Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 4
4 28. febrúar 2020FRÉTTIR R agnar Bjarnason – betur þekktur sem Raggi Bjarna – var einn ástsæl- asti söngvari íslensku þjóðarinn- ar. Hann lést á þriðjudag á líknar- deild eftir skammvinn veikindi, 85 ára að aldri. Þrátt fyrir aldurinn var það aðeins fyr- ir örfáum mánuðum sem Raggi kvaddi stóra sviðið með stórtónleikum í Hörpu, enda var það draumur hans að geta sungið á með- an heilsan leyfði og meðan einhver hefði áhuga á að hlusta. Síðustu daga hafa margir kvatt þennan merka mann og rifjað upp ljúfar minningar. Raggi var þekktur fyrir glaðværð, jákvæðni og óbilandi ást á söng og tónlist. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Helle Birthe Bjarnason, þrjú börn og ellefu barnabörn. Vorkvöld í Reykjavík „Við vorum hópur af krökkum að leika okk- ur úti um kvöld. Sól og sumar. Kvöldsólin sindraði á gluggum blokkanna í Gnoðarvogi. Einn gluggi var opinn og út um hann barst lag og ein lína í textanum var endurtekin: Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. Röddin var svöl, mjúk og karlmannleg. Þarna heyrði ég í Ragga Bjarna í fyrsta skipti, og árið var 1963,“ skrifaði Bubbi Morthens í minningarorð- um sem hann birti á Facebook þar sem hann kveður sinn gamla vin. Reykjavík var stór hluti af lífi Ragga Bjarna. Þar fæddist hann þann 22. september 1934 og ólst í kjölfarið upp í lítilli risíbúð við Lækjargötu. Tónlistin var honum í blóð borin. Foreldrar hans, Bjarni Böðvars- son og Lára Magnúsdóttir, voru bæði haldin lífstíðardóm tónlistarbakteríunnar. Lára er oft nefnd sem ein fyrsta dægurlagasöngkona landsins og faðir hans, Bjarni, gerði garðinn frægan með hljómsveit sinni. Byrjaði á trommunum Ragnar vissi snemma að hann vildi fátt ann- að gera en að syngja. Áhuginn hafi byrj- að að kvikna er hann fylgdist með föð- ur sínum spila á tónleikum. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2005 sagði Raggi: „Pabbi, sem var með Hljóm- sveit Bjarna Böðvarssonar, fór með mig ungan að Minni-Borg í Gríms- nesi til að hlusta á Hauk Morthens. Hafi ekki verið búið að kveikja í mér þá, var ekki aftur snúið eftir að hafa hlustað á Hauk. Nú var ég ákveðinn hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og tók stefnuna á söng- frama, svona leynt og ljóst. Lærði á trommur hjá Svav- ari Gests, lauk prófi frá FÍH og tromm- aði fyrir hina og þessa fyrstu árin, eða allt þar til ég söng fyrir slysni á Akureyri þegar vantaði vanan trommuleik- ara sem gat líka sungið.“ Raggi var þá kom- inn ungur til Akureyrar með félögum sínum þar sem þeir höfðu verið ráðnir til að spila á Hótel KEA. Þá vantaði söngvara og hótel- stjórinn hlustaði á þá alla syngja og fannst Raggi vera skásti kosturinn. Og eftir þetta varð ekki aftur snúið. Ragnar hafði þar tek- ið sín fyrstu skref til að verða hinn ódauð- legi Raggi Bjarna og átti eftir að deila söng sínum með þjóðinni næstu 70 árin. Raggi og söngurinn voru í eldheitu ástarsambandi og má í raun segja að þeir hafi náð að halda upp á platínumbrúðkaup. Slysaðist í KK sextettinn Raggi átti eftir að koma víða við á ferlinum. Svavar Gests heyrði í Ragga syngja í kringum 1953 og bauð honum í kjölfarið plötusamn- ing. Á þeim tíma var Raggi trommuleikari í hljómsveit Árna Ísleifssonar og kom þá út fyrsta plata hans. Þá sneri Raggi sér frá trommun- um og alfarið að söngnum, eða allt þar til hann þurfti að taka sér pásu þegar faðir hans féll frá síðla árs 1955. Raggi átti þá eig- inkonu og tvö ung börn og þurfti að sjá fyrir þeim. Pásan varð þó ekki löng og árið 1956 slysaðist Raggi í KK sextettinn. Hann sagði DV árið 2014 frá þeirri ótrúlegu tilviljun sem leiddi hann saman við sextettinn. Raggi, sem var alla tíð með ólæknandi bíladellu, keyrði á þeim tíma leigubíl. Sextett- inn bráðvantaði söngkonur og datt bassaleik- ara hljómsveitarinnar, Jóni Sigurðssyni, í hug að hringja eftir leigubíl og rúnta um bæinn til að leita að söngkonum. Raggi Bjarna var sendur í það útkall. „Ég mætti og keyrði hann. Þegar við vorum búnir að keyra á nokkra staði segi ég honum að hætta þessu veseni; ég gæti bara gert þetta og væri með textann í skottinu. Ég fór með sextettinum til að spila á vellinum og var fyrsti karlsöngvarinn til að koma fram á vellinum með íslenskri hljómsveit.“ Njóta hverrar mínútu Árið 1960 kom út líklega frægasta og eftir- minnilegasta lag Ragga á ferlinum, Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig, og varð Raggi þá orðinn einn frægasti dægurlagasöngvari þjóðarinnar. Skemmtanalífið var farið að rífa í og Raggi ræddi um hvað hann hefði á þeim tíma skemmt sér meira en góðu hófi gegndi. Hann sagði í samtali við DV: „Það er mikil blessun ef manni tekst að komast í burtu frá áfenginu og sígarettunum. Ég er afskaplega þakklátur að það tókst á endanum því lífið er svo stutt. Það verðum við að vita þótt að við séum kornung. Lífið líður hjá á örskotsstund, þetta ættu allir að hugleiða og njóta hverrar mínútu. Svona líður mér enn á áttræðisaldri, ég vil nota hverja stund. Ég hef ekki mikinn tíma. Enginn hefur mikinn tíma.“ Það er staðreynd að… Það þarf aðeins tvo vöðva í andlitinu til að mynda bros. Letidýr geta haldið niðri í sér andanum í allt að 40 mínútur. Þjóðsöngur Grikklands hefur 158 erindi. Bandaríkjamenn borða daglega pítsur sem þakið gætu 7,30 hektara. Skammstöfun DNA stendur fyrir „Deoxyribonucleic acid“. Hver er hún n Hún er fædd í október árið 1942. n Hún starfaði sem flugfreyja hjá Loftleið- um í níu ár. n Hún var starfs- aldursforseti Alþingis árin 2006–2013. n Árið 2013 lét hún af þing- mennsku eftir 35 ára samfellda þingsetu. n Á þingferlinum beitti hún sér einkum í þágu láglaunafólks, öryrkja og aldraðra. SVAR: JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Við bjóðum góða nótt n Einn ástælasti söngvari þjóðarinnar fallinn frá n Enginn töffari bara singer n Kærði sig kollóttan um frægðina Erla Dóra erladora@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.