Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 8
Ágúst Gylfason og Baldur Bragason urðu bikarmeistarar með Val þrjú ár í röð.
VALUR
sigursælasta íþróttafélag landsins í
boltaíþróttum frá upphafi til dagsins í dag
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ gerði úttekt á
því hvaða íþróttafélag hefur unnið
til flestra titla í meistaraflokki í
boltaíþróttum, þ.e. handbolta,
körfubolta, blaki og fótbolta, frá
upphafi keppni á íslandsmóti og í
bikarkeppni. Það segir sig sjálft að
Reykjavíkurmeistaratitlar eru ekki
með í úttektinni og ekki sigrar í
Meistarakeppninni því aðeins er
keppt um þann titil í knattspyrnunni.
Úttektin nær vitanlega yfir keppni
bæði karla og kvenna í meistara-
flokki.
VALUR hefur 76 sinnum borið sig-
ur úr býtum á íslandsmóti eða í bikar-
keppni í þessum greinum en það er
eitt fjögurra félaga sem hefur teflt
fram meistaraflokki í þremur af fjór-
um framangreindum keppnisgrein-
um. Hin félögin eru FRAM, sem hefur
hlotið 63 titla og er þar með næstsig-
ursælasta fþróttafélag landsins, KR,
sem hefur hlotið 61 titil og er þriðja
sigursælasta félag landsins, og VÍK-
INGUR, sem er reyndar í 4.-5. sæti
með 34 titla. Hin félögin, sem komast
á blað, hafa ýmist teflt fram meistara-
flokkum íeinni eða tveimur greinum.
VALUR er sömuleiðis sigursælasta
félagið ef árangur meistaraflokks
karla ereingöngu skoðaður, með alls
52 titla, en FRAM er sigursælast í
meistaraflokki kvenna með 29 titla
en þar er Valur í 2. sæti.
Fyrst var keppt á íslandsmótinu í
knattspyrnu árið 1912 en KR hefur
oftast orðið íslandsmeistari, eða 20
sinnum, en VALUR hefur 19 sinnum
hampað íslandsbikarnum. Þess mátil
gamans geta að KR er eina félagið á
landinu sem hefur náð að fylla tvo
SIGURSÆLASTA
ÍÞRÓTTAFÉLAG
LANDSINS í
BOLTAGREINUM
FRÁ UPPHAFI
1. Valur 76 titlar
2. Fram 63 titlar
3. KR 61 titill
4.-5. ÍS 34 titlar
4.-5. Víkingur 34 titlar
6.-7. ÍA 27 titlar
6.-7. ÍR 27 titlar
8. Ármann 24 titlar
9. FH 23 titlar
10. Þróttur 22 titlar
11. ÍBK 18 titlar
12. Breiðablik 14 titlar
13. Njarðvík 12 titlar
8