Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Síða 37
SAKAMÁL 3728. febrúar 2020 DAUÐI FARANDSÖLUMANNS Jay Orbin sneri heim úr söluferð og sást ekki á lífi eftir það D ómari nokkur í Arizona í Bandaríkjunum setti Marjorie Orbin í hóp með alræmdustu morðingj- um fylkisins, þann 1. október, árið 2009. Óhætt er að segja að það sé vafasamur félagsskapur en sennilega hefur Marjorie verið vel að því komin í ljósi þess sem hún hafði á samviskunni. Dómarinn, Arthur Anderson, sagði við Marjorie rétt áður en hann kvað upp dóm yfir henni: „Það sem þetta virðist vera, frú mín góð, er opinberun á þinni dekkstu hlið. Þegar því svartnætti er sleppt lausu, er það eins svart og hugsast getur.“ Hvað hafði Marjorie Orbin gert sem verðskuldaði svo þung orð? Horfinn eiginmaður Þannig var mál með vexti að Jay Orbin, 47 ára eiginmaður Marjorie, hafði horfið af yfirborði jarðar í september árið 2004, þegar hann kom til Phoenix. Hann hafði þá ferð- ast um þver og endilöng Bandaríkin og selt skartgripi og listaverk frumbyggja álfunnar, snúið heim til Phoenix og horfið. Einhverju síðar kom Jay reyndar aftur upp á yfirborðið, allavega hluti af honum, þegar höfuðlaus búkur hans fannst í eyðimörk í norðurhluta Phoenix. Búknum hafði verið troðið í stóran plaststamp með loki. Afgangurinn af líki Jays fannst hins vegar aldrei. Óhugnanlegur fundur Samkvæmt farsímagögnum og kreditkortanotkun hafði Jay komið heim 8. september og, sem fyrr segir, sást ekki á lífi eftir það. Það var síðan 23. október að náungi sem bjó í eyðimörkinni hnaut um plaststampinn, sem var vafinn inn í svart, þykkt plast. Hann opnaði stampinn og við honum blasti höfuð- og hand- leggjalaus búkur. „Allt innvolsið, líffæri og innyfli voru horfin … Ég hugs- aði „hver myndi gera svona við manneskju? Skera af handleggina, fótleggina, höf- uðið“? sagði Dave Barnes, rannsóknarlögreglumaður í Phoenix, um líkfundinn. Stundum þarf ekki að leita langt yfir skammt og sú var raunin í þessu tilviki. Skrautleg fortíð Marjorie var ákærð fyrir morðið. Á meðal sönnunargagna gegn henni var upptaka úr eftirlits- myndavél sem sýndi hana kaupa tvo plaststampa eins og þann sem búk Jays hafði verið troðið í. Marjorie var þá 47 ára og átti skrautlega fortíð, hvort tveggja ef horft var langt aftur í tímann eða skammt. Fyrr meir hafði Marjorie séð sér farborða með því að vinna á næturklúbbum. Þar hafði hún dansað „exótískan“ dans, þeim til skemmtunar sem unun hafa af slíku. Eftir að hún giftist Jay lét Marjorie af þeim starfa, en að sögn átti hún erfitt með að halda hjúskaparheitin í heiðri. Eftir að réttarhöldin hófust, síðla janúarmánaðar árið 2009, kom í ljós að Marjorie hafði átt í ástarsambandi við nokkuð marga karlmenn og nokkrir þeirra báru vitni þegar réttað var yfir henni. Réttarhöld tefjast Ákæruvaldið taldi að Marjorie hefði skotið eiginmann sinn til bana og síðan sundurlimað lík hans. Það hefði hún gert til að halda ástar- ævintýrum sínum leyndum og ekki síður til að komast yfir eigur hans og fé. Réttarhöldin drógust að- eins úr hömlu þegar born- ar voru brigður á starfshætti saksóknara en hann hafði á ferilskránni mál manns sem hafði verið saklaus dæmd- ur um morð og setið tíu ár í fangelsi. Einnig hafði sak- sóknarinn komið að öðru máli þar sem áhöld voru um hvort játning hefði ver- ið fengin með löglegum hætti. Reyndar þurfti sak- sóknarinn, Noel Levy, að segja sig frá máli Marjorie, en þá vegna heilsubrests. Nýr saksóknari og frekari töf Í apríl tók nýr saksóknari, Treena Kay, við keflinu af Levy og í september var Marjorie sakfelld fyrir morðið á Jay og tveimur vikum síðar varð það niðurstaða kviðdóms að Marjorie slyppi við dauðadóm og fengi lífstíðardóm þess í stað. Töf varð á því að dómari í málinu kvæði upp endan- legan dóm yfir Marjorie því í millitíðinni höfðu komið í ljós í sjónvarpsþætti nýjar upplýsingar. Í þættinum var sjónum beint að fullyrðingum Marjorie þess efnis að einn ástmanna hennar, Larry Weisberg, hefði myrt eiginmann hennar, en Weisberg þessum hafði verið veitt friðhelgi gegn því að hann vitnaði gegn henni. Niðurstaða Lögfræðingar Marjorie fóru fram á ný réttarhöld. Meinta aðild Weisberg hafði borið á góma við réttarhöldin en einnig hafði Marjorie sakað bróður Jays, Jake, um að hafa eytt sönnunargögnum og beint sjónum rannsóknarlög- reglunnar að henni því hann myndi erfa allar eigur Jays ef hún yrði sakfelld. Dómarinn hafnaði beiðni um ný réttarhöld og þann 1. október, 2009, kvað hann upp lífstíðardóm yfir Marjorie Orbin. n Það sem fannst Plaststampurinn sem fannst í eyðimörkinni. Marjorie Orbin Sagði ástmann sinn hafa framið morðið. Jay Orbin Hvarf í kjölfar söluferðar. „Kom í ljós að Marjorie hafði átt í ástarsambandi við nokkuð marga karlmenn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.