Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 29
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Þetta er hugsað sem hlið milli Austurstrætis og Bankastrætis,“ segir Arnar Ingi Viðarsson um verkið Torg í spegl-un sem hann hannaði með Valdísi Steinarsdóttur. „Þetta verk kemur úr rosalega mörgum áttum,“ heldur hönnuð- urinn áfram, þannig að ljóst er að þarna er engu logið og að andspænis speglahliðinu vakna margar spurn- ingar. Arnar Ingi segir að hugmyndina að hliðinu megi rekja til vangaveltna um sjálfsímyndir og borgarahegðun og spurninganna um hvernig hægt sé að stuðla að jákvæðri upplifun og samheldni með útihúsgögnum fyrir almenning og „hvernig nota megi áningarstaði í almenningsrýmum til að endurspegla fallegt borgarum- hverfið og fólkið sem þar er að finna og á sama tíma hanna verk sem er einstakt í borgarumhverfi sínu. Kannski er betra að segja að þetta séu bara vangaveltur um form og hvernig þau hafa áhrif á mann.“ Flókið? Þá er nú best að rýna enn betur í spegilmyndina því hönnuð- urinn er rétt að byrja. Hlið og bekkur Verkið er margbrotið og marglaga undir spegilsléttu yfirborðinu og þjónar þannig að sögn Arnars hlut- verki almenns áningarstaðar um leið og áhorfandinn gengur inn í innsetningarverk með því að taka virkan þátt. „Hann er ekkert að horfa á eitt- hvað sem hann hefur engin áhrif á. Hann hefur stór áhrif á verkið og þar sem hann stendur þá brýtur verkið sjónlínuna í borgarmyndinni. Þetta er náttúrlega bæði hlið og bekkur. Bæði áningarstaður og hlið og síðan er efnið ríkjandi þáttur í verkinu. Þannig að þetta speglast allt og þá geturðu speglað sjálfan þig í bæði borginni þinni og þú getur speglað þig einan og þann- ig getur þú séð sjálfan þig, upplifað þig, öðruvísi í þinni eigin borg.“ Nytjalist? Þegar vel er að gáð segir hönnuður- inn að kannski hverfist „aðalpæl- ingin“ um það hvernig hægt sé að „gera verk sem er bæði hönnunar- verk sem þjónar sem slíkt prakt- ískum tilgangi en er líka listaverk. Hvar geturðu dregið línuna? Við erum að leika okkur að því að toga þetta og velta þessu fyrir okkur,“ segir Arnar um hliðið, sem er sex metra langt og fjórir metrar á hæð og breidd. „Verkið endurspeglar nærum- hverfi sitt og þá einstaklinga sem verkið skoða og þar af leiðandi Sjálfsmynd brotnar í tveggja stræta spegli Speglahlið Arnars Inga Viðarssonar og Valdísar Steinarsdóttur brýtur upp sjónlínur áhorfandans þegar hann verður hluti af verk- inu með tveggja stræta sýn á sjálfan sig og borgarmyndina. Hönnuð- irnir mætast í brotinni sjónlínu í verki sínu á mótum Austurstrætis og Bankastrætis og það er síður en svo auðséð hvort þau Valdís Steinarsdóttir og Arnar Ingi Viðarsson séu stödd í sama eða hvort í sínu strætinu. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Járnís reisti hliðið á HönnunarMars með aðkomu hönnuðanna, Hnit verkfræðistofu, Style Technology og Verk- fræðistofu Bjarna Viðarssonar. Það er hluti af Torgum í biðstöðu í samstarfi við Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR geta horfendur upplifað sjálfa sig og umhverfið á nýjan hátt frá mis- munandi sjónarhornum. Þannig er verkinu ætlað að opna á samtal um mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar og einkennis borgara í borg sinni. Pælingin er svolítið að fólk geti séð sjálft sig frá mismunandi sjónar- hornum og upplifað sjálft sig dálítið sem hluti af verkinu líka. Án áhorf- anda er þetta ekki neitt.“ Þannig að í stuttu máli þá ræðst það af því hvar þú stendur hvert sjónarhornið er? „Nákvæmlega. Þarna ertu kom- inn með eitthvað,“ segir hönnuður- inn sem speglar sig og aðra í verki sem skýrir sig best sjálft þegar gengið er í gegnum það. toti@frettabladid.is 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Fylgstu með! Dagskráin á Hringbraut Fréttir og fagmennska Linda Blöndal og Sigmundur Ernir stjórna fréttaþættinum 21 á Hringbraut á hverju kvöldi frá mánudegi til fimmtudags og spegla þar þjóðfélagið í sinni margbreytilegustu mynd á upplýsandi og áhugaverðan hátt FRÉTTIR , FÓLK & MENNING á Hringbraut

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.