Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 28. febrúar 2020 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Fortíðarbölið kostar sitt F yrir ekki svo löngu skrifaði ég leiðara um gleymdu börnin. Börn sem alast upp við óöryggi, ofbeldi og foreldra í vímuefna- móki. Hvernig við horfum í hina áttina og skiptum okkur ekki af þessum börnum. Svo alast þessi börn upp, týnd í þessum heimi, án grunnlærdóms sem foreldrar í uppeldinu eiga að veita okkur. Þessi leiðari vakti nokkur viðbrögð og fékk ég orðsendingar frá ýmsum af þessum börn- um sem höfðu fetað misjafnar leiðir í lífinu. Saga eins barnsins, sem fyrir löngu er orðið fullorðið, stakk mig. Það barn nálgast nú miðjan aldur og hefur þurft að eyða ævinni allri í að berjast við djöfla fortíðar. Um langa hríð lokaði barnið dyrunum að því helvíti sem æskan var og vonaði heitt og innilega að dyrnar yrðu læstar um aldir alda. Svo fór ekki. Því hefur barnið nú þurft að gera upp æskuna með ýmiss konar sérfræðingum. Þetta barn er nú fullorðið og með alls konar greiningar sem rekja má til áfalla í æsku. Alvarlegar greiningar og sjúkdóma sem þarfn- ast meðhöndlunar ævina á enda. Svo alvarlegt er það að óvíst er hvort þetta barn geti áfram stundað hefðbundna vinnu. Hugsanlega tek- ur við langt endurhæfingartímabil með til- heyrandi vinnutapi og minnkandi tekjum. Þetta uppgjör þessa barns er síðan langt því frá að vera ókeypis. Þetta barn er ekki á flæðiskeri statt en syndir heldur ekki í seðlum. Ræður við ákveðin útgjöld um hver mánaða- mót en hins vegar má ekki mikið út af bera til að endalok mánaðarins verði erfið. Síðustu mánuði hefur þetta barn eytt mörg hundruð þúsund krónum í lækniskostnað. Hátt í hálfa milljón yfir fjögurra mánaða tímabil. Þessir aurar hafa farið í greiningarferli, sálfræði- kostnað, geðlæknakostnað og lyf. Þetta barn hefur leitað þeirra leiða sem mögulegt er til að fá kostnað endurgreiddan eða lækkaðan, en það er aðeins brotabrot af heildarmyndinni. Þetta barn hafði samband við mig, af því að því fannst það skjóta skökku við að for- tíðarbölið kostaði framtíðina svona mikið. Þessi fullorðni einstaklingur átti jú enga sök á þeim áföllum sem hann þurfti að horfa upp á sem barn. Þessi manneskja hafði oft borgað fyrir syndir foreldra sinna, þó ekki með pen- ingum, í gegnum tíðina. Þurft að líða fyrir það í fjölskyldunni að vera barn alkóhólista. Alkó- hólista sem oft sviku loforð eða gerðu hluti sem særðu fólkið í kringum þá. Skuldin lenti á barninu, enda foreldrarnir ekki með rænu til að greiða hana upp. Svo loks þegar tilfinn- ingalega skuldin er uppgreidd kemur annar stór og feitur tékki fyrir restinni. Í minningum þessa barns fengu foreldrar þess ávallt þá hjálp sem þeir þurftu. Þau fóru inn og út úr meðferð og fengu ríkan stuðn- ing í hvert sinn sem þau gerðu sig líkleg til að þurrka sig upp. Fóru á alls kyns fundi og voru hvött til að hugsa vel um sig sjálf. Barnið hins vegar gleymdist. Það fékk engan stuðning, enga fundi eða meðferð. Það var skilið eftir einhvers staðar og einhvers staðar og átti síð- an að vera boðið og búið að taka afsökunar- beiðnir foreldranna gildar þegar vímuefna- mókið rann af þeim. Það er fátt ósanngjarnara en að greiða skuldir sem maður stofnaði ekki til. Vera beittur óréttlæti. Þetta er bara ein saga af mörgum. Raunverulegt dæmi um hvaða áhrif afskiptaleysi hefur. Hvers konar manneskjur það elur af sér. Er það svona framtíð sem við viljum skapa börnum? n Auglýst eftir ríkisstjórn Íslands Á Alþingi í vikunni stigu nokkrir þingmenn upp í pontu og auglýstu eftir ríkisstjórn landsins. „Er hún hætt?“ spurði Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Tilefni auglýsingarnar var skortur á málum frá ríkisstjórninni, sérstaklega málum sem stjórnin hafi boðað og fjöldi mála frá þingmönnum sem séu send í nefndir að því er virðist til að daga uppi. Oddný Harðar nefndi að einnig væru dæmi um að nefndarformenn felli frekar niður fundi heldur en að taka þessi mál fyrir, þótt þau séu um 2/3 þeirra mála sem fjallað hafi verið um á þessu þingi. Líklega er eðilegt að þingmenn spyrji sig hvar ríkisstjórnin sé, enda gífurleg sóun á skattpeningum að eyða tíma í þras og mas til einskis. 1.852 dagar Í svari dóms- mála–ráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni, þingmanni Pírata, kemur fram að lengsti tími frá því að beiðni um breytingu á umgengni barns berst embætti sýslumannsins á höfuðborgar- svæðinu þar til máli er lokið er 1.852 dagar, eða rúmlega fimm ár. Á fimm árum getur maður; klárað alla mennta- skólagönguna og tvö ár af há- skóla.Fimm ár er hálfur ára- tugur. Á fimm ára tímabili gæti manneskja kosið til Alþing- is tvisvar. Þessi staða hlýtur að þurfa að vera í forgangi hjá stjórnvöldum. Mál foreldra eru bráð og mega vart bíða því tím- inn eldir manninn og börnin líka. Eða eiga foreldrar kannski bara að bíða aðeins lengur eft- ir að börnin verði fullorðin og engin þörf á breytingu á um- gengni? Spurning vikunnar Hvert er vanmetnasta Eurovision-lagið? Lífið er lag með Model er klárlega van- metnasta lagið. Stefán Jakobsson Að mínu mati er vanmetnasta Eurovision- lagið Taken by a stranger sem fór út fyrir hönd Þýskalands 2011. Iva Marín Adrichem Ég held að ég verði að segja lagið Karen með Bjarna Arasyni, það var í öðru sæti í undankeppninni árið 1992, sama ár og ég fæddist. Það er klárlega eitt af mínum allra uppáhalds íslensku Eurovision-lög- um og það eldist líka svo vel. Ég elska allt við þetta lag og fæ gæsahúð í hvert einasta skipti sem ég hlusta á það. Ísold Wilberg Eurovision 2015 – Lettland, Aminata með lagið Love Injected. Það er mitt „all time favorite“ og náði langt en er strax gleymt. Nína Dagbjört Helgadóttir Þ að styttist óðum í úrslitakvöld Söngvakeppninnar 2020 og fyrir harð- kjarna Eurovision-aðdá- endur er nú runninn upp dásamlegasti tími ársins. Næstu mánuði skýrist hvaða lög og flytjend- ur verða fulltrúar sinna landa í sjálfri Eurovision- -keppninni í Rottedam og stendur þessi veisla yfir allt fram yfir miðjan maí. Flestir eiga sín uppáhalds Eurovision-lög, en blaða- manni lék þó forvitni á að vita hvað keppendur í úr- slitunum hér heima, telja vanmetnasta Eurovison- lagið. MYND: EYÞÓR ÁRNASON Allt í rusli Brátt verður bikar þolin- mæðinnar líka barmafullur – má ætla. Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.