Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 20
Veislur framundan 28. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
LUX VEITINGAR:
Svo miklu meira en
bara veisluþjónusta!
Veislu og veitingaþjónustan Lux veitingar var stofnuð af þeim Hinriki Lárussyni
og Viktori Erni árið 2018. Lux
veisluþjónusta sérhæfir sig í fyrsta
flokks veitingum og veisluhaldi
fyrir hin ýmsu mannamót svo sem
brúðkaup, einkaveislur, árshátíðir,
fermingar, útskriftir og margt fleira.
„Góð veisluþjónusta þarf að gera
ýmislegt fleira en að framreiða
góðan mat og okkar aðalsmerki eru
lúxus, gæði og góð þjónusta. Við
hjá Lux veitingum erum þekktir fyrir
að stíga út fyrir kassann til þess að
uppfylla nær alla villtustu drauma
viðskiptavina okkar. Þú getur treyst
því að við hugsum fyrir hverju
einasta smáatriði.
Saman getum við töfrað fram
draumaveisluna þína, því hver veisla
er einstök og sérsniðin að hverjum
viðskiptavini fyrir sig,“ segir Viktor.
Hjá Lux Veitingum starfar úrvalslið
kokka og matreiðslumeistara og
þess má geta að tveir meðlimir
í kokkalandsliðinu starfa hjá
veitingaþjónustunni. Það eru þeir
Ísak Aron Jóhannsson og Ísak Darri
Þorsteinsson.
Ekkert er ómögulegt!
Senn rennur tími ferminga og
útskrifta í garð. Sama hvert tilefnið
er þá vitum við að þín veisla á skilið
það besta. Á vefsíðu Lux veitinga er
hægt að panta ýmist tilbúnar veislur,
samsetta matseðla eða velja saman
ýmsa smárétti. Þá eru meðal annars
tilbúnir fermingarmatseðlar sem og
fyrir útskriftir. Einnig er tekið á móti
séróskum í síma 852-6757 eða í
tölvupósti veitingar@luxveitingar.is.
„Við eldum matinn á staðnum sem
tryggir ferskleika matarins. Þá getum
við sett upp fullbúið eldhús hvar
sem er og reitt fram ógleymanlega
veislu, sama hvort þemað er látlaus
steikarveisla í óbyggðum eða
smáréttahlaðborð í borðstofunni
þinni – ekkert er ómögulegt!“
Sælkerabúðin
Sælkeraverslun á vegum Lux
Veitinga verður opnuð í lok apríl
næstkomandi. „Verslunin mun bera
nafnið Sælkerabúðin og er ætlunin
að selja þar ýmiss konar „gúrmei“
sælkeravörur. Á staðnum verður
kjötborð þar sem hægt verður að
velja ýmislegt gómsætt í matinn.
Þá munum við leggja áherslu á gott
úrval af girnilegu meðlæti. Ýmislegt
ljúffengt verður á boðstólum eins og
grillað brokkolini, saltbökuð seljurót
og fleira. Einnig munum við bjóða
upp á úrval osta sem og ýmislegt
annað góðgæti.“
Sælkerapakkar fyrir matarboðið
Sælkerabúðin mun bjóða upp
á spennandi nýjung þar sem
hægt verður að panta sérstaka
sælkerapakka. „Viðskiptavinurinn
pantar þá hjá okkur matarpakka
með öllu sem þarf til þess að halda
dýrindis matarboð fyrir fyrirfram
ákveðinn fjölda gesta. Hægt verður
að fá matarpakka t.d. fyrir tvo í
rómantískan kvöldverð eða fleiri
ef um er að ræða matarveislu.“
Við hvetjum alla til að fara inn
á saelkerabudin.is og skrá sig á
póstlistann hjá okkur til þess að fá
2.000 kr. inneign á fyrstu pöntuninni
á sælkerapakka frá Lux Veitingum.
Spennandi námskeið á vegum Lux
Inn af Sælkerabúðinni verður svo
fullbúið heimiliseldhús með nýlegum
eldhústækjum. „Þar er ætlunin að
halda ýmis skemmtileg og fræðandi
matreiðslunámskeið fyrir allt að
10–12 manna hópa. Þetta er t.d.
stórsniðugt fyrir fyrirtæki til að halda
starfsdaga eða samhristinga. Ef fólk
hefur áhuga á að panta námskeið
eða sælkerapakka hjá okkur er
um að gera að fylgjast með Lux
Veitingum á Facebook. Þar munum
við auglýsa nánar hvers kyns
námskeið verða í boði.“
Lux Veitingar, Bitruhálsi 2, 110
Reykjavík.
Nánari upplýsingar má nálgast
á vefsíðunni luxveitingar.is eða á
Facebook-síðunni: Lux Veitingar
Sími: 852-6757
Tölvupóstur: viktor@luxveitingar.is
Instagram: @luxveitingar
Viktor til vinstri og Hinrik til hægri.