvember. Heimilt er að vettvangsúttekt fari einungis fram með tilviljunarkenndu úrtaki, óháð umfangi ræktunar. Ef til staðar eru fullnægjandi gervihnattamyndir af umsóttum spildum, sem nægja til úttektar á umsókn, telst það fullgild vettvangsúttekt. Framkvæmdanefnd búvöru- samninga ákvað fyrir áramót að bæta tjón vegna ágangs álfta og gæsa á árinu 2019. Það er í fyrsta skipti sem slíkt verður gert. Fjármunir verða teknir af potti fyrir jarðræktarstyrki. Umhverfisstofnun er hinn faglegi aðili sem leggur mat á úttektarvinnu í tengslum við bæturnar í samvinnu við búnaðarstofu Matvælastofnunar. Ráðherra styrkti reglugerð um almennan stuðning við landbúnað hvað varðar þennan stuðning. Bændur skuli skila inn rafrænni tjónaskýrslu um leið og tjóns verður vart í umsóknarkerfi Matvælastofnunar, þó eigi síðar en 20. október á því ári sem tjón verður. Bætt verður hlutfallslegt tjón á uppskeru vegna ágangs álfta og gæsa. Þá er rétt að vekja athygli á að nýting kornhálms til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis telst styrkhæf og að ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári en ekki uppskeruári eins og áður. Umsóknarfrestur nýliðunar- stuðnings í landbúnaði breytist, færist til 1. september og skal búnaðarstofa svara umsóknum fyrir 1. desember. Bændur eru hvattir til að kynna sér vel allar reglugerðirnar til að kynna sér alla umsóknarfresti og reglur í tengslum við stuðnings- greiðslurnar. Reglugerðirnar má finna á heimasíðu Matvælastofnunar undir Lög og reglur. Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri búnaðarstofu Matvælastofnunar. Jón Baldur Lorange. Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Flogið í beinu flugi til Bergen með Icelandair, gist í 4 nætur í Bergen. Ferðin er stútfull af áhugaverðri dagskrá og hér má sjá brot af því sem þátttakendur munu upplifa: • Heimsækjum bændur sem selja beint frá býli og fáum þjóðlegar veitingar • Fáum leiðsögn um safn og heimili tónskáldsins Edvard Grieg, Troldhaugen • Fögnum þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17. maí, með innfæddum. Einstök upplifun að vera í Noregi á þjóðhátíðardegi heimamanna • Förum í siglingu og hátíðarkvöldverð á hinum margrómaða Cornelius-veitingastað • Tökum lest um fallegustu lestarleið í heimi með Flåmsbana. • Siglum inn Nærøyfjorden í Sognafirði sem er á heimsminjaskrá UNESCO Verð á mann í tvíbýli: 151.630,- Verð á mann í einbýli: 174.030,- (Allt innifalið fyrir utan hádegisverðir og einn kvöldverður ásamt drykkjum) Fararstjóri: Erla Hjördís Gunnarsdóttir, epla- og eggjabóndi í Harðangursfirði í Noregi og blaðamaður Bændablaðsins. Skráning á erlagunn@gmail.com fyrir 15. janúar 2019. Fyrir frekari upplýsingar og ferðadagskrá er hægt að senda tölvupóst á erlagunn@gmail.com eða í símum 563-0320 og 0047 923 16 250. Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.