Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Page 23
Veislur framundan28. febrúar 2020 KYNNINGARBLAÐ
Á rúmu ári hefur veisluþjónustunni Hlyni kokki heldur betur vaxið fiskur um
hrygg. „Ég byrjaði smátt og hef svo
aukið við mig hægt og bítandi,“ segir
Hlynur Guðmundsson. Eftir aðeins
eitt ár í veisluþjónustubransanum
er Hlynur kokkur á allra vörum,
bókstaflega, enda hefur hann séð
um gómsætan veislumat í fjölda
einkaviðburða um land allt.
Hlynur með syni sínum.
„Ég hef verið kokkur í yfir þrjátíu ár.
Lengst af var ég kokkur á sjó og
eftir það fór ég að starfa á ýmsum
veitingahúsum í landi. Fyrir ári
stofnaði ég veisluþjónustuna. Þetta
er virkilega gefandi starf enda hittir
maður margt skemmtilegt fólk, oftar
en ekki við miklar hamingjustundir í
lífi þess. Hingað til hef ég starfað við
þetta svo til einn míns liðs, en þegar
um stærri veislur er að ræða eins og
stór brúðkaup eða útskriftarveislur,
fæ ég til liðs við mig hjálparkokka.
Eftir 30 ár í bransanum þekkir
maður orðið margt fært
matreiðslufólk.“
Eftirspurnin eykst hratt
Veisluþjónusta Hlyns kokks sér um
hvers kyns viðburði, stóra sem smáa,
svo sem útskriftarveislur, fermingar,
brúðkaup, fundi, smærri veislur, og
margt fleira. Nú eru fermingarnar á
næsta leiti og að sögn Hlyns er fólk
duglegt að panta veisluþjónustu
með góðum fyrirvara. „Það er að
verða ansi mikið bókað hjá hjá mér
í apríl, enda eru flestar fermingar
þá. Einnig hef ég fengið fjölmargar
pantanir fyrir hinar ýmsu veislur og
viðburði í sumar og haust, og þá er
ég farinn að bóka fyrir næsta ár.
Það eru bara spennandi tímar fram
undan og eftirspurnin eykst hratt.“
Vinsælustu réttirnir fyrir
fermingarveislurnar eru að sögn
Hlyns kjúklingasúpa og hinir ýmsu
smáréttir, svo sem kjúklingaspjót og
smáhamborgarar. „Borgarana er
hægt að fá í margs konar útfærslu
svo sem með nautalund, pulled pork,
vegan og margt fleira.
Við erum afar sveigjanleg og
tökum að sjálfsögðu við öllum
séróskum í mat. Við gerum ávallt
okkar besta til að uppfylla óskir
viðskiptavina okkar, enda er matur
algert töfrahráefni í veislum. Góður
matur er það sem dregur fólk
saman á flestum okkar mikilvægustu
stundum. Veisla án matar er eins og
dansleikur án tónlistar.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Hlynur kokkur
Hlynur tekur við pöntunum og
fyrirspurnum í síma 854-6116 og í
gegnum tölvupóst á hlynurkokkur@
gmail.com
Bókanir fyrir árið 2020 og 2021 eru
í fullum gangi!
HLYNUR KOKKUR:
Töfrahráefnið
í góðri veislu