Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201946
Af jeppum og jepplingum voru
prófaðir níu bílar. Hagstæðustu
kaupin eru sennilega í Dacia
Duster sem kostar ekki nema um
fjórar milljónir. Af þessum níu
bílum flokka ég aðeins einn þeirra
sem jeppa, en til að ég kalli bíl
jeppa þarf hann að vera byggður á
grind og vera með hátt og lágt drif.
Þessi bíll er Suzuki Jimmy sem
verður tilbúinn til afhendingar
nýjum eigendum í byrjun árs 2019.
Jeep besti jepplingurinn
Mitsubishi Outlanderinn sem ég
hef í tvígang kosið besta bíl ársins
er vissulega góður og nokkuð
örugglega sá ódýrasti í rekstri af
þeim jepplingum sem prófaðir
voru, en tækninýjungar frá öðrum
bílaframleiðendum og þægindi settu
Outlander í þriðja sæti hjá mér.
Lokavalið stendur á milli Jaguar
E-Pace og Jeep Grand Cherokee
Trailhawk sem var 33 tommu
breyttur. Jaguarinn var óbreyttur
og kostar frá tæpum 6–10 milljónir
og er hreinn unaður að keyra. Jeep-
bíllinn var vissulega eigulegri og
vel útbúinn til aksturs á íslenskum
vegum og því vel ég hann sem
skemmtilegasta jepplinginn.
Pallbílar
Ekki voru nema þrír pallbílar
prófaðir á síðasta ári og líktust ekkert
hver öðrum. Þetta voru IVECO
(hálfgert torfærutröll), Benz X-Class
og MMC L200 pallbíll með minna
húsi en í flestum pallbílum. Mjög
ólíkir í alla staði og hver þeirra með
sérstaka eiginleika. Þó að Benz
pallbíllinn hafi verið með minnsta
pallinn fannst mér hann eigulegastur
af pallbílunum.
Fólksbílar
Fimm fólksbílar voru prófaðir og
af þeim var einn fjórhjóladrifinn
rafmagnsbíll. Hagstæðustu kaupin
eru klárlega í Dacia Sandero sem er
í verðflokki smábíla, en er miðlungs
fólksbíll með ótrúlega mikið pláss og
kostar aðeins 1.990.000. Hins vegar
var Jaguar I-Pace rafmagnsbíllinn
sem kom hingað til lands sem
frumgerð (prototype) og var
prófaður við íslenskar aðstæður
á haustmánuðum langsamlega
skemmtilegasti bíllinn sem ég
prófaði á síðasta ári, 400+ hestöfl
og kemst yfir 400 km á hleðslu. Þessi
bíll er nú að fara í framleiðslu og
ætti að vera tilbúinn til afhendingar í
mars/apríl á þessu ári og kostar hann
um 12 milljónir.
Vinnutæki
„Þrír“ traktorar voru prófaðir, lítill
og stór og það sem ég kaus að kalla
„Bóndabíl“, en morgunstrákarnir
á útvarpsstöðinni Bylgjunni voru
eitthvað ósáttir við nafnbótina og
vildu kalla hann „Golfbíl“. Báðir
hefðbundnu traktorarnir voru
vel brúklegir á sinn hátt, en þann
stærri mundi ég velja til vinnu.
„Bóndabílinn“ væri ég alveg til í
að eiga sérstaklega eins og hann var
afhentur nýjum eiganda sínum, en þá
var búið að setja hann á belti sem eru
sérstaklega ætluð til aksturs á snjó,
en gagnast líka vel í miklu votlendi.
Einnig prófaði ég sexhjól frá Polaris,
en vélin í því var ekki nema 570 cc.
Þrátt fyrir litla vél vann það vel við
að skafa snjó og krapa.
Mótorhjól og leiktæki
Þrjú gjörólík mótorhjól voru prófuð,
aðeins eitt þeirra mundi gagnast sem
vinnutæki í smölun, en það hjól var
Beta 300 tvígengis torfæruhjól með
götuskráningu og kostar ekki nema
rúma milljón. KTM 1090 ferðahjól,
sem er vissulega eigulegur gripur,
en of kraftmikið fyrir mig, 125
hestöfl hefðu hentað mér fyrir
10–15 árum, en ekki í dag. Síðasta
hjólið var indverskt og er alhliða
hjól fyrir malbikaða og malarvegi,
en er ekki nema 25 hestöfl og er
hjól sem hentar vel fyrir byrjendur
í mótorhjólaakstri og þá sem ekki
eru að flýta sér of mikið og er
ódýrt mótorhjól. Mesta leiktækið
sem prófað var var án efa Arctic
Cat Textron Off Road Buggy sem er
kraftmikið og skemmtilegt leikfang
fyrir hestaflasjúka og áhættufíkla
sem vilja upplifa kraft og góða
fjöðrun vinna saman.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Suzuki Jimmy er eini alvöru jeppinn sem var prófaður, á grind með hátt og lágt drif. Myndir / HLJ
Jeep er bíll ársins í sínum okki. Hann er eigulegur 33 tommu breyttur
jepplingur.
Hagstæðustu fólksbílakaupin eru klárlega í Dacia Sandero.
Jaguar I-Pace rafmagnsbíllinn sem kom hingað til lands sem frumgerð
(prototype) var langsamlega skemmtilegasti bíllinn sem ég prófaði.
Bóndabíllinn eins og ég kaus að kalla álitlegasta vinnutækið.
Polaris sexhjólið gat mun meira en ég gerði mér í hugarlund.
Arctic Cat Textron Off Road Buggy
er skemmtilegasta leiktækið.
Það kom mér á óvart hversu auðvelt
var að keyra þetta Beta 300 tvígengis
torfæruhjól við mismunandi aðstæður.