Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 15
Ég ætla að segja aðeins frá Char- cot, hver hann var og tengja hann aðeins við nútímann. Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristinn Arnberg skipstjóri, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 20. júní. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 29. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á SOS barnahjálp. Laufey Dagmar Jónsdóttir Kristgeir Arnar Ólafsson Erna Pálmey Einarsdóttir Hallfreður Guðbjörn Bjarnason Díanna Rut Jóhönnudóttir Óðinn Arnberg Kristinsson Svava Berglind Grétarsdóttir Jón Arnberg Kristinsson Eva Hrund Guðmarsdóttir Kristinn Arnberg Kristinsson Eygló Ýr Ævarsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, Guðfinna Elínborg Guðmundsdóttir Blönduhlíð 19, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar aðfaranótt 18. júní. Jarðsungið verður frá Háteigskirkju, miðvikudaginn 1. júlí kl. 13.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvennadeildar Landspítalans og líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Kjartan Egilsson Hlynur Örn Kjartansson Ragnar Már Kjartansson Tara Brekkan Pétursdóttir Ágúst Sævar Guðmundsson Natalía Marín B. Hlynsdóttir Pétur Ragnar B. Hlynsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Jóna Norðkvist frá Bolungarvík, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 20. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. júní klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Orgelsjóð Hólskirkju í Bolungarvík. Unnur Guðbjartsdóttir Garðar Benediktsson Elísabet M. Hálfdánsdóttir Árný Hafborg Hálfdánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Karla Jónsdóttir sjúkraliði, Mánatúni 6, Reykjavík, lést 22. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 2. júlí kl. 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sigurbjörg Guðjónsdóttir Kolbeinn Magnússon Helga Guðjónsdóttir Steinar Jónsson Jón Hrafn Guðjónsson Margrét Torfadóttir Guðrún Guðjónsdóttir Kurt A. Rasmussen barnabörn og barnabarnabörn. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma, tengdaamma og langamma, Kristín Ásmundsdóttir Karfavogi 29, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 29. júní kl. 11. Aðalheiður Arnljótsdóttir Ragnar Þór Arnljótsson María Margeirsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur hlýju og samúð við andlát elskulegrar móður okkar, Zophaníu G. Briem (Góu) Svanborg Briem Bragi Ólafsson Lída Briem Einar Jón Briem Anna Jóna Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Benedikt Björgvinsson prentari, lést 18. júní sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 1. júlí kl. 13. Erna Gísladóttir Guðný Benediktsdóttir Guðni Ingimarsson Guðmundur Benediktsson Ásta Ásgeirsdóttir Björgvin Benediktsson Þórdís Einarsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma, Kristín Erla Jónsdóttir andaðist 16. júní. Útförin fer fram frá Lindakirkju, mánudaginn 29. júní kl. 15. Jón Óskar Valgeirsson Benný Guðrún Valgeirsdóttir Vilhjálmur Karl Karlsson Jóhanna Ellen Valgeirsdóttir Ingólfur Kristinsson Gestur Ingi Valgeirsson Anna Lilja Valgeirsdóttir og fjölskyldur. Jean-Baptiste Charcot (1867–1936) var læknir og leiðangursstjóri sem tók þátt í fjölda rannsókna-leiðangra, meðal annars í fyrsta leiðangri Frakka á Suðurskautið. Afrakstur leiðangranna var veru- legur og aflaði gagna fyrir fjölda fræðasviða. Charcot og menn hans komu oft við á Íslandi í leiðöngrum sínum og eignaðist hann marga góða vini hér á landi. Skip hans Pourquoi-Pas? fórst ásamt áhöfn í miklu óveðri út af Reykjanesi árið 1936, sem var mikil sorgarfrétt á Íslandi á þeim tíma. Sýningin Heimskautin heilla var opnuð árið 2007 í Þekkingarsetri Suðurnesja og er ætlað að varpa lífi á ævi og starf Char- cot. Frá því að sýningin var opnuð hefur hún vaxið og næsta sunnudag fer fram spjall um sýninguna á safninu. „Ég ætla að segja aðeins frá Charcot, hver hann var og tengja hann aðeins við nútímann,“ segir Friðrik Rafnsson, þýð- andi, leiðsögumaður og heiðursfélagi í Vináttufélagi Charcots og Pourquoi- Pas?, sem stendur fyrir sýningarspjallinu. „Gögnin frá rannsóknunum sem hann gerði á sínum tíma hafa reynst ómetanleg í loftslagsvísindum nútímans. Þetta er því bæði merkilegur kafli sögulega og út frá vísindalegu sjónarhorni.“ Á sýningunni má sjá endurgerðan hluta innviða rannsóknarskipsins Pour- quoi-Pas? en einnig eru til sýnis fjölmarg- ir merkir gripir sem afkomendur Charcot og velunnarar sýningarinnar hafa gefið frá því hún var opnuð. Þar á meðal má nefna eitt glæsilegasta og nákvæmasta módel sem gert hefur verið af skipinu, portrett af Charcot frá 1935, sem lista- maðurinn René-Yves Creston gaf Her- manni Jónassyni, þáverandi forsætis- ráðherra Íslands, og eftirlíkingu af kajak sem Inúítar gáfu Charcot í einum af fjöl- mörgum leiðöngrum hans til Grænlands á sínum tíma. Sýningarspjallið fer fram 28. júní klukkan 14. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. arnartomas@frettabladid.is Spjallað um arfleifð Jean-Baptiste Charcot Næsta sunnudag fer fram sýningarspjall í Þekkingarsetri Suðurnesja um sýninguna Heimskautin heilla. Sýningin er tileinkuð franska heimskautaleiðangursstjóranum Jean-Baptiste Charcot en skip hans Pourqoi-Pas? fórst út af Reykjanesi árið 1936. Portrett af Charcot eftir eiginkonu hans, Marguerite Cléry. Hún var listmálari og teiknari, fór með honum í nokkra leiðangra og studdi hann alla tíð. Friðrik segir rannsóknir Charcot nýtast í loftslagsvísindum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 1823 Kötlugos hefst með stórhlaupi úr Mýrdalsjökli, sem skemmir land í Mýrdal og Álftaveri. 1847 Aðaljárnbrautarstöðin í Kaupmannahöfn er tekin í notkun. 1905 Fyrsta loftskeyti erlendis frá berst til Íslands og tekið er á móti því í loftskeytastöð við Rauðará í Reykja- vík. 1921 Kristján X, konungur Íslands og Danmerkur, kemur í heimsókn til landsins. 1928 Boranir eftir heitu vatni hefjast í Laugardal í Reykja- vík. 1930 Alþingishátíðin er sett á Þingvöllum. Merkisatburðir 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.