Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Side 38
38 28. febrúar 2020STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 1.–7. mars
Þú hefur borið með þér mikla gremju og
eftirsjá undanfarnar vikur og gerir þér
loksins fyllilega grein fyrir því. Þú tekur
sjálfa/n þig í gegn og ferð vel yfir farinn
veg. Það mun gera þér mjög gott. En
mundu, þú þarft líka að skoða það sem
býr undir yfirborðinu og horfast í augu við
sjálfa/n þig.
Félagslífið er aðalmálið hjá þér þessa
dagana. Þú ert nýbúin/n að vera í svaka-
legum gleðskap og annar á döfinni, jafn-
vel nokkrir. Einn af þessum viðburðum
tengist vinnunni en í þessum gleðskap
áttu eftir að kynnast hóp af fólki í tækni-
geiranum sem mun opna augu þín fyrir
ýmsum möguleikum.
Það hefur mikið verið að gerjast í höfðinu
á þér og fátt af því gott. Þú verður að
skilja við það neikvæða og taka á móti því
jákvæða. Hefja nýjan kafla. Nýi kaflinn,
hvenær sem þú opnar hann, mun fela í sér
mikla sköpun og jafnvel að þú skiptir um
starfsvettvang.
Þú veist ekki alveg hvernig þú átt að
haga þér þessa dagana og ert í ákveðinni
tilvistarkreppu. Ekki hafa áhyggjur – það
kemur fyrir alla að efast um eigin tilvist
og sinn stað í veröldinni. Það gerir þig
stressaða/n að hugsa um framtíðina en
þú þarft að gera það. Þú þarft að spyrja
hvað þú viljir gera í framhaldinu.
Þú þarft ekki að burðast með allar
heimsins byrðar á herðum þínum og leysa
öll vandamálin þín ein. Leitaðu til vina
þinna með stórt vandamál sem hefur
valdið þér miklu hugarangri en lausnin
á því mun breyta lífi þínu til frambúðar.
Leyfðu þér að gráta á öxlum vina þinna
og hlustaðu á þá.
Alls konar sambönd eru í brennidepli
núna hjá meyjunni. Varðandi sum þeirra
þá veltir þú fyrir þér hvort ákveðnir aðilar
séu góðir fyrir þig og bæti líf þitt. Varð-
andi aðrar manneskjur í lífi þínu þarft
þú kannski að gefa þér meiri tíma til að
yrkja þau sambönd sem veita þér mikla
lífsfyllingu.
Þú elskar rútínu en þér finnst erfiðara
þessa dagana að halda þig við hana. Það
veldur þér smá kvíða en ekki gera úlfalda
úr mýflugu. Einbeittu þér að því að halda
þessum rútínum og settu allan þinn
fókus á það. Áður en þú veist af verður þú
komin/n í sama farið, full/ur af gleði.
Þig vantar innblástur og finnur hann ekki
neins staðar. Hins vegar er skemmtileg
ferð í vændum sem mun gefa þér ofboðs-
lega góða innspýtingu í lífið og tilveruna.
Þú verður samt að vera þolinmóð/ur
varðandi þessa ferð því hún er ekki beint
á næsta leiti. En hún er biðarinnar virði.
Fjölskyldan og þinn innri hringur er
aðalmálið einmitt núna. Ef það hefur
verið einhver misskilningur eða átök
innan fjölskyldunnar þá leggur þú mikið
á þig að laga það og bregða þér í hlutverk
sáttasemjara. Þetta verður góð vika fyrir
bogmenn, vika sem þú munt muna að
eilífu.
Eitthvað hefur gerst innan fjölskyldu
þinnar sem veldur þér miklum ama. Þú
gerir þitt besta til að greiða úr þessum
vanda, sem virðist á yfirborðinu vera
einfaldur úrlausnar, jafnvel hlægilegur, en
allt kemur fyrir ekki. Þú þarft að taka smá
fjarlægð frá vandamálinu og hugsa um
þig sjálfa/n í smá stund.
Þú verður að passa fjárhaginn elsku
vatnsberinn minn. Þú hefur verið að
eyða umfram efni og ert búin/n að missa
sjónar á bókhaldinu. Þér finnst þú þurfa
að eyða peningum í ýmsa hluti en er það
virkilega svo? Svaraðu nú þessari spurn-
ingu af hreinskilni.
Þú ert ekki mikill blaðrari heldur frekar
þögull hugsuður. Sá eiginleiki mun koma
sér vel í vikunni þar sem manneskja
verður á vegi þínum sem kann að meta
þennan eiginleika í þínu fari. Þessi mann-
eskja mun ná að virkja þig til góðra verka
í framtíðinni og er þetta upphaf að góðu
og gjöfulu samstarfi.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 1. mars Árni Johnsen stjórnmálamaður, 76 ára
n 2. mars Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, 33 ára
n 3. mars Ólafur Darri Ólafsson leikari, 47 ára
n 4. mars Otto Tynes þúsundþjalasmiður, 50 ára
n 5. mars Gunnar Örn Tynes tónlistarmaður, 41 árs
n 6. mars Bára Magnúsdóttir dansari, 73 ára
n 7. mars Hlín Einarsdóttir fjölmiðlakona, 43 ára
Lesið í tarot Gylfa
26 ára aldursmunur –
Svona eiga þau saman
E
yþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í
borginni og myndlistarkonan Ástríður Jósefína
Ólafsdóttir eru byrjuð að stinga saman nefj
um. Þá sannast hið fornkveðna, að ástin spyr
ekki um aldur, því hátt í þrír áratugir skilja þau Ey
þór og Ástríði að. DV ákvað að lesa í stjörnumerkin og
athuga hvernig þessi tvö eiga saman.
Ástríður er krabbi en Eyþór er bogmaður og því
eru þau mjög ólík þar sem krabbi er vatnsmerki en
bogmaðurinn eldmerki. Ef að Ástríður og Eyþór vilja
virkilega að þetta samband gangi þá verða þau að
vera þolinmóð og gefa sambandinu rými til að þróast.
Í fyrstu virðist bogmaðurinn aðeins vera að leita
sér að smá stuði en krabbinn þarfnast tilfinningalegs
öryggis. Í byrjun sambandsins mun krabbinn hugs
anlega vilja meiri bindingu en bogmaðurinn. Bog
maðurinn hræðist það en lærir með tímanum að
meta þann tilfinningalega stuðning sem krabbinn
veitir.
Krabbinn og bogmaðurinn hafa mismunandi
sýn á lífið. Sundum getur verið erfitt fyrir bogmann
inn að læra á hinn tilfinningasama krabba og krabb
inn á oft á tíðum í vanda með að skilja óróann innra
með bogmanninum. Þau hafa hins vegar mikið
að færa hvort öðru þar sem krabbinn getur gefið
bogmanninum ró og frið og bogmaðurinn getur
opnað augu krabbans fyrir lystisemdum lífs
ins. n
Eyþór
Fæddur: 24.
nóvember 1964
Bogmaður
n örlátur
n hugsjónamaður
n húmoristi
n óheflaður
n óþolinmóður
n ósamvinnuþýður
Ástríður Jósefína
Fædd: 17. júlí 1990
Krabbi
n þrjósk
n hugmyndarík
n traust
n tilfinningarík
n svartsýn
n óörugg
M
ikið hefur verið skrafað um slæma stöðu
knattspyrnukappans Gylfa Þórs Sigurðs
sonar hjá Everton og jafnvel velt upp að
hann verði seldur í sumar. DV ákvað því að
lesa í tarotspil Gylfa og athuga hvað framtíðin ber
í skauti sér. Lesendum er bent á að þeir geta sjálfir
dregið tarot á vef DV.
Ekkert vonleysi, takk
Fyrsta spilið sem kemur upp er
Tunglið. Gylfi hefur það á til
finningunni að hann ráði ekki
við það erfiði sem framund
an er og einkennist tilf
inningalíf hans af ringul
reið, jafnvel einmanaleika
og ístöðuleysi. Gylfi ræður
hins vegar við hvaða hindr
un sem er og þarf að rífa sig
upp úr vonleysinu og tak
ast á við framtíðina – ekki láta
bölmóð villa sér sýn. Hann
þarf að horfa betur í kringum
sig og læra að meta það sem
hann hefur því framtíðin er afar
björt.
Jafnvægi í fjölskyldu
Næst er það 6 mynt. Gylfi hefur þénað vel í atvinnu
mennsku en er langt frá því að vera nískur. Hann er
örlátur á auðæfi sín og deilir eigin velgengni með
sínum nánustu. Þegar kemur að fjölskyldunni ríkir
mikið jafnvægi í lífi Gylfa og hann er ávallt hreinskil
inn í samskiptum sínum. Innan skamms hlotnast
honum aukinn sálarfriður og hagur hans vænkast
enn frekar.
Kjarkur og ástríða
Loks er það 7 stafir. Gylfi er afar áræðinn og
metnaðarfullur. Hann býr yfir kjarki og
ástríðu sem gæti nánast flutt fjöll og dást
margir að hæfileikum hans til að takast á
við erfiðleika. Það virðist rétt sem spek
ingarnir segja – Gylfi er á leið frá Everton
en verður boðaður í viðtal hjá öðru liði
sem er stærra. Þar mun hann ná að
nýta alla sína kosti til fram
fara og skína enn
skærar. n
Skín skærar hjá stærra liði