Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 2019 39
...frá heilbrigði til hollustu
Breytingar á regluverki í landbúnaði
Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, undirritaði fjórar
reglugerðir í landbúnaði 20.
desember sl. sem tóku gildi frá
og með 1. janúar 2019.
Um er að ræða regluverk
í tengslum við framkvæmd á
búvörusamningum milli ríkis
og bænda. Reglugerðirnar
eru að mestu óbreyttar á milli
ára, en þetta eru reglugerðir
um almennan stuðning við
landbúnað nr. 1260/2018, um
stuðning við nautgriparækt nr.
1261/2018, um stuðning við
sauðfjárrækt nr. 1262/2018 og
um stuðning við garðyrkju nr.
1263/2018. Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið vann
að endurskoðun reglugerðanna
í samstarfi við búnaðarstofu
Matvælastofnunar og Bænda-
samtök Íslands.
Þó að ekki hafi verið
gerðar grundvallarbreytingar
á regluverkinu, þá þurfti að
gera ákveðnar breytingar í ljósi
reynslunnar og skal gerð grein
fyrir helstu breytingum í þessari
grein.
Þak sett á tilboð um kaup á
greiðslumarki í mjólk
Í reglugerð um stuðning við
nautgriparækt er sett þak á það
magn sem framleiðandi getur
óskað eftir kaupum á. Þakið er
100.000 lítrar á búsnúmer sem
framleiðandi getur óskað eftir á
hverjum innlausnardegi. Þessi
breyting er gerð þar sem tilboð um
kaup á greiðslumarki var komið
upp úr öllu valdi, og t.a.m. óskaði
einn framleiðenda á síðasta ári
eftir kaupum á 145 milljónir lítra,
það er allt heildargreiðslumark
mjólkur í landinu. Úthlutun
greiðslumarks sem er í boði
hverju sinni er skipt hlutfallslega í
samræmi við þann lítrafjölda sem
framleiðandi óskaði eftir.
Þá var innlausnardögum
fækkað úr fjórum í þrjá.
Innlausnardagar eru þá 1. mars,
1. maí og 1. nóvember.
Á síðasta ári var tekið fyrir
tilfærslu greiðslumarks milli
lögbýla í eigu sama aðila, sem var
undanþága frá meginreglu laga
um að aðilaskipti að greiðslumarki
mjólkur eru óheimil.
Heildargreiðslumark mjólkur
á framleiðsluárinu 2019 verður
óbreytt, eða 145 milljónir lítra, og
framleiðsluskylda verður áfram
95%.
Í reglugerðinni um stuðning við
nautgriparækt eru skilgreiningar
á mjólkurkúm og holdakúm
gerðar ítarlegri í tengslum við
gripagreiðslurnar. Þýðingarmikið
er að bændur yfirfari skráningar
á stofni og framleiðsluformi í
HUPPU, skýrsluhaldskerfinu í
nautgriparækt.
Í fjárfestingarstuðningi í
nautgriparækt og sauðfjárrækt
er tæknibúnaður, sem ekki getur
talist fylgifé fasteignar lögum
skv., ekki styrkhæfur. Það hefur
skapað ákveðna óvissu með hvaða
tæknibúnaður er styrkhæfur, og
hver ekki, en nú er þetta skýrt í
reglugerðinni.
Stuðningsgreiðslum í
sauðfjárrækt flýtt
Ráðherra ákvað með setningu
nýrrar reglugerðar að fyrsta
greiðsla stuðningsgreiðslna yrði
um miðjan janúar í stað febrúar
áður. Búnaðarstofa mun greiða
mánaðargreiðslur fyrir janúar og
febrúar, og næsta greiðsla, sem
verður einnig tvöföld (mars og
nóvember mánaðargreiðsla),
verður þá fyrsta virkan dag í
marsmánuði. Greiðslan í janúar
byggir á bráðabirgðaársáætlun
búnaðarstofu, sem verður
endurskoðuð fyrir greiðslu í mars.
Ársuppgjör stuðningsgreiðslna
í sauðfjárrækt fyrir árið 2018
verður síðan að venju í febrúar.
Hvað varðar svæðisbundinn
stuðning í sauðfjárrækt þá er
bráðabirgðaákvæði um 250
ær fallið úr gildi. Rétthafar
stuðnings er þá þeir framleiðendur
sem eiga 300 vetrarfóðraðar
kindur eða fleiri samkvæmt
haustskýrslu 2018. Framleiðendur
í Árneshreppi þurfa þó aðeins að
eiga 100 vetrarfóðraðar kindur
eða fleiri.
Umsóknarfrestur
jarðræktarstyrkja og
landgreiðslna verður 1. október
Umsóknarfrestur jarðræktar-
styrkja og landgreiðslna er
færður fram um 3 vikur, eða
frá 20. október til 1. október.
Þetta er gert til að lengri tími
vinnist til úttektarvinnu, sem
búnaðarsambönd annast í umboði
Matvælastofnunar. Á móti kemur
að bændur þurfa að ganga frá
umsóknum fyrr.
Ef veðurfar var slæmt undir
lok ársins gat reynst erfitt
fyrir úttektarfólk að fara í
vettvangsheimsóknir á tímabilinu
20. október til 15. nóvember.
Heimilt er að vettvangsúttekt
fari einungis fram með
tilviljunarkenndu úrtaki, óháð
umfangi ræktunar. Ef til staðar eru
fullnægjandi gervihnattamyndir
af umsóttum spildum, sem nægja
til úttektar á umsókn, telst það
fullgild vettvangsúttekt.
Framkvæmdanefnd búvöru-
samninga ákvað fyrir áramót
að bæta tjón vegna ágangs álfta
og gæsa á árinu 2019. Það er í
fyrsta skipti sem slíkt verður
gert. Fjármunir verða teknir
af potti fyrir jarðræktarstyrki.
Umhverfisstofnun er hinn
faglegi aðili sem leggur mat
á úttektarvinnu í tengslum
við bæturnar í samvinnu við
búnaðarstofu Matvælastofnunar.
Ráðherra styrkti reglugerð um
almennan stuðning við landbúnað
hvað varðar þennan stuðning.
Bændur skuli skila inn rafrænni
tjónaskýrslu um leið og tjóns
verður vart í umsóknarkerfi
Matvælastofnunar, þó eigi síðar
en 20. október á því ári sem tjón
verður. Bætt verður hlutfallslegt
tjón á uppskeru vegna ágangs álfta
og gæsa.
Þá er rétt að vekja athygli á að
nýting kornhálms til uppræktunar
jarðvegs í útiræktun grænmetis
telst styrkhæf og að ræktun
vetraryrkja sem sáð er um mitt
sumar og endurræktun túna er
tekin út á ræktunarári en ekki
uppskeruári eins og áður.
Umsóknarfrestur nýliðunar-
stuðnings í landbúnaði breytist,
færist til 1. september og skal
búnaðarstofa svara umsóknum
fyrir 1. desember.
Bændur eru hvattir til að kynna
sér vel allar reglugerðirnar til að
kynna sér alla umsóknarfresti og
reglur í tengslum við stuðnings-
greiðslurnar. Reglugerðirnar
má finna á heimasíðu
Matvælastofnunar undir Lög og
reglur.
Jón Baldur Lorange,
framkvæmdastjóri
búnaðarstofu
Matvælastofnunar.
Jón Baldur Lorange.
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
Flogið í beinu flugi til Bergen með Icelandair, gist í 4 nætur í Bergen. Ferðin er stútfull af áhugaverðri
dagskrá og hér má sjá brot af því sem þátttakendur
munu upplifa:
• Heimsækjum bændur sem selja beint frá býli og
fáum þjóðlegar veitingar
• Fáum leiðsögn um safn og heimili tónskáldsins
Edvard Grieg, Troldhaugen
• Fögnum þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17. maí, með innfæddum. Einstök upplifun að vera í Noregi á
þjóðhátíðardegi heimamanna
• Förum í siglingu og hátíðarkvöldverð á hinum margrómaða Cornelius-veitingastað
• Tökum lest um fallegustu lestarleið í heimi með Flåmsbana.
• Siglum inn Nærøyfjorden í Sognafirði sem er á heimsminjaskrá UNESCO
Verð á mann í tvíbýli: 151.630,-
Verð á mann í einbýli: 174.030,-
(Allt innifalið fyrir utan hádegisverðir og einn kvöldverður ásamt drykkjum)
Fararstjóri: Erla Hjördís Gunnarsdóttir, epla- og eggjabóndi í Harðangursfirði í Noregi og blaðamaður
Bændablaðsins. Skráning á erlagunn@gmail.com fyrir 15. janúar 2019.
Fyrir frekari upplýsingar og ferðadagskrá er hægt að senda tölvupóst á erlagunn@gmail.com
eða í símum 563-0320 og 0047 923 16 250.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300