Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Side 10
10 28. febrúar 2020FRÉTTIR
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
UNGLINGAR SEM FREMJA ALVARLEGA GLÆPI
n Hópárás á 14 ára pilt í Kópavogi hefur vakið mikinn óhug Takmörkuð úrræði í boði fyrir unglinga sem fremja alvarleg ofbeldisbrot
F
jórtán ára piltur í Kópa
vogi varð fyrir fólskulegri
líkamsárás af hálfu ung
lingspilta á aldrinum 15
til 17 ára fyrr í þessum mánuði.
Myndskeið af atvikinu sýnir pilt
ana ráðast á fórnarlambið með
höggum og spörkum. Fram hef
ur komið í fjölmiðlum að fórn
arlambið sé af erlendum upp
runa og telur telur faðir hans ekki
útilokað að ástæða árásarinnar sé
útlendingaandúð. Myndskeið af
árásinni hefur verið í dreifingu á
samfélagsmiðlum undanfarið og
vakið mikinn óhug.
Einn af þeim ráðamönnum
sem hafa tjáð sig um málið er Sig
urbjörg Erla Egilsdóttir, bæjar
fulltrúi Pírata í Kópavogi, en hún
gerði árásina að umræðuefni á
fundi bæjarstjórnar í Kópavogi
á dögunum og kallaði eftir við
brögðum bæjaryfirvalda. Sagðist
hún hafa sent erindi til bæjarráðs
með tillögu þess efnis að Kópa
vogsbær hefji átak gegn einelti
og ofbeldi meðal ungmenna. Þá
sagðist hún vilja kalla til fulltrúa
frá lögreglunni til þess að ræða
verklag þeirra þegar upp koma
mál sem varða ofbeldi og mis
munun meðal ungmenna.
Meðferðarúrræði fyrir af
brotaunglinga eru af skorn
um skammti hérlendis. Barn
er einstaklingur undir átján ára
aldri, bæði samkvæmt íslenskum
lögum og barnasáttmála Sam
einuðu þjóðanna. Sakhæfisaldur
á Íslandi er 15 ár og lúta börn á
aldrinum 15 til 18 ára sömu lög
um og fullorðnir sakborningar.
Ýmis ákvæði í lögum kveða þó á
um sérstaka meðferð í þeim mál
um þar sem um unga sakborn
inga er að ræða, en flest af þeim
ungmennum sem hafa verið
dæmd fyrir alvarlega glæpi á Ís
landi hafa hlotið skilorðsbundinn
fangelsisdóm. Í mörgum tilfellum
hafa ungmenni verið send á með
ferðarheimili. Lítið er þó um eftir
fylgni og stuðning í kjölfarið.
Seinustu áratugi hafa komið
upp nokkur alvarleg hópárásar
mál hér á landi þar sem gerend
urnir og fórnarlömb eru ung
menni undir 18 ára aldri. Dæmi
eru um að fórnarlömb sitji upp
með varanlegan skaða og jafnvel
örkuml.
„Kom um, þetta er nóg“
Árið 2016 átti sér stað hættuleg
og alvarleg líkamsárás á bílapl
ani Langholtsskóla í Reykjavík.
Fórnarlambið var unglingsstúlka,
nemandi í Austurbæjarskóla, en
hún hafði lengi mátt þola mikið
einelti. Gerendurnir voru þrjár
aðrar unglingsstúlkur en sú fjórða
tók árásina upp á myndband sem
síðar fór í umferð á samfélags
miðlum. Árás in var með þeim
hætti að stúlk an fékk skila boð þar
sem hún var spurð hvar hún væri
stödd. Stuttu síðar mættu stúlk
urnar fjórar og réðust á hana.
Á myndskeiðinu má sjá stúlk
urnar lemja og niðurlægja fórnar
lambið með hrottalegum hætti á
meðan það liggur á gangstéttinni.
Undir lokin heyr ist ein úr hópn
um segja: „Kom um, þetta er
nóg.“ Málið var kært til lögreglu
en aðeins einn af gerendunum
hafði náð sakhæfisaldri.
Annar gerandinn svipti sig lífi
Eitt alvarlegasta tilfellið átti sér
stað í október 1993. Þá varð 15 ára
gömul stúlka, Guðrún Jóna Jóns
dóttir, fyrir hrottalegri líkamsárás
af hálfu þriggja stúlkna í mið
borg Reykjavíkur. Stúlkurnar sátu
fyrir Guðrúnu, réðust á hana með
höggum og barsmíðum og mis
þyrmdu henni hrottalega. Guð
rún og móðir hennar ræddu við
DV í nóvember 2002 og þar sagði
meðal annars:
Guðrún man allt sem gerðist
þegar fólskuverkið var framið.
Þær vinkonurnar voru að koma
úr afmæli og ákváðu að kíkja
aðeins í bæinn. Þar gerðist það.
Bláókunnugar stelpur réðust á
hana og héldu henni niðri á hár-
inu meðan þær spörkuðu i höfuð
hennar.
„Ég v r ofboðslega hrædd og
hrópaði í sífellu: „Hættið þið.
Eruð þið óðar?“ En það var eins
og þær væru ekki mennskar.“
Guðrún Jóna lá meðvitundar
laus í öndunarvél í meira en
mánuð eftir árásina. Þegar hún
vaknaði kom í ljós að hún hafði
hlotið varanlegan heilaskaða.
Hún hefur verið bundin við hjóla
stól síðan og er með afar takmark
aða málgetu.
Lögregla taldi ekki sannað að
þrjár stúlkur hefðu tekið þátt í
árásinni á Guðrúnu, heldur tvær.
Þær voru 14 og 16 ára á þess
um tíma. Báðar voru þær farnar
að neyta áfengis og fíkniefna. Sú
yngri var ekki ákærð, enda undir
sakhæfisaldri, en var hins vegar
send á upptökuheimili. Henni
tókst síðar meir að koma lífi sínu
á rétta braut.
„Ég græt mig enn í svefn yfir
því sem ég gerði. Ég hef þurft að
lifa með þessu – og það hefur
ekki verið auðvelt. Ég mun aldrei
hætta að refsa mér fyrir þetta,“
sagði hún í samtali við Fréttatím
ann árið 2012.
Eldri stúlkan hlaut þriggja ára
fangelsisdóm. Hún sat hins vegar
aðeins inni í rúmt ár. Dómari við
Hæstarétt skilaði sératkvæð og
vildi skilorðsbinda dóm yfir stúl
kunni. Tók hann fram að stúlk
an hefði löngum búið við erfið
ar heimilisaðstæður og „þurfi að
horfast í augu við þá þungbæru
staðreynd að hafa lagt framtíð
15 ára stúlku svo að segja í rúst í
einu vetfangi.“ Sami dómari taldi
það geta reynst henni skaðlegt og
torveldað henni að takast á við
vanda sinn í framtíðinni að sitja
í fangelsi. Stúlkan sökk djúpt í
neyslu áfengis og fíkniefna eftir
að hún losnaði úr fangelsi. Hún
svipti sig lífi árið 2012.
Hótað lífláti ef hún kjaftaði frá
Árið 2009 kom upp annað
hópárásarmál þar sem fórn
arlambið var fimmtán ára stúlka.
Gerendurnir voru sjö stúlkur á
aldrinum 16 til 17 ára. Aðdrag
andi árásarinnar var sá að ein af
stúlkunum taldi sig eiga óupp
gerðar sakir við fórnarlambið og
fékk það inn í bíl til að ræða mál
in. Við Suðurver settust sex aðr
ar stúlkur inn í bílinn og í fram
haldinu var bílnum ekið upp í
Heiðmörk en annar bíll ók á eftir
þar sem unglingspiltur var und
ir stýri. Í Heiðmörk var stúlkan
dregin út og ráðist á hana. Þrjár
úr hópnum gengu hvað harðast
Grein um árásina á Guðrúnu
Jónu birtist í DV árið 2002.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is