Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 6
6 28. febrúar 2020FRÉTTIR Fann ástina í Kaupmannahöfn Árið 1963 fannst Ragga kominn tími á til­ breytingu. Ári fyrr hafði slitnað upp úr hjónabandi hans og hann var kominn með leiða á lífinu í Reykjavík. Hann flutti þá til Kaupmannahafnar sem reyndist hon­ um mikið gæfuspor því þar kynntist hann stóru ástinni sinni, Helle Jensen, sem varð hans stoð og stytta lífið á enda. Hann var þá við það að skrifa undir tveggja ára samn­ ing sem átti að færa hann á ferðalag víða um Evrópu. En hann tók Helle fram yfir samninginn. „Umboðsmaðurinn varð svo reiður við mig að hann barði skrifborðið sitt í sundur,“ sagði Raggi við DV árið 2014. Svavar Gests hafði svo samband við Ragga og vildi ljúka ferli sínum með Ragga og Elly Vilhjálms, en Elly og Raggi voru miklir vin­ ir og vöktu mikla gleði þegar þau sungu saman. Þá sneri Raggi aftur til Íslands og tók að sjálfsögðu Helle með sér. „Helle er gæfan í mínu lífi. Hún hefur þessa þolin­ mæði og hugmyndafræði til að styðja við mig. Ég er þakklátur henni, samband okk­ ar er kraftaverk.“ Síðar tók Raggi við hljómsveit Svavars Gests, sem varð þá að sjálfsögðu hljóm­ sveit Ragnars Bjarnasonar, og spilaði með henni á Hótel Sögu í 19 ár. Samhliða spila­ mennskunni keyrði Raggi leigubíl. Árið 1972 stofnaði Raggi hina frægu Sumargleði með Ómari Ragnarssyni sem ferðaðist um landið á sumrin í 16 ár. Auk Ragga og Ómars voru í Sumargleðinni Bessi Bjarnason, Karl Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Þuríður Sigurðardóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Halli og Laddi, Her­ mann Gunnarsson og Þorgeir Ástvaldsson. Um Sumargleðina sagði Raggi í viðtali við DV árið 2014: „Við bulluðum og grínuðum út í eitt og þessi tími var sá allra gleðilegasti í mínu lífi. Það var mjög gefandi að ferðast um landið og kynnast Íslendingum.“ Bílaleiga og sjoppa í Breiðholti Bíladellan lék stórt hlutverk í lífi Ragga. Hann keyrði lengi leigubíl, hann starf­ aði sem bílasali hjá Sveini Egilssyni og starfrækti um átta ár bílaleiguna R.B. bíl­ ar. Síðan rak hann ásamt Helle sjoppu í Breiðholti. „Bílaleigan endaði með einhverjum ósköpum. En ég hef húmor fyrir því. Ég átti að vera með átta bíla en endaði með 30. Konan mín elti mig alla daga þegar ég var að sækja bíla. Hún hefur tvisvar lent í árekstri og í bæði skiptin keyrði hún aftan á mig. Hún var alltaf á eftir mér úti um allar trissur,“ sagði Raggi við DV 2014. Raggi fylgdist vel með nýjungum í tón­ list og hafði miklar mætur á ungu tónlistar­ fólki á Íslandi. Fyrir fimm árum söng hann með strákunum í XXX Rottweiler lagið Allir eru að fá sér og óskalag þjóðarinn­ ar, Þannig týnist tíminn, með Lay Low. Tveimur árum síðar söng hann með Sölku Sól lagið I’ve seen it all úr kvikmyndinni Dancer in the Dark. Raggi var mikils metinn meðal Ís­ lendinga og hlaut margar viðurkenningar fyrir störf sín í gegnum árið. Hann fékk meðal annars viðurkenningu Stjörnu­ messu DV og Vikunnar árið 1980 sem söngvari ársins í 30 ár, fékk heiðursverð­ laun Íslensku tónlistarverðlaunanna 1994, gullmerki FÍH 2003, fálkaorðuna 2004, var borgarlistamaður Reykjavíkur 2007, og fékk heiðurslaun listamanna árið 2019. Tónlistin var þó ekki það sem Raggi var stoltastur af. Í samtali við DV 2014 sagði hann: „Ég er stoltastur af börnunum mín­ um og barnabörnum, vinum mínum og fjölskyldu. Og Íslendingum. Ég er stoltur af því að vera hluti af þessari þjóð. Ís­ lendingar eru framtakssamir og þeir eru duglegir, alveg óhræddir við að opna sig.“ Á meðan einhver nennir að hlusta Í viðtali við helgarblað DV árið 2004 spurði blaðamaður Ragga hvort hann væri að hætta í bransanum. „Ég hætti ekki neitt. Ég syng svo lengi sem einhver nennir að hlusta á mig. Það losnar enginn við mig strax, því get ég lof­ að.“ Í sama viðtali sagði Raggi um aldur­ inn og ferilinn: „Guði sé lof að ég hef feng­ ið þá blessun að gera það sem mér finnst skemmtilegast. Haldið röddinni og getað verið áfram í tónlistinni, því sem ég hef gaman af. Það eru náttúrulega ekki allir sem eru svo heppnir að geta gert þetta fram eftir öllum aldri.“ Hann ítrekaði þetta svo aftur árið 2009 við DV: „Á meðan ég get gert þetta sæmilega og glatt einhverja með söngnum held ég áfram. Hvort það verði eftir áttrætt veit ég samt ekki. Ég hef verið heppinn, hef fengið að vinna við það sem ég hef mesta ánægju af og það er ómetan­ legt. Ég skil nú ekki hvaðan þessi töffara­ stimpill kemur. Ég er enginn töffari, ég er bara singer.“ Við bjóðum góða nótt Mikill meistari er fallinn frá. Hann snerti við mörgum en kærði sig þó kollóttan um frægðina. Það sem skipti hann máli var að gera það sem hann elskaði og deila því með þeim sem vildu hlusta. Fræg er sagan af því að þegar Ragga bauðst frægð í Bandaríkj­ unum. Þá barst honum boð frá sjónvarps­ manninum Johnny Carson um að koma í áheyrnarprufu fyrir amerískt sjónvarp. Raggi afþakkaði boðið þá pent, því hann hafði hreinlega engan áhuga á því. Þegar Raggi spilaði á dansleikjum hér forðum þá endaði hann alltaf „show­ið“ á laginu Við bjóðum góða nótt, rétt eins og hljómsveit föður hans hafði gert á árum áður. Þá vissi fólk að ballið var búið. Blaða­ maður sýnir Ragga því þá virðingu að ljúka hans balli með sama hætti: „Við bjóðum góða nótt, á meðan húmið sig hjúpar hljótt, lát söngs ljúfa mál, strengja stál, stilla sál. Lát söngsins enduróm, yrkja í hjartanu fögur blóm, það skapar lífinu léttan dóm. Nú hljóðnar harpan mín, heim til þín, kveðju ber. En brátt með fjör á ný, við fögnum því, hittumst hér. Á meðan húmið hljótt breiðir sinn faðm yfir frjálsa drótt við bjóðum öllum, öllum góða nótt. n Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR HÚSFÉLAGSINS Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.