Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 23
Veislur framundan28. febrúar 2020 KYNNINGARBLAÐ Á rúmu ári hefur veisluþjónustunni Hlyni kokki heldur betur vaxið fiskur um hrygg. „Ég byrjaði smátt og hef svo aukið við mig hægt og bítandi,“ segir Hlynur Guðmundsson. Eftir aðeins eitt ár í veisluþjónustubransanum er Hlynur kokkur á allra vörum, bókstaflega, enda hefur hann séð um gómsætan veislumat í fjölda einkaviðburða um land allt. Hlynur með syni sínum. „Ég hef verið kokkur í yfir þrjátíu ár. Lengst af var ég kokkur á sjó og eftir það fór ég að starfa á ýmsum veitingahúsum í landi. Fyrir ári stofnaði ég veisluþjónustuna. Þetta er virkilega gefandi starf enda hittir maður margt skemmtilegt fólk, oftar en ekki við miklar hamingjustundir í lífi þess. Hingað til hef ég starfað við þetta svo til einn míns liðs, en þegar um stærri veislur er að ræða eins og stór brúðkaup eða útskriftarveislur, fæ ég til liðs við mig hjálparkokka. Eftir 30 ár í bransanum þekkir maður orðið margt fært matreiðslufólk.“ Eftirspurnin eykst hratt Veisluþjónusta Hlyns kokks sér um hvers kyns viðburði, stóra sem smáa, svo sem útskriftarveislur, fermingar, brúðkaup, fundi, smærri veislur, og margt fleira. Nú eru fermingarnar á næsta leiti og að sögn Hlyns er fólk duglegt að panta veisluþjónustu með góðum fyrirvara. „Það er að verða ansi mikið bókað hjá hjá mér í apríl, enda eru flestar fermingar þá. Einnig hef ég fengið fjölmargar pantanir fyrir hinar ýmsu veislur og viðburði í sumar og haust, og þá er ég farinn að bóka fyrir næsta ár. Það eru bara spennandi tímar fram undan og eftirspurnin eykst hratt.“ Vinsælustu réttirnir fyrir fermingarveislurnar eru að sögn Hlyns kjúklingasúpa og hinir ýmsu smáréttir, svo sem kjúklingaspjót og smáhamborgarar. „Borgarana er hægt að fá í margs konar útfærslu svo sem með nautalund, pulled pork, vegan og margt fleira. Við erum afar sveigjanleg og tökum að sjálfsögðu við öllum séróskum í mat. Við gerum ávallt okkar besta til að uppfylla óskir viðskiptavina okkar, enda er matur algert töfrahráefni í veislum. Góður matur er það sem dregur fólk saman á flestum okkar mikilvægustu stundum. Veisla án matar er eins og dansleikur án tónlistar.“ Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Hlynur kokkur Hlynur tekur við pöntunum og fyrirspurnum í síma 854-6116 og í gegnum tölvupóst á hlynurkokkur@ gmail.com Bókanir fyrir árið 2020 og 2021 eru í fullum gangi! HLYNUR KOKKUR: Töfrahráefnið í góðri veislu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.