Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1988, Síða 11

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1988, Síða 11
„Efni til umhugsunar Þrátt fyrir sjúkra- Það má segja að æskilegt sé að fólk láti meta örorku sína þrátt fyrir að það sé komið á sjúkratryggingu. Það sem mælir með því er eftirfarandi: 1. Ef fólk ætlar að sækja um lán til Húsnæðisstofnunar ríkisins þá er hægt að fá lán án þess að vera í lífeyrissjóði, ef fólk hefur 75% örorku þ.e. örorku- lífeyri. 2. Ef fólk ætlar að flytja í leiguhúsnæði eða skipta á annan hátt um húsnæði, þar sem sjúkratryggingar greiða ekki kostnaðinn. tryggmgu 3. Ef fólk þarf að fá bílalán hjá Trygg- ingastofnun er ætlast til að það hafi örorkumat (50% — 65% — 75%). Vegna foreldra fatlaðra barna er skilyrði að hafa örorkumat. 4. Ef fólk sækir um bifreiðastyrk (áður tollaeftirgjöf) er spurt um örorkumat frá Tryggingastofnun. P.s. Sjúkratrygging á að: 1. Tryggja samlagsmönnum ókeypis vist á stofnunum sem Tryggingastofnun ríkisins hefur samning við. 2. Fái hjúkrun — læknishjálp — lyf—og aðra þjónustu sem veitt er á viðkom- andi stofnun (sjá gr. 42 í almtr,- lögum). Varðandi tannlækningar nægir að vera á sjúkratryggingu til að fá 100% endur- greitt. Kristín Jónsdóttir „Efni til umhugsunar" Reglur um ferðaþjón- ustu fatlaðra 1. Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð til afnota fyrir þá fbúa í Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnarnesi, sem eru: a. Bundnir hjólastól b. Blindir og geta eigi notað önnur flutningatæki. c. Hreyfihamlaðir vegna aldurs og fötlunar. 2. Ferðir til vinnu, skóla og lækninga ganga fyrir öðrum ferðum. 3- Fjöldi ferða til annarra einkaerinda er takmarkaður við 18 ferðir í mánuði hjá hverjum notanda. 4. Bílarnir eru 4 á daginn og 2 halda áfram á kvöldin. Virka daga kl. 7.30 — 17.30 og 17.30 — 24.00 Laugardaga: 8.30 — 24.00 Sunnudaga: 10.00 — 24.00 5. Fastar ferðir eru bundnar við atvinnu og nám og skal gera sérstakt sam- komulag um þær milli forsvarsmanna FÞF og þess, sem þjónustunnar nýtur. Eigi er skylt að veita hverjum not- anda fleiri ferðir en sem nemur tveim ferðum pr. vinnu- eða skóladag. Aðrar ferðir skal panta með sólar- hrings fyrirvara. 6. Þeir, sem njóta þjónustu FÞF, skulu hafa tilskilin skírteini, sem FÞF gefur út. Skírteini eru tvenns konar, annars vegar ársskírteini og hins vegar skír- teini, sem gefin eru út til skemmri tíma. Sækja skal um skírteini á þar til gerð- um eyðublöðum, sem fást á skrifstofu Sjálfsbjargar. 7. Sérstök farmiðakort fyrir aldraða og öryrkja gilda varðandi þjónustu FÞF. Verð þeirra er hið sama og á farmiða- kortum hjá S.V.R. Sýna þarf ferðaþjónustuskírteini, ef óskað er, við kaup farmiðakorta. Ferðaþjónustan er til húsa í Hátúni 12 og síminn er 12312. K.J. 11

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.