Bændablaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. janúar 201928
KÚABÚSKAPUR&MJÓLKURFRAMLEIÐSLA
Greinargerð RHA – Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri – um greiðslumark mjólkur:
Býlum með greiðslumark hefur fækkað
um rúm 40% frá árinu 2000
– Gera höfundar ráð fyrir að greiðslumarkið haldi áfram og að starfræktur verði miðlægur kvótamarkaður
RH – Rannsóknamiðstöð
Háskólans á Akureyri – vann
greinargerð fyrir Bændasamtök
Íslands og Landssamband
kúabænda á síðasta ári um
greiðslumark mjólkur og tillögur
og leiðir vegna sölu og kaupa á
kvóta. Greinargerðin var gefin
út í desember síðastliðnum og í
niðurstöðum er gengið út frá því að
að greiðslumark haldi áfram eftir
endurskoðun búvörusamninga
2019.
Höfundar greinargerðarinnar eru
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, Helga
Einarsdóttir, Hjalti Jóhannesson og
Vífill Karlsson. Í þessari greinargerð
eru reifaðir helstu kostir og gallar
fyrrverandi kerfa og þau áhrif sem
leiðirnar hafa haft í för með sér,
samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
Þar er fjallað um áhrif á fjölda og
stærð býla í mjólkurframleiðslu,
mannfjöldaþróun, verðlag á
greiðslumarki og fleira. Að beiðni
verkkaupa voru einnig skoðaðar
mögulegar útfærslur á viðskiptum
með greiðslumark og gerð grein fyrir
líklegum kostum og göllum hverrar
leiðar fyrir sig.
Sérstaða íslensks landbúnaðar
Í niðurstöðum höfunda segir að
íslenskur landbúnaður hafi sérstöðu
hvað varðar ræktunarskilyrði og
langa vetur, sem krefjist vandaðra
húsa fyrir mjólkurkýr. Þá séu gerðar
miklar kröfur um velferð dýra og
heilnæmi afurða. Þá segja þau
jafnframt:
„Gert er ráð fyrir kvótamarkaði
sem MAST héldi utan um, líkt og
þann sem var starfræktur 2010 til
2016, sem felst í frjálsri verðlagningu
sem ræðst af framboði og eftirspurn.
Þá er miðað við að ákveðið þak verði
á hámarksgreiðslumarki til hvers og
eins. Tekið er tillit til byggðastefnu
þannig að mjólkurframleiðslan
safnist ekki enn frekar á örfá svæði
á landinu og að sem tilbrigði við
leið A verði leið sem við köllum
A1, sem gengur lengra. Þar er gert
ráð fyrir samskonar kerfi framsals
og í leið A en til þess að minnka
landfræðilega samþjöppun á
greiðslumarki væri skoðað að taka
upp t.d. fjögur greiðslumarkssvæði
á landinu, þar sem ekki verði heimilt
að flytja greiðslumark á milli eða
hafa tiltekið hámark, sem hvert
greiðslumarkssvæði má hafa.
Annað tilbrigði, sem við köllum
A2, gengur lengra og miðar við
að frekari áhersla verði lögð á að
viðhalda rekstri fjölskyldubúa.
Settar verði hömlur á að fyrirtæki
fái þann ríkisstuðning sem
felst í greiðslumarki og keppi
við fjölskyldubú um það, s.s.
fyrirtæki í lóðréttu eignarhaldi
annarra eða í eigu lögaðila sem
eru í ótengdum rekstri. Gert er ráð
fyrir að mögulegar lánveitingar
vegna kaupa á greiðslumarki komi
frekar frá fjármálafyrirtækjum eða
sjóðum en frá fyrirtækjum í öðrum
rekstri, þar sem slíkt getur skekkt
samkeppnisstöðu bænda og svæða.“
Helstu niðurstöður
• Breytingar í landbúnaði
valda öðrum samfélags- og
efnahagslegum breytingum
sem verður mest vart í dreifbýli
en þó einnig í þéttbýli þar
sem þjónustu við landbúnað
og dreifbýl héruð er sinnt.
Samþjöppun hefur orðið í
landbúnaði og jarðir færst
á færri hendur. Fólki hefur
fækkað í sveitum og samsetning
mannfjöldans breyst sem kemur
fram í mikilli fækkun barna.
Þetta hefur áhrif á þjónustu og
fleira.
• Mjólkurframleiðsla og
annar landbúnaður er
grunnatvinnuvegur og forsenda
búsetu víða í sveitum. Árið
1985 var fullvirðisréttur
tekinn upp sem átti að tryggja
bændum fullt verð fyrir ákveðið
magn af mjólk. Árið 1992 var
greiðslumark innleitt í stað
fullvirðisréttar og frjálst framsal
á greiðslumarki mjólkur var
heimilað. Settur var upp
miðlægur tilboðsmarkaður
fyrir greiðslumark árið 2010
sem MAST annaðist. Árið 2016
var sett fast verð á greiðslumark
• Býlum með greiðslumark hefur
fækkað um rúm 40% frá árinu
2000 og hafa býlin stækkað.
Árið 2000 voru samtals 1.023
býli með greiðslumark en 597
árið 2017. Fjórir landshlutar
voru með 93% greiðslumarks
árið 2017, bú á Suðurlandi með
40%,Norðurland eystra með
25%, Norðurland vestra 16%
og Vesturland 13%.
• Hér er gengið út frá því sem
megin leið, sem við köllum
Leið A að greiðslumark haldi
áfram eftir endurskoðun
búvörusamninga 2019.
Gert er ráð fyrir miðlægum
kvótamarkaði, líkt og þeim sem
var starfræktur á vegum MAST
2010 til 2016, þar sem verð
ræðst af framboði og eftirspurn.
Miðað er við að ákveðið þak
verði á því greiðslumarki sem
hver og einn getur keypt.
• Einnig er bent á leiðir A1 og
A2 sem ganga lengra. Þannig
nýtist ríkisstuðningurinn, sem
greiðslumarkið veitir, betur
til að jafna tækifæri til starfa
og búsetu. Einnig til að styðja
við rekstur fjölskyldubúa og
stuðla að jafnari samkeppni.
Leið A1 gerir ráð fyrir markaði
eins og leið A en til að minnka
landfræðilega samþjöppun
greiðslumarks væri skoðað
að taka upp t.d. 4 svæði sem
ekki mega flytja greiðslumark
á milli eða hafa tiltekið hámark
á hvert svæði. Leið A2 gengur
lengra og miðar við að frekari
áhersla verði lögð á að viðhalda
rekstri fjölskyldubúa. Settar
verði hömlur á að fyrirtæki
fái ríkisstuðninginn sem felst
í greiðslumarki og keppi við
fjölskyldubú um það, s.s.
fyrirtæki í lóðréttu eignarhaldi
annarra eða í eigu lögaðila í
ótengdum rekstri.
• Leið A3 er nokkuð róttækari
en hinar þar sem hugmyndin er
að skipta greiðslumarkskerfinu
upp í annarsvegar stór bú og
hinsvegar lítil fjölskyldubú.
Viðskipti með greiðslumark
væru ekki heimil á milli kerfa
en leið A ríkti innan þeirra.
Þannig myndi samþjöppun
mjólkurframleiðslu halda
áfram, einkum í stórbúa
kerfinu en lítil bú nytu styrkja
til framleiðslu mjólkur og
úrvinnslu afurða og hefðu
annað hlutverk en stórbúin.
Mikilvægt er þó í þessari tillögu,
út frá matvælaöryggi, t.d. vegna
afleiðinga náttúruhamfara, að
stóru búin dreifist á a.m.k.
fjögur svæði á landinu.
• Allar tillögurnar hafa það
sameiginlegt að hugað er
að stærðarhagkvæmni,
umhverfisþáttum og nýsköpun
og reynt að mæta báðum
sjónarmiðum um aukna
hagkvæmni en jafnframt dreifða
búsetu.
Þróun greiðslumarkskerfisins
Framleiðslustýring í mjólkur fram-
leiðslu hefur verið við lýði á Íslandi
frá árinu 1979. Það ár var lögum
um Framleiðsluráð landbúnaðarins
breytt og búmarkskerfi tekið upp
vegna offramleiðslu á mjólk.
Fyrsti búvörusamningurinn 1985
Árið 1985 var fyrsti búvörusamn-
ingurinn gerður og fullvirðisréttur
tekinn upp sem átti að tryggja
bændum fullt verð fyrir ákveðið
magn af mjólk. Fullvirðisrétturinn
var reiknaður út frá framleiðslu
einstakra bænda og var skipt á
milli framleiðenda innan hvers
búmarkssvæðis.
Árið1992 var greiðslumark
innleitt í stað fullvirðisréttar og
frjálst framsal á greiðslumarki
mjólkur heimilað.
Árið 1985 voru sett ný lög um
framleiðslustýringu í landbúnaði,
lög um breytingu á lögum um
framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum. Samkvæmt
lögunum átti ríkið að tryggja,
með samningum, fullt verð til
bænda fyrir ákveðið magn búvara
en skert verð fyrir framleiðslu
umfram umsamið magn. Einnig
átti að draga úr útflutningsbótum
ríkissjóðs. Þetta sama ár var fyrsti
búvörusamningurinn gerður á
grundvelli búvörulaganna og
fullvirðisréttur tekinn upp.
Fullvirðisréttur var það
framleiðslumagn sem framleiðendur
fengu fullt verð fyrir og var hann
ákveðinn sem heild fyrir landið
allt og síðan skipt niður, fyrst á
búmarkssvæði og síðan á einstaka
framleiðendur. Fullvirðisréttur
var reiknaður út frá framleiðslu
einstakra bænda árin 1981 til 1983
og var framsal á fullvirðisrétti
leyfilegt en lítið var þó um viðskipti.
Annar búvörusamningurinn
1987-1992
Annar búvörusamningur var gerður
árið 1987, sem gilti til ársins
1992 og var hann í meginatriðum
framlenging á fyrri samningi.
Árin 1989 til 1991 giltu
strangar reglur um viðskipti með
fullvirðisrétt og þar af leiðandi lágu
viðskipti að mestu leyti niðri á þeim
tíma.
Þriðji búvörusamningurinn
1992–1998
Í þriðja búvörusamningnum, sem
gilti árin 1992 til 1998, var aðallega
fjallað um sauðfjárframleiðslu.
Mjólkursamningur 1992
Árið 1992 var því gerður
mjólkursamningur, þar sem nánari
útfærsla á þeim atriðum sem snéru að
mjólkurframleiðslu í samningnum
frá árinu 1992 kom fram.
Með mjólkursamningnum
var greiðslumark innleitt í stað
fullvirðisréttar og útflutningsbætur
felldar niður. Framleiðslustýring
var fest í sessi og frjálst framsal á
greiðslumarki mjólkur heimilað.
Kvótakerfið átti að auka
sveigjanleika í mjólkurframleiðslu,
gera bændum kleift að hagræða í
rekstri og auka framleiðslu. Því var
samið um að mjólkurverð til bænda
myndi lækka um ákveðnar prósentur
árin 1992, 1993 og 1994.
Margar breytingar höfðu verið