Þjóðólfur - 17.06.1941, Side 4
Þ JÓÐÖLFUR
Aron Guðbrandsson:
Gengismálið og
samningarnir við Breta
HAR sem við íslendingar höf-
^ um ákveðið að fullu að verða
okkar eigin húsbændur í fram-
tíðinni, og verðá frjálst og óháð
ríki, sem ræður sjálft orðum
sínum og gerðum, verðum við
að gera okkur það ljóst, að
erfiðleikar og ábyrgð hljóta að
aukast að sama skapi sem
sjálfsákvörðunarrétturinn verð-
ur meiri. Við getum ekki lengur
ásakað aðra fyrir það, sem ef
til vill eru okkar eigin afglöp.
Ríkisvaldið verður að gera kröfu
til þess, að hver þegn geri skyldu
sína, og hver þegn krefst þess,
að ríkisvaldið sé verndari hans,
en ekki ofsækjandi, að frjáls-
ræði hans til orðs og æðis sé
ekki skert, svo lengi, sem orð
hans og athafnir brjóta ekki í
bága við eðlilega þróun ög ör-
yggi sjálfs ríkisvaldsins.
Þótt við íslendingar höfum
ákveðið það að ráða málum okk-
ar sjálfir, dylst þó engum, að á
meðan erlendur her er í land-
inu, erum við ekki frjálst fólk í
frjálsu landi, og að dvöl hins
erlenda hers hér skapar ríkis-
stjórninni þá möguleika að
skríða undir skikkjufald her-
námsins og dylja þar sín eigin
axarsköft.
Þessi aðstaða er hættuleg af
mörgum ástæðum. Hún getur
orsakað þann misskilning, að
við ásökum hina brezku her-
stjórn fyrir það, sem er okkar
eigin sök, og á þann hátt spillt
þeirri sambúð, sem við erum
neyddir til að sætta oklcur við.
Það væri því mjög æskilegt, að
almenningur vissi meira um þá
samninga, sem gerðir hafa ver-
ið við Bretland og sem gerðir
kunna að verða, heldur en hann
veit nú, til þess að mönnum sé
sem ljósast, hvað er okkar eigin
sök af því, sem aflaga fer, og
hvað annarra .
*
Það er enginn vafi á því að
sá hornsteinninn, sem mestur
þunginn hvílir á í byggingu hins
frjálsa framtíðarríkis Islend-
inga, eru fjármálin. Ef okkur
tekst ekki að byggja upp nýtt
og öruggara fjármálalíf í land-
inu, heldur en við áttum við að
búa fyrir yfirstandandi styrjöld,
þá verður sjálfstæðisdraumur-
inn ekki langur.
Það er ekki nema rúmt ár síð-
an við vorum svo skuldugir er-
lendis, að lánstraust þjóðarinn-
ar var í voða, og atvinnuveg-
irnir voru í rúst. Þetta hefur að
visu breytzt mjög til batnaðar
á örskömmum tíma, en sá bati
í atvinnu- og fjármálalífi lands-
manna getur hæglega verið eins
konar góugróður, sem fölnar
við fyrsta hret. Þeir erfiðleikar,
sem nú virðast hjá liðnir í bili,
hafa ekki komið yfir okkur til
einskis, ef við kynnum að bera
gæfu til þess að hagnýta okkur
þá reynslu, sem þeir hafa skilið
eftir. Ef við værum menn til
þess að bera hag þjóðarheildar-
innar fyrir brjósti án eiginhags-
muná-togstreitu og hvata til
þess að skapa vissum stéttum
þjóðfélagsins forréttindi á
kostnað annarra.
*
Ég hef hér að framan minnzt
lauslega á þá nauðsyn, áð al-
menningi væru birtir þeir samn-
ingar, sem við höfum nýlega
gert við Breta, og þá, sem við
gerum í framtíðinni. Það er lýð-
um ljóst, að Englendingar hafa
ráð okkar í hendi sér, en það
er engin ástæða til þess að
ímynda sér að óreyndu, að sú
þjóð, sem fórnar fé sínu og lífs-
liamingju fyrir rétt lítilmagn-
ans, verði svo erfið í samning-
um við okkur, að við berum þar
skarðan hlut frá borði.
I sambandi við samningana
við Breta é'r rétt að minnast hér
á eitt mál, sem valdið hefur
óánægju landsmanna og bendir
glöggt í þá átt, að vanþekking
og leynd geta komið á stað orð-
rómi, sem tvímælalaust er skað-
legur sambúðinni, en þetta mál
er gengismálið.
Flestir þeir, er nokkurt skyn
bera á fjármál, eru á einu máli
um það, að hið skrásetta gengi
á íslenzku krónunni sé of lágt,
þegar tillit er tekið til afkomu
okkar og annarra ástæðna, sem
áhrif geta haft á rétt mat á
verðgildi peninga.
Eins og allir vita, þá hefur
brezki herinn hér fengið yfir-
fært fé hjá bönkunum til þeirra
framkvæmda í landinu, sem her-
námið hefur gert nauðsynlegt.
Almenningi er ekki kunnugt um
annað en þau pund, sem Bretar
selja bönkunum, séu greidd með
hinu skrásetta verði, en ef svo
er, og sannanlegt er að gengi
sterlingspundsins sé of hátt
reiknað, þá er álit almennings
það, að sá hlutinn af andvirði
pundanna, sem of hátt er reikn-
aður, sé í raun og veru framlag
okkar til hernámsins, og sé hér
um að ræða „diplomatiska“ að-
' ferð Breta til þess að láta okk-
ur bera eitthvað af byrðinni.
Er nú rétt að lialda því leyndu
fyrir almenningi, hvort Bretar
hafa hér gengið á rétt okkar,
eða hvort við sjálfir höfum
haldið svo illa á spilunum í
samningum við þá, að okkur
einum sé um að kenna?
Ég persónulega vil tvímæla-
laust hallast að hinu síðara, og
undir þá skoðun mína renna
tvær meginstoðir. Hin fyrri er
sú, að Færeyingar, sem sáu bet-
ur en við, að nauðsynlegt var
að kynna almenningi sem bezt
alla samninga við Breta, til þess
að fyrirbyggja ástæðulausa
úlfúð, komust að betri gjald-
eyrissamningum en við, og er
ekki ósennilegt, að ef vel hefði
verið unnið að málunum, þá
hefðum við getað setið við sama
eldinn og þeir í þessum efnum.
Hin ástæðan er sú, að nú er
komið fram á Alþingi frumvarp,
sem gerir ráð fyrir því, að geng-
inu sé breytt í réttara horf. Ég
geri ráð fyrir því, að þeir, sem
að flutningi þessa frumvarps
standa, séu svo kunnugir mál-
inu, að frumvarpið hefði aldf'ei
kornið fram, ef óumbreytanlegir
samningar væru til um málið,
þar sem við værum beittir
þvingun og órétti.
Það er enginn vafi á því, að
gengishækkun hefði dregið úr
hinni hættulegu verðbólgu, sem
við verðum nú við að búa, og
sem ef til vill er aðeins á byrj-
unarstigi, og hún hefði getað
orðið veigamikill þáttur í því,
að sporna á móti hinni háska-
legu dýrtíð, sem ríkir í landinu,
og hinu óskaplega kapphlaupi
milli síhækkandi vöruverðs og
kaupgjalds, sem allt miðar að
því að eyðileggja þann grund-
völl, sem rétt og heilbrigt fjár-
málalíf byggist á.
Menn kunna að líta þannig á,
að ennþá sé tími til að kippa
þessu í lag og hækka gengið nú,
en þetta er fljótfærnisleg álykt-
un, sem þarf nánari athugunar
við.
Hinn rétti tími til gengis-
hækkunar var á því tímabili,
sem skuldir og innistæður bank-
anna erlendis voru sem jafnast-
ar, til þess að fyrirbyggja töp
þeirra við gengisbreytinguna.
Ef gert er ráð fyrir því, að
injiieignir bankanna séu nú ea.
80 miljónir kr. í Englandi og
gengi krónunnar væri hækkað
um 25 %, þá mundu bankarnir
tapa um 20 miljónum króna á
breytingunni. Þessi töp hefði
verið hægt að fyrirbyggja, ef
aðgerðin hefði verið framkvæmd
fyrir rúmu ári. En það er auð-
sætt, að gengishækkun undir
25% mundi ekki koma að fullu
gagni, og að 20 miljón króna
tap fyrir bankaná væri þeim of-
vaxið, og ef þeim yrði bætt tjón-
ið, sem nemur um það bil áætl-
uðum tekjum ríkissjóðs fyrir
næsta ár, með nýjum álögum á
borgarana, þá væri hæpin hagn-
aðurinn af aðgerðinni. Ég lít því
þannig á, þar til annað upplýs-
ist í málinu, að ríkisstjórnin og
aðrir ráðamenn fjármálanna í
landinu hafi látið ganga úr
greipum sér mjög hentugt tæki-
færi til þess að stemma að ein-
hverju leyti stigu fyrir hinu al-
varlega ástandi í fjármálalífi
þjóðarinnar, og nauðsynlegt sé
að upplýsa það, hvort hernámið
sé hér notað sem skálkaskjól,
eða hvort sjálfsákvörðunarrétt-
urinn hefur hér verið af okkur
tekinn.
Þér
nútíma konur
þekkið ekki áhyggjur
gamla tímans
fyrir þvottadeginum
TipTop
þvottaduft
og svo
Mána-
stangasápu
á svörtustu blettina. —
✓
Islenzkt þvottaduft, sem
tekur flestu erlendu fram.