Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 3

Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 3
Rtetióraspjal I Flestum ber saman um að íþróttaiðkun barna og unglinga sé ein besta forvörnin gegn reykingum, vímuefnaneyslu og hvers konar bölvaldi. Þegar grannt er skoðað eru íþróttafélögin ómetanlegur en reyndar oft vanmetinn þáttur í uppeldi barna og unglinga. Hvað er heilbrigðara en að iðka fjölbreyttar íþróttir, virða samherja jafnt sem andstæðing, stæla líkamann á margvíslegan hátt og vera í félagsskap sem hefur heilbrigði, aga og metnað að leiðarljósi? Agi eða agaleysi í íþróttum ber oft á góma og ofter minnstá unglinga í því sambandi. Það er engum blöðum um það að fletta að þeir unglingar, sem stunda íþróttir, þurfa að lúta ákveðnum aga til þess að ná góðum árangri en vissulega er misjafn sauður í mörgu fé. Fáir einstaklingar, sem fara ekki að settum reglum, eyðileggja fyrir heildinni og oft verður það meira áberandi sem fer úrskeiðis en það sem vel er gert. Á dögunum var fjallað um það ídagblaði að vandamál hefðu skapastá keppnisstað þegar nokkur lið í 3. flokki karla í handbolta áttust við. Nokkrir strákar létu víst illa að stjórn, börðu illþyrmilega frá sér í leikjum, reyktu á milli leikja og riðu húsum þegarþeirvoru aðvaraðir. Þessi hópurersem beturferekki lýsandi dæmi um unglinga í íþróttum en eins og áður sagði er það oft fréttnæmt sem miður fer. Ekki var sagt frá öllum hinum liðunum sem léku prúð- mannlega og sýndu af sér góðan þokka innan vallar sem utan. Eins og allir vita, sem hafa komið nálægt íþróttastarfsemi, dansa limirnir yfirleitt eftir höfðinu og sé þjálfari, eða sá sem er í forsvari fyrir hóp, agalaus má fastlega reikna með að liðsmenn verði það líka. Reyki þjálfari og hvetji hann menn til þess að berja á andstæðingnum er meira við þjálfarann að sakast en leikmennina. Hann er slæm fyrirmynd sem ungl- ingarnar stæla. Meistaraflokksmenn eða íþróttastjörnur eru þó yfirleitt fyrirmyndir barna og unglinga og getur hegðunarmynstur þeirra haft mikil áhrif á yngri iðkendur. Reyki virtur íþróttamaður í viðurvist ungdómsins og „taki í vörina" eins og tíðkast hjá virtu félagi á höfuðborgarsvæðinu má fastlega búast við að yngri iðkendur api eftir stjörnunum og telji tóbak hinn vænsta kost. Foreldri ungs drengs, sem er einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins, hefur töluverðar áhyggjar af slæmum sið hans að taka í vörina, sem hann gerir oft á dag. Kannski til þess að ganga í augun á fyrirmyndun- um en honum finnst þetta alveg sjálfsagt því fyrirmyndirnar í meistara- flokki taka í vörina. Við erum komin út í hálin ís í þessum efnum ogforráðamenn íþróttafélaga verða hreinlega að grípa í taumana þegar svo illt er í efni. Það á ekki að líðastaðfyrirmyndirnar mæti á íþróttasvæði með úttroðna vör aftóbaki og brosi tóbaksbrosi framan í ungviðið. Við eigum öll að halda óhollustunni utan íþróttafélaganna og gera meistaraflokksmönnum það Ijóst, hafi þeir ekki áttað sig á því, að þeir eru fyrirmyndir hinna ungu og upprennandi íþróttastjarna. Þorgrímur Hafsteinn Viðar Þráinsson ritstjóri auglýsingastjóri Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorgrímur Þráinsson Beinn sími ritstjóra: 678938 Ljósmyndarar: Gunnar Gunnarsson, Hreinn Hreinsson og Kristján Einarsson Skrifstofa ritstjórnar: Bíldshöfða 18. Sími 685380 Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson Áskriftargjald kr. 1.347,00 (4.-6.tbl) Kr.1.212,00 ef greitt er með greiðslukorti. Hvert eintak í áskrift kr. 449,00 en 404,00 ef greitt er með greiðslukorti. Hvert eintak í lausasölu kr. 539,00 Áskriftarsími: 812300 Útgefandi: Fróði hf. Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18, sími 812300 Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. G. Ben. prentstofa hf. 3

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.