Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - Nov 2009, Page 9
Heimasíða ÖBÍ í endurskoðun
Aðgengisvottun að uppfærslu lokinni
Heimasíða ÖBÍ er nú í endurskoðun en
komið er á fjórða ár frá því hún var endur-
hönnuð af Hugsmiðjunni. Þá var skipt yfir í
vefumsjónarkerfið Eplicu 1 en nú hefur verið
leita tilboða frá þeim um uppfærslu á því kerfi
í Eplicu 2.
Sjá ehf. hefur komið að þarfagreiningu fyr-
ir heimasíðuna og fundir verið haldnir með
fulltrúum frá aðildarfélögum og starfsfólki. Gert
er ráð fyrir að heimasíðan fái aðgengisvottun 1
og 2 þegar uppfærslu lýkur. Eftirfarandi atríði
þarf til að standast þá vottun:
Aðgengisvottun 1
Það er lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi
á vef en þá þarf ALT texti að vera á öllum
myndum, myndatenglum og myndahnöppum
(ALT-texti birtist þegar bendill er lagður yfir
ofangreind svæði og skjálesarar fyrir blinda
skynja líka þann texta). Bjóða þarf upp á að
minnsta kosti tvær stillingar í leturstærðum
og eina litastillingu (Ijóst letur á dökkum bak-
grunni). Margmiðlunarefni þarf að hafa efni í
boði fyrir heyrnarlausa. Leiðbeiningar þurfa að
fylgja allri virkni eins og útfyllingu á eyðublöð-
um, reiknivélum og þess háttar efni.
Aðgengisvottun 2
Öll atriðin í aðgengisvottun 1 og að auki þurfa
tenglaheiti að vera skýr, ekki er nægilegt að
tenglaheiti sé orðið „hér“ eða orðin „smella
hér“ eða „rneira" heldur þarf að tilgreina nánar
hvert tengillinn leiðir notendur til dæmis: Lán:
„Upplýsingar um bílalán." Reitir í formum þurfa
að vera rétt skilgreindir fyrir skjálesara, (nota
þarf LABEL for). Útskýra þarf skammstafanir
eða merkja þær sérstaklega. Nota þarf stílsíð-
ur (CSS, e. Cascading Style Sheets) í upp-
byggingu vefjarins. Ekki ætti að nota töflur né
myndirtil að sníða útlit.
Nánari upplýsingar um aðgengisvottun má
finna á heimasíðu Sjá ehf., www.sja.is.
Bára Snæfeld upplýsingafulltrúi ÖBÍ
Ýmis þjónusta ÖBÍ
Ráðgjafaþjónusta ÖBÍ
Skrifstofa ÖBÍ hefur á að skipa ráðgjöfum
sem sinna almennri ráðgjöf og upplýsinga-
gjöf til öryrkja, fatlaðra og aðstandenda um
réttindi þeirra og skyldur, og aðstoða í sam-
skiptum þeirra við ýmsar stofnanir er varða
réttinda- og hagsmunamál þeirra. Hægt er
að hringja í símatíma ráðgjafanna eða panta
viðtal á skrifstofu ÖBÍ í síma 530-6700.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni:
www.obi.is
Lögfræðiráðgjöf ÖBÍ
Markmið lögfræðiráðgjafar ÖBÍ er að auð-
velda öryrkjum, fötluðum og aðstandendum
að leita réttar síns. Um er að ræða lögfræði-
ráðgjöf þar sem lögmaður tekur ekki að sér
einstök mál nema með samþykki ÖBÍ og er
þá haft í huga að málið hafi fordæmisgildi
fyrir aðra öryrkja og fatlaða. Panta þarf viðtal
hjá lögfræðingi á skrifstofu ÖBÍ. Viðtalstímar
eru aðra hverja viku og oftar ef þess gerist
þörf. Nánari upplýsingar:
www.obi.is/um-obi/logfraedithjonusta
Þjónusta ráðgjafa- og lögfræðiþjónustu ÖBÍ
erfólki að kostnaðarlausu.
Brynja - Hússjóður ÖBÍ
Brynja - Hússjóður Öryrkjabandalagsins leig-
ir út íbúðir fyrir öryrkja. íbúðirnar eru um 700
talsins víðs vegar um landið. Þeir sem geta
sótt um íbúð hjá Brynju eru öryrkjar sem eru
með 75% örorkumat. Við úthlutun íbúða er
tekið mið af tekjum, eignum og félagslegum
aðstæðum viðkomandi. Hægt er að panta
viðtal hjá húsnæðisfulltrúa ÖBÍ í síma 570-
7800 til að fá nánari upplýsingar.
Skrifstofa Brynju er í Hátúni 10, 105 Reykja-
vík. Sími: 570-7800.
Nánari upplýsingar: www.brynjahus.is
Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur
Styrkir úr námssjóði Sigríðar Jónsdóttur eru
veittir til öryrkja til hagnýts náms, verklegs
eða bóklegs, svo og til náms í hvers konar
listgreinum. Einnig er heimilt að styrkja þá
sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu þroska-
heftra.
Fyrirspurnir má senda til Guðríðar Ólafsdótt-
ur í tölvupósti (gudridur@obi.is) eða hafa
samband í síma 530-6700.
Nánari upplýsingar:
www.obi.is/um-obi/styrkir/namssjodursj