Þjóðólfur - 22.03.1943, Síða 3
þjöðölfur
3
Sambúðin
fVamh al 1. ftiðu.
stríðið, jafnvel í Bretlandi, og
átti þó Bretum að vera allra
þjóða ljósast, hvers þeir máttu
vænta sér af viðgangi þessarar
stefnu.
Hitt er annað mál, að íslend-
ingar munu almennt ekki telja
sig hafa neina ástæðu til að ó-
vingast við þýzhu þjóðina. —
Sennilega er okkur flestum svo
hlýtt til Þjóðverja, að við ósk-
um þeim allt annarrar og far-
sælli forustu en þeir hafa orðið
að lúta að undanförnu.
Þegar Churchill kom
En úr því svo er, að nazism-
inn náði hér engum tökum fyr-
ir stríðið, þarf meira en venju-
legt ímyndunarafl til að ætla, að
hann hafi hér tök nú. Eða dett-
ur nokkrum í hug, að miskunn-
arleysi og hryðjuverk nazista í
landi nánustu frændþjóðar okk-
ar hafi aukið samúð með þeim
hér á landi?
Annars er n'óg að vitna til
daglegrar sambúðar við setulið-
in. Það er alveg gefið, að meira
yrði að okkur þrengt, ef við
lægjum undir alvarlegum grun
um fylgi við nazismann.
Eftir að Bretar höfðu hafzt hér
við meira en ár og Ameríku-
menn meira en mánuð, fór Wins
ton Churchill allra sinna ferða
óvarinn um götur Reykjavíkur.
Hann talaði fyrir miklum mann-
fjölda, án þess neinna sérstakra
varúðarráðstafana yrði vart. —
Með þessu var íslenzkum al-
menningi sýnt fullt og maklegt
traust og nazista-firran í raun-
inni alveg kveðin niður.
£n hvað á að gcra?
Við hljótum að leggja höfuð-
áherzlu á, að nazistafirran og
aðrar óréttmætar og óvinsamleg-
ar ásakanir í okkar garð nái ekki
útbreiðslu í löndum þeirra
þjóða, sem við búum saman við.
Við verðum að ná samvinnu um
að fyrirbyggja, að almennings-
álitið í þessum löndum verði okk
ur fjandsamlegt.
Við getum ætlazt til þess að
fáfróðum hermönnum sé ekki
látið haldast uppi að afflytja
okkur í bréfum til ættingja og
vina í heimalandinu. Ættu að
vera hæg heimatökin í þessu
efni, þar sem ekki er annað vit-
að en að öll bréf frá landinu
verði að fara gegnum stranga
ritskoðun. Það ætti að vera auð-
velt fyrir ritskoðunina, að strika
hreinlega út allan heilaspuna
um óvinsamlegt innræti okkar.
Jafnframt ættum við að geta
haft nokkur áhrif á hug her-
mannanna til okkar með fræðslu
um land og þjóð, bæði í her-
mannaútvarp og með bókum og
bæklingum, sem kynntu landið.
Hvorttveggja þetta mundi
koma að nokkru haldi. En þó er
það engan veginn nóg.
Ef við eigum ekki að leggjast
undir ámæli um vanrækslu á
skyldum okkar, verðum við að
hafa sérstaka blaðafulltrúa í
sambandi við sendiráðin bæði í
London og Washington.
Sendiherrar okkar eru svo
önnum kafnir, að þeir geta ekki
annað þessu sérstaka starfi, þó
að enginn efist um að þeir séu
allir af vilja gerðir. Enda spurs-
mál, hvort rétt er að telja það
falla undir þeirra verkahring.
Blaðafulltrúarnir eiga að hafa
það með höndum að útbreiða
þekkingu á högum okkar og vera
á verði gegn því að rangar og
villandi fregnir um okkur nái
útbreiðslu og áhrifum.
Þótt nokkurn kostnað leiði af
þessu má ekki sjá í það. Aðrar
þjóðir fórna öllu í hernaðinn.
Hér er um starfsemi að ræða,
er jafngildir hervörnum annarra
þjóða.
Herinn og heimilin
Loks skal minnzt nokkrum
orðum á þá uppástungu að við
opnum heimilin fyrir hermönn-
unum meira en orðið er. Um
þetta þarf ekki.að ræða. Senni-
lega eru heimili hvergi í veröld-
inni jafn opin bráðókunnugum
mönnum og hér á landi,
Vandamálin, sem hér hafa
komið upp í sambandi við
setuliðin eru nákvæmlega þau
sömu og allsstaðar verður vart
í sambýli hers og borgara. Það
er vafasamt hvort amerískt her-
lið, sem dvelur til æfinga á ó-
kunnugum stað í heimalandinu,
hefur nánari samvistir við borg-
arana, karla og konur ,en amer-
íska setuliðið hér við íslenzka
borgara.
Það er þess vegna algerlega
vanhugsað að ætlast til þess, að
við íslendingar tökum upp aðra
háttu í þessu efni, en annars
staðar tíðkast, jafnvel í heima-
löndum hermannanna. Þess
vegna er líka rangt að telja það
vott um fjandasamlegan „kulda
eða afskiptaleysi“, að íslenzk
heimili eru ekki opnuð setu-
liðinu frekar en raun er á —
hvað þá heldur nazisma. Það er
ekki annað en sá „nazismi“,
sem hermenn verða hvarvetna
að sætta sig við — einnig í sín-
um eigin ættlöndum.
a.
TILKYNNING
frá loftvarnanefnd
Loftvarnaæfing verður haldin að tilhlutmi
Loftvamanefndar Reykjavíkur og stjórn
setuliðsins einhvern daginn, frá 21.—27. marz,
að báðum dögunum meðtöldum, milli kl. 20
og 24.
Allir einstaklingar og stofnanir á svæð-
inu fyrir sunnan línu, sem dregin er frá vestri
til austurs miðja vegu milli Akraness og
Borgarnéss og fyrir vestan línu, sem dregin
frá norðri til suðurs skammt fyrir austan Vík
í Mýrdal, eru beðin að sýna fulla samvinnu
með því að taka þátt í æfingunni.
Menn eru varaðir við því, að loftvarna-
merki, sem kunna að verða gefin á hinu of-
angreinda tímabili, þurfa ekki nauðsynlega
að gefa það til kynna, að æfingin sé að hefj-
ast, heldur gæti verið um að ræða raunveru-
lega aðvörun um loftárás.
Loffvarnanefnd
þá má ekki greina hver
maöurinn er,
já, mikiö er skraddarans
pund“.
Þaö er erfitt aö veröa
Mussoliní, Hitler eöa Stalin, í
þjóöfélagi, sem er svo fá-
mennt, aö allir hafa aðstööu
herbergisþjónsins til aö sjá
það sem hver og einn tekur
sér fyrir hendur —líka þegar
fógetinn fer úr buxunum. Fá-
klæddur valdsmaCur getur
alltaf átt á hættu, aö djarf-
ur kotungssonur segi:
„Embættiö þitt geta allir séö.
en er þú, sem ber þaö
maöur?“
í einræöislöndunum er fjöl-
menni svo mikiö aö hægt er
aö skapa valdhafanum þá
„fjarlægö, sem gerir fjöllin
blá og mennina mikla“. Ef viö
lítum á helztu einræöisríkin
hér í álfu sjáum viö aö vald -
hafarnir hafa allir erft sínar
fógetabuxur. Mussolini tók
viö þeim af páfanum, Hitler
af keisaranum og Stalin af
zarnum. Hér á landi er hvorki
blámi fjarlægö'arinnar né bux
urnar, fyrir hendi, því þessar,
sem Jörundur fór úr ,um áriö
eru löngu týndar. Þess vegna
má vei-a, aö biö veröi á því aö
nokkrum manni takizt aö
■veröa einræöisherra á íslandi.
Einræöisherrarnir segja all-
ir: „Vér einir vitum“. Þeir viö-
urkenna ekki aö neinn geti
veriö vinur sá, er til vamms
segir. Þeir neita því aö betur
sjái augu en auga, þ. e. a. s.
þeirra eigin einræöisauga. Og
þessu veröa allir aö lúta. Þó
enhverjum þegnanna kynni
aöi detta í hug um augu ein-
ræðisherrans og svip allan:
„MelrakkaaugaÖ var flótta-
flátt.
flæröin rist i hvern andlits-
drátt
og glottiö ein glæpasaga“.
veröur hann aö halda sér
saman, eöa týna lífinu ella.
Því afstáöa einræöisins til
gagnrýninnar er sú sama og
afstaöa prédikarans til stein-
bítsins, sem beit hann í löpp-
ina. En sú saga er til þess;
aö prédikari einn gat ekki lif-
að. á því einu iaö veiöa menn.
Hann varö stundum aöi fara
á sjó og veiöa fisk sér til lífs-
viðurværis. Einn af þessum
borgurum djúpsins skildi ekki
betur hváö til síns friöar
heyrði en þaö, aö hann læsti
skoltunum í prédikarann, þeg-
ar búið var aö draga hann.
Þetta var steinbítur. Þá sagði
prédikarinn:
„Þú blásvarti, hundheiöni
fiskur, sem bítur sannkristinn.
endurfæddan, heilagan guös
mann í fótinn, Þú munt veröa
steiktur á logandi eldi, soðinn
í sjóöandi vatni og framreidd-
ur sem fæöa fyrir guölausan
skríl í þessari Sódóma-borg“.
Þetta er ekkert ósvipaöur
lestur sumum kveöjimxun, sem
þjóðhöfðingjar láta útvarpa til
andstæöinga sinna þegar
„endurfæddur, heilagur guös-
maöur“ hefur verið bitinn í
fótinn.
Viö íslendingar ættum ekki
aö reyna aö gera gagnrýnina
aö steinbít. Og sízt af öllu ætti
Alþingi aö gangast fyrir út-
'breiöslu slíkrar trúar.
Ef þáð er rétt, sem viö höf-
um trúaö, aö vinur segi til
vamms, á enginn aö mælast
undan gagnrýni, sízt sú stofn-
un, sem á aö vera æösta tákn
og ímynd frjálsra manna í
frjálsu landi.
Nú eru ekki nema tvö ár
þangáö til Alþingi minnist
endurreisnar sinnar. ÞaÖ ætti
að vera ósk okkar allra, aö
þessi elzta löggjafarsamkoma
heimsins stæöi þá svo styrkum
fótum og stálsettum, að eng-
um, nema „blásvörtum hund-
heiðnum" steinbít, dytti í hug
að reyna tennur sínar á þeim.
Viðskiptaráð hefur sett eftirfarandi ákvæði um
hámarksálagningu á rafmagnsvörum:
I. Hreyflar, vindrafstöðvar, eldunar-, hitunar- og
lækningatæki
í heildsölu .......................... 13%
í smásölu:
a. Þegar keypt er af innlendum heild-
sölubirgðum ..................... 28%
b. Þegar keypt er beint frá útlöndum 35%
II. 1. Öll rafknúin tæki til heimilisnotkunar,
önnur en eldavélar, hitunartæki og
hreyflar
2. Rafknúin tæki til iðju og iðnaðar, önn-
ur en hreyflar
3. Rör og leiðsluvírar
í heildsölu .......................... 18%
í smásölu:
a. Þegar keypt er af innlendum heild-
sölubirgðum ..................... 40%
b. Þegar keypt er beint frá útlöndum 50%
III. ■ 1. Ljósakrónur, lampar, mælitæki og perur
2. Innlagningar- og viðgerðarefni allskon-
ar, önnur en rör og leiðsluvírar
3. Aðrar rafmagnsvörur en nefndar eru að
framan
í heildsölu ........................ 25%
í smásölu:
a. Þegar keypt er af innlendum heild-
sölubirgðum ..................... 50%
b. Þegar keypt er beint frá útlöndum 64%
Ofangreind ákvæði ganga í gildi frá og með þriðju-
degi 23. þ. m.
Reykjavík, 17. marz 1943.
VERÐL AGSST J ÖRINN.