Þjóðólfur - 08.10.1942, Qupperneq 3
ÞJÓÐÓLFUR
•S
Byggingar og siðgæði.
Hr. ritstjóri!
Jónas Jónsson ritar í Tímann um
hina „háskalegustu flokksmyndun,
sem þekkzt hefur á íslandi“. Það
er flokkur Þjóðveldismanna. Sami
maður skrifar í sama blað um
„Hina miklu byggingaöld“, sem hann
þakkar valdatímabili Framsóknar-
flokksins — það er valdatímabili
Jónasar sjálfs.
Svo er nú það. Valdamenn Róm-
verja reistu miklar hallir sigurfrægð
sinni til dýrðar, en þeir sömu menn
ræktuðu spillinguna í félagsmálum
og opinberu lífi þjóðarinnar. Orsak-
aði það langvarandi hnignun og að
síðustu hrun hins mikla heimsveldis.
Það er hægt að hefja „mikla bygg-
ingaöld“ og á sama tíma öld rangs-
leitni og fjandskapar, öld fláttskap-
ar og spillingar. Það er hægt að reisa
myndarleg hús á kostnað þjóðar-
byggingarinnar sjálfrar, sem jafn-
hliða fúnar og hrörnar og kemst
falli næst. Það er hægt að hafa á
sama tíma falleg hús og rotið sið-
ferði — kalkaðar grafir, fullar af
dauðra manna beinum. Hvað gagnar
þjóðunum framfarir, ef þær uppeta
hver aðra? Hvað gagnar landsmönn-
um miklar byggingar, ef þeir glata
heilbrigði þjóðarsálarinnar og njóta
gæðanna fullir fjandskapar og
gremju.
Afskiptinn.
' • iíif ••■'Tfwfar—r
'Af því að við erum
ánægðir —
Það eru margir óánægðir með á-
standið í hinu opinbera lífi. Menn
tala um framkvæmdaleysi, áhuga-
leysi og skammsýni þeirra, sem eiga
að stjórna. Sömu aðilar eru —1 með
réttu — ásakaðir um misbeitingu
þess valds, sem þeim ér falið. Opin-
ber afgreiðsla er með endemum. Fé
; almennings er misnotað í þágu valda-
flokkanna. Öll opinber afskipti
miða að því að gera upp á milli
þegnanna eftir pólitískum verðleik-
um. Bílainnflutningurinn og bílaút-
. hlutunin er orðið almennt hneyksl-
unarefni. Afgreiðsluhættir þessarar
ríkisstofnunar voru þeir, að menn
gátu eins vel búizt við að vera rekn-
ir út þegar þeir komu þangað til að
reka erindi sín, ef þeir höfðu ekki
pólitíska verðleika til að bera. Ráð-
herrarnir úthluta bílum sem kosn-
ingabeitum. Er von að heiðarlegt
fólk sætti sig við þetta? Getur nokk-
ur láð því, þótt það telji sig geta
átt annars að vænta en svika og
brigðmælgi af hálfu embættismanna
í æðstu stöðum.
Þessi spilling er verk flokksfor-
ingja, sem alltaf eru að hugsa um
flokkinn sinn og möguleika sína til
að geta drottnað yfir öðrum-
Flokksræðið litur nú svona út í
reyndinni.
Þjóðþrifamál eru tafin eða eyði-
lögð vegna þessarar tillitslausu
flokkastreitu. Hitaveitan er gleggsta
dæmið. Allir flokkar ætluðu sér
heiðurirín af framkvæmd verksins.
"Vinstri flokkarnir, svokölluðu, byrj-
~uðu~4-h«agli- og ■ rannsóknarþrefi.
fhaldið fékk það stórmennskubrjál-
æði á heilann, að því bæri að leysa
málið einu, án aðstoðar ríkisvalds-
ins eða annarra flokka. Allt þetta
varð til þess, að framkvæmd máls-
ins dróst úr hömlu þar til stríðið
skall á. Hálfófærar götur höfuðstað-
arins er nú það eina, sem minna
okkur á þetta mikla kosningamál.
Þeir munu því vera æðimargir,
sem hafa í hyggju að slíta af sér
flokksböndin, þakka fyrir sviknu
loforðin, tjá álit sitt á ráðleysinu og
svefninum i opinberum framkvæmd-
um, og sýna hug sinn til rangsleitn-
ipnar og ofbeldisins.
Og til hvers væri það líka að vera
óánægður, ef menn ætluðu ekki að
reyna að skipta um? Hvaða lagfær-
ingar geta fengizt með því að kjósa
sömu mennina og sömu flokkana,
sem hafa svikið okkur og brugðizt
stefnumálum sínum. Við, þessir
mörgu óánægðu kjósendur, skulum
ekki láta það hræða okkur frá fylgi
við lista Þjóðveldismanna, þó að
meðal kjósenda listans kunni að
vera einhverjir þeir, er áður hafa
stutt óvinsælar pólitískar klíkur.
Það er gott, þegar menn sjá að sér.
Við þekkjum „hræðurnar“ í gömlu
flokkunum. Við kjósum okkur ekki
.þeirra samfélag lengur en orðið er.
jVið þessar kosningar sameinumst við
um E-listann.
Óánægður kjósandi.
Hversvegna kýs fólk
E-listann?
Þennan lista, sem er listi Þjóðveld-
ismanna, kjósa verkamenn og
vinnuveitendur af því að Þjóðveld-
ismenn ætla sér að vinna að því
eftir mætti, að' þeim styrjöldum
verkfalla og fjandskapar, venjulega
báðum aðilum til ómetanlegs tjóns,
mætti linna og í þeirra stað koma
samkomulag stéttanna sjálfra,
byggt á sanngirni og gagnkvæmu
tilliti til hagsmuna beggja, og stutt
af réttlátri löggjöf og heilbrigðum
skipunarreglum. Til þessara styrj-
alda hefur verið stofnað og þær
reknar, öllum til skaða, af stríðándi
pólitískum flokkum, nú um all
margra ára skeið. Ekki fólkinu til
hagsmuna, heldur aðallega til þess
að afla sér atkvæðafylgis og auk-
innar valda-aðstöðu.
Þennan lista kjósa útgerðarmenn
og sjómenn, af nákvæmlega sömu
ástæðum.
Þenna lista kjósa iðnarmenn og'
iðnrekendur, enn af sömu rökum.
Þenna lista kjósa grasbýlismenn
og konur í nágrenni Reykjavíkur,
sem hafa verið svo ákaflega skatt-
lagðir, sem raun er á, til hagsmuna
f.vrir fjarlæg héruð. Skatturinn
hefur verið notaður til kaupa póli-
tísks fylgis og atkvæða í fjarlægum
sveitum af samskonar stjómmála-
flokkum, er nefndir hafa verið, og
um langt skeið hafa farið fram í
stjórnmálalífinu með fullkomnu of-
beldi. Slíku skefjalausu ofríki og
einræðisbrölti segja Þjóðveldismenn
stríð á hendur.
E-listann kýs allur fjöldi húseig-
enda, því enda þótt hinir póli-
tísku ofbeldisflokkar láti sjaldan nið-
ur falla baráttu sín á milli um völd
og yfirráð, þá urðu þeir allir sam-
mála og samsekir um það, að taka
húseigendur eina út úr öllum borg-
urum og þegnum þjóðfélagsins og
gjöra þá rétlausa: Lækka stórlega
tekjur af húsum með gengishringli,
gera húsin jafnframt óseljanleg með
því að binda sölufrelsi eigendanna
við ákveðinn eignatíma og taka
umráða- og ráðstöfunarrétt eign-
anna af húseigendum, svo að þeir
mega ekki einu sinni velja sér sjálf-
ir leigjendur í hús sín. Hér er tek-
inn bæði eignar- og umráðaréttur
af mönnum.
Þenna lista kýs mikill hluti leigj-
enda, af líkum rökum, sem húseig-
endur. Af þeim er einnig tekinn
samningsréttur-inn. Frjálsir samn-
ingar milli þeirra og húseigenda
eru nú bannvara á íslandi. Og svo
langt er gengið, að húsnæðislausu
fólki er með lögum óheimilað að
kaupa sér hús, þó á boðstólum sé, til
þess að afla sér húsnæðis. Það er
dæmt til að vera á götunni méð
sama ákvæðinu, sem varnar eigend-
um að selja.
Loks kjósa þenna lista allir frjáls-
ir menn, sem ekki vilja búa við
ranglæti og réttarskerðmgar ofrík-
is- og einræðisflokka.
Allir þeir, sem unna eða vilja
una við óstjórn, réttleysi og handa-
hófs ofbeldi, þeir kjósa einhvern af
listunum A—D. En minna má þá á
forna spakmælið: „Þegár náungaps
veggur brennur, þá er þinum hætt“.
Þó að þeir nú kunni að hafa að-
stöðu til að sitja yfir rétti annarra
í krafti ofbeldis og ranglætis
flokkseinræðisins, þá getur breytzt
veður í lofti og sannast hið forn-
kveðna: ,,í dag mér, á morgun þér“.
Þeir, sem vilja að lög og réttur
ríki í landinu, og að rétturinn sé
hinn sami fyrir öll landsins börn,
kjósa E-llstann.
z.
Ódýrar bskur
Ýmsar bækur til fróðleiks
<g skemmtunar.
Talsvert úrval af
skáldsögum.
BókabúQin Klapparstig 17
fmilli Hverfisg. og Lindarg.)
Kaffikvöld
Þjóðveldismanna
verður haldið í Oddfellow í' kvöld, fimmtudaginn 8. okt. kl. 9
e. h. stundvíslega.
SKEMMTIATRIÐI:
1. Bjarni Bjamason setur skemmtunina.
2. Guðm. Jónsson: Söng-ur.
3. Ámi Friðriksson: Ræða.
4. Pétur Jónsson: Söngnr.
5. ? ? ?
6. Ámi Jónsson frá Múla: Ræða
7. Dans.
Aðgöngumiðar seldir á Laufásv. 4, sími 2923, og við inngang.
inn. Allir stuðningsmenn E-listans velkomnir.
SKEMMTINEFNDIN.
Auglýsing
Domnefnd í verðlagsmálum hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð:
I. FISKUR.
í Reykjavík og Hafnarfirði hámarksverð
gildandi frá 6. okt.
Nýr þorskur slægður með haus ....... Kr. 0.77 pr. kg.
— — — hausaður ........... — 1.00-----
— —- — og þversk. 1 stykki — 1.05 — —
Ný ýsa slægð með haus................. — 0.82-----
— — — hausuð ............. — 1.05-----
— — — og þverskorin í stykki .... — 1.10-----
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaður
með roði og þunnildum ............. — 1.65--------
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaður
með roði án þunnilda .............. — 2.30 — —
Nýr fiskur (þorskur og ýsa) flakaður,
roðflettur án þunnilda ............ — 2.75--------
Nýr koli (rauðspretta) ................ — 2.65 — —
Ofangreint verð er miðað við það, að kaupandinn sæki
fiskinn til fisksalans. Fyrir heimsendingu má fisksalinn
reikna kr. 0.10 pr. kg. aukalega. Fiskur, sem frystur er
sem varaforði, má vera kr. 0.40 dýrari pr. kg. en að ofan
greinir.
H. HAFRAMJÖL.
Hámarksverð í heildsölu .... Kr. 92.80 pr. 100 kg.
--- í smásölu .......... — 1.20 pr. kg.
Álagning í heildsölu má þó aldrei vera hærri en 8 %%
og í smásölu aldrei hærri en 30%.
Reykjavík, 6. okt. 1942.
DÓMNEFND í VERÐLAGSMÁLUM.
Nýír ásbrlfendur að
Þjöðólfi
fá blaðíð óbeypís í Ohíóbermánuð,
Notíð þcffa scrstafca lae aifaeri
Askriffarsímínn er 2923«
Háninn líður
(THE MOON IS DOWN) EFTIR JOHN STEINBECK
í þýðingu Sigurðar Einarssonar dósents.
Sölumetbókin í Ameríku 1942.
j Úr erlendum ummælum urn bókina:
I John Gunter, höfundur bókarinnar „Inside Europe“ og „Inside Asia“:
„Dásamlegt dæmi þess hvernig stórskáldi tekst, í meistaralega samdri
skáldsögu, að ^kýra hina örlagaþrungnu atburði vorra tíma.“
llpton Sinclair: „Glory Halleliyah, dásamleg skáldsaga.“
Lee, bókmenntagagnrýnandi Piladelpbia Record: „Markviss og kröftug
eins og tundurskeyti".
Appcll, bókmenntagagnrýnandi Clevland News: „Einn aí stórviðburðum
: bókmenntanna.
i Fréttablað „Book of the Month Club“: „Stórfengleg, blossandi skáld-
i
saga.
I Times Literary Supplement 20. júní: mælir með henni sem beztu skáld-
sögunni.
Finnur Einarsson Bókaverzfun
Austurstræti 1. — Sími 1336.
Næstsíðasti endurnýjunardagur Happdrættið