Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - nov. 2009, Síða 24
24
Bæklingurinn Hvað er í boði? inniheldur upplýsingar fyrir almenning um frístundir og námskeið sem kosta
lítið eða ekki neitt. Myndin er fengin frá starfsfólki Ylstrandar. Sjósund er ókeypis og holl tómstund.
Það er margt í boði - ókeypis
Samstarfsverkefni HÍ, SÍBS og Rauða kross íslands
í kjölfarið kom fjöldi upplýsinga sem síðan var
raðað í einn gagnabanka.
Helga Þórunn segir það hafa komið sér á óvart
hversu mikið er í boði sem kostar ekki neitt. Síð-
an að verkefnið hófst hafa upplýsingarnar ver-
ið uppfærðar reglulega enda verður að halda
skjalinu lifandi til að það nýtist fólki sem best.
„Það eru fordómar uppi gagnvart fátækt. Sum-
ir vilja ekki einu sinni viðurkenna að hún sé
til. Hópurinn sem er núna í vandræðum hefur
breyst og stækkað, hópur sem er kannski ekki
vanur miklu mótlæti og finnur það núna dynja
á sér. Síðan er fólk mjög stolt, sérstaklega á
ákveðnum aldri,“ segir Helga Þórunn.
„Ég ræddi við eina konu sem hafði nýlega misst
vinnuna eftir að hafa verið úti á vinnumarkaðin-
um í 30 ár. Hún fann fyrir mikilli skömm og þurfti
að manna sig upp í að leita hjálpar hjá Rauða
krossinum. Þegar hún fór loksins og sá hversu
margt var í boði þá varð hún fljótt bjartsýnni.
Það var sömuleiðis mikilvægt fyrir hana að sjá
að hún var alls ekki ein í þessari stöðu. Hún
sagði mér að hún hefði auðveldlega getað vesl-
ast upp ef hún hefði ekki tekið skrefið. Það er
aftur á móti ómögulegt að vita hversu margir
hafa ekki tekið þetta skref og búa í einangrun."
Þeir sem misst hafa atvinnu upplifa oft mik-
ið tómarúm og margir telja sig síður hafa
efni á að sinna áhugamálum eða tómstundum.
Hins vegar er ýmis afþreying og námskeið sem
standa atvinnuleitendum til boða, en það getur
reynst þrautin þyngri að leita eftir slíkum upp-
lýsingum.
Með þetta að leiðarljósi tóku sjálfboðaliðar
Rauða krossins, í samstarfi við SÍBS og Háskóla
íslands, höndum saman við að vinna eins konar
handbók með upplýsingum sem koma sér vel
fyrir þá sem misst hafa vinnuna. Allar tilfallandi
upplýsingar um frístundir og námskeið sem
kosta lítið eða ekkert voru kortlagðar og settar
upp í sérstaka handbók sem hlaut heitið Hvað
er íboði? Markmiðið var að safna upplýsingum
í gagnabanka á einn stað til að auðvelda fólki
að nýta þau tækifæri til afþreyingar og fræðslu
sem standa landsmönnum til boða.
Helga Þórunn Sigurðardóttir, nemi í tómstunda-
og félagsmálafræði við Háskóla íslands, er ein
af þeim sem vann að verkefninu. Áður hafði
Helgi Hróðmarsson, framkvæmdastjóri SÍBS,
fengið hugmyndina að verkefninu og var það
upphaflega samstarfsverkefni hennar og SÍBS.
Þegar kom í Ijós að Rauði kross íslands var að
vinna að svipuðu verkefni var ákveðið að sam-
nýta kraftana og gengu þær Gunnhildur Sveins-
dóttir, Silja Ingólfsdóttir, Erla Traustadóttir og
Katrín Jónsdóttir hjá Rauða krossinum til liðs
við Helgu Þórunni.
Rauði krossinn opnaði um miðjan marsmán-
uð Rauðakrosshúsið að Borgartúni 25, sem er
miðstöð fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem
orðið hafa fyrir áföllum í kjölfar bankahrunsins.
Vikulega sækja um 300 manns sálrænan stuðn-
ing, ráðgjöf og ýmsa viðburði og námskeið sem
þar eru í boði. Það þótti því kjörið að kynna af-
rakstur verkefnisins þar þriðjudaginn 31. mars,
og á sama tíma var aðgangur að gagnabank-
anum opnaður.
„Markmið verkefnisins er að fólk, sem t.d. hefur
misst vinnuna og hefur ekki mikið á milli hand-
anna, geti byggt sér upp dagskrá frá degi til
dags. Það er bráðnauðsynlegt og við reynum
með þessu að sporna gegn því að fólk einangri
sig. Einangrunin er svo ofboðslega slæm og
veldur svo mikilli óhamingju," segir Helga Þór-
unn. Fjöldi fyrirspurna um ókeypis og ódýra
þjónustu var send á staði sem þóttu líklegir. Og
Handbókina Hvað er í boði? má nálgast á vef-
síðu SÍBS, www.sibs.is, og vefsíðu Rauðakross-
hússins, www.raudakrosshusid.is. Þeir sem
vilja koma á framfæri upplýsingum um ódýr eða
ókeypis tilboð af þessu tagi eru beðnir um að
senda þær á raudakrosshusid@redcross.is.
Sjóður Odds Ólafssonar
Arið 1991 stofnuðu ÖBÍ, SÍBS og
Brynja - Hússjóður ÖBÍ sjóð til minn-
ingar um Odd Ólafsson, frumkvöðul að
bættum hag fatlaðra. Sjóðnum er ætlað að
styrkja rannsóknir á fötlun og fræðslu um
hana, forvarnir í þágu fatlaðra og endur-
hæfingu þeirra, rannsóknarverkefni á sviði
öndunarfærasjúkdóma og fræðslu um þá,
forvarnir og endurhæfingu vegna önd-
unarfærasjúkdóma og fatlaða til framhalds-
náms og rannsóknarstarfa. Úthlutað er
árlega úr sjóðnum í maí en auglýst er eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum í dagblöð-
um í byrjun hvers árs. Nánari upplýsingar á
www.brynjahus.is.