Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Qupperneq 37
SAKAMÁL 3728. febrúar 2020
DAUÐI FARANDSÖLUMANNS
Jay Orbin sneri heim úr söluferð og sást ekki á lífi eftir það
D
ómari nokkur í Arizona í Bandaríkjunum setti
Marjorie Orbin í hóp með alræmdustu morðingj-
um fylkisins, þann 1. október, árið 2009. Óhætt
er að segja að það sé vafasamur félagsskapur en
sennilega hefur Marjorie verið vel að því komin í ljósi
þess sem hún hafði á samviskunni.
Dómarinn, Arthur Anderson, sagði við Marjorie rétt
áður en hann kvað upp dóm yfir henni: „Það sem þetta
virðist vera, frú mín góð, er opinberun á þinni dekkstu
hlið. Þegar því svartnætti er sleppt lausu, er það eins svart
og hugsast getur.“
Hvað hafði Marjorie Orbin gert sem verðskuldaði svo
þung orð?
Horfinn eiginmaður
Þannig var mál með vexti að Jay Orbin, 47 ára eiginmaður
Marjorie, hafði horfið af yfirborði jarðar í september árið
2004, þegar hann kom til Phoenix. Hann hafði þá ferð-
ast um þver og endilöng Bandaríkin og selt skartgripi og
listaverk frumbyggja álfunnar, snúið heim til Phoenix og
horfið.
Einhverju síðar kom Jay reyndar aftur upp á yfirborðið,
allavega hluti af honum, þegar höfuðlaus búkur hans
fannst í eyðimörk í norðurhluta Phoenix. Búknum hafði
verið troðið í stóran plaststamp með loki. Afgangurinn af
líki Jays fannst hins vegar aldrei.
Óhugnanlegur fundur
Samkvæmt farsímagögnum og kreditkortanotkun hafði
Jay komið heim 8. september og, sem fyrr segir, sást ekki á
lífi eftir það. Það var síðan 23. október að náungi sem bjó
í eyðimörkinni hnaut um plaststampinn, sem var vafinn
inn í svart, þykkt plast. Hann opnaði stampinn og við
honum blasti höfuð- og hand-
leggjalaus búkur.
„Allt innvolsið, líffæri og
innyfli voru horfin … Ég hugs-
aði „hver myndi gera svona
við manneskju? Skera af
handleggina, fótleggina, höf-
uðið“? sagði Dave Barnes,
rannsóknarlögreglumaður í
Phoenix, um líkfundinn.
Stundum þarf ekki að leita
langt yfir skammt og sú var
raunin í þessu tilviki.
Skrautleg fortíð
Marjorie var ákærð fyrir morðið.
Á meðal sönnunargagna gegn
henni var upptaka úr eftirlits-
myndavél sem sýndi hana kaupa
tvo plaststampa eins og þann
sem búk Jays hafði verið troðið í.
Marjorie var þá 47 ára og átti
skrautlega fortíð, hvort tveggja ef
horft var langt aftur í tímann eða
skammt. Fyrr meir hafði Marjorie
séð sér farborða með því að vinna
á næturklúbbum. Þar hafði hún
dansað „exótískan“ dans, þeim
til skemmtunar sem unun hafa af
slíku.
Eftir að hún giftist Jay lét Marjorie af þeim starfa, en
að sögn átti hún erfitt með að halda hjúskaparheitin í
heiðri. Eftir að réttarhöldin hófust, síðla janúarmánaðar
árið 2009, kom í ljós að Marjorie hafði átt í ástarsambandi
við nokkuð marga karlmenn og nokkrir þeirra báru vitni
þegar réttað var yfir henni.
Réttarhöld tefjast
Ákæruvaldið taldi að Marjorie hefði skotið eiginmann
sinn til bana og síðan sundurlimað lík hans. Það hefði
hún gert til að halda ástar-
ævintýrum sínum leyndum
og ekki síður til að komast
yfir eigur hans og fé.
Réttarhöldin drógust að-
eins úr hömlu þegar born-
ar voru brigður á starfshætti
saksóknara en hann hafði á
ferilskránni mál manns sem
hafði verið saklaus dæmd-
ur um morð og setið tíu ár
í fangelsi. Einnig hafði sak-
sóknarinn komið að öðru
máli þar sem áhöld voru
um hvort játning hefði ver-
ið fengin með löglegum
hætti.
Reyndar þurfti sak-
sóknarinn, Noel Levy, að
segja sig frá máli Marjorie,
en þá vegna heilsubrests.
Nýr saksóknari og frekari töf
Í apríl tók nýr saksóknari, Treena Kay, við keflinu af Levy
og í september var Marjorie sakfelld fyrir morðið á Jay og
tveimur vikum síðar varð það niðurstaða kviðdóms að
Marjorie slyppi við dauðadóm og fengi lífstíðardóm þess
í stað.
Töf varð á því að dómari í málinu kvæði upp endan-
legan dóm yfir Marjorie því í millitíðinni höfðu komið í
ljós í sjónvarpsþætti nýjar upplýsingar. Í þættinum var
sjónum beint að fullyrðingum Marjorie þess efnis að einn
ástmanna hennar, Larry Weisberg, hefði myrt eiginmann
hennar, en Weisberg þessum hafði verið veitt friðhelgi
gegn því að hann vitnaði gegn henni.
Niðurstaða
Lögfræðingar Marjorie fóru fram á ný réttarhöld. Meinta
aðild Weisberg hafði borið á góma við réttarhöldin en
einnig hafði Marjorie sakað bróður Jays, Jake, um að hafa
eytt sönnunargögnum og beint sjónum rannsóknarlög-
reglunnar að henni því hann myndi erfa allar eigur Jays
ef hún yrði sakfelld.
Dómarinn hafnaði beiðni um ný réttarhöld og þann 1.
október, 2009, kvað hann upp lífstíðardóm yfir Marjorie
Orbin. n
Það sem fannst Plaststampurinn sem fannst í eyðimörkinni.
Marjorie
Orbin Sagði
ástmann sinn
hafa framið
morðið.
Jay Orbin
Hvarf í kjölfar
söluferðar.
„Kom í ljós að Marjorie
hafði átt í ástarsambandi
við nokkuð marga karlmenn