Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 10
tugi af titlum í sömu keppni en
kvennalið FRAM í handbolta hefur
19 sinnum orðið íslandsmeistari og
VALUR 19 sinnum íslandsmeistari í
knattspyrnu karla. VALUR hefur hins
vegar oftast orðið bikarmeistari, eða
8 sinnum, en KR og FRAM hafa 7
sinnum orðið bikarmeistarar.
BREIÐABLIK er sigursælasta
kvennaliðið á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu, með 9 titla, en FH og VALUR
hafa 4 sinnum hampað titlinum.
VALUR hefur hins vegar oftast orðið
bikarmeistari kvenna, eða 6 sinnum,
en ÍA fjórum sinnum. Keppni á ís-
landsmóti kvenna hófst árið 1972.
ÍR hefur oftast orðið íslandsmeist-
ari í körfuknattleik karla, 15 sinnum
alls, en KR hefur 8 sinnum orðið
meistari. KR-ingar hafa hins vegar
orðið bikarmeistarar 9 sinnum en
NJARÐVÍKINGAR eru með næst-
flesta bikartitla, eða 5. Fyrst var keppt
um íslandsbikarinn í körfubolta árið
1952 ogári síðar íkörfubolta kvenna.
Hins vegar hófst keppni í bikar-
keppninni hjá báðum kynjum árið
1970.
Kvennalið KR í körfu hefur oftast
orðið Islandsmeistari, 10 sinnum alls,
en ÍR hefur 9 sinnum hampað titlin-
um. KR hefur sömuleiðis oftast orðið
bikarmeistari, eða 6 samtals sinnum.
ÞRÓTTUR er sigursælasta blaklið
landsins í karlaflokki því 9 sinnum
hefur liðið orðið íslandsmeistari og
jafn oft bikarmeistari. VÍKINGS-
STÚLKUR er hins vegar sigursælastar
SIGURSÆLASTA
KARLALIÐIÐ
1. Valur 52 titlar
2. KR 46 titlar
3. Fram 34 titlar
4. ÍA 20 titlar
5.-6. Víkingur 19 titlar
5.-6. FH 19 titlar
7. Þróttur o ín 18 titlar
O. IK 9. ÍS i o titiar 15 titlar
10. Njarðvík 12 titiar
11. ÍBK 9 titlar
12. Ármann 8 titlar
í kvennaflokki því 7 sinnum hefur
liðiðorðið íslandsmeistari en IS hefur
vinninginn í bikarkeppninni með 6
sigra. Keppni í blaki karla hófst árið
1970 en í kvennaflokki árið 1974.
Keppni á Islandsmótinu í hand-
bolta hófst árið 1940 bæði hjá körl-
um og konum, en árið 1974 fór bikar-
keppni karla af stað og 1976 bikar-
keppni kvenna. VALUR hefur oftast
orðið íslandsmeistari í karlaflokki —
16 sinnum alls — en FH hefur 15
sinnum hampað titlinum. VIKING-
UR á flesta bikarmeistaratitlana, eða
6 talsins.
FRAM er sigursælasta kvennaliðið
í handbolta með 19 Islandsmeistara-
titlaog það hefursömuleiðis vinning-
inn í þikarkeppninni með 10 titla.
SIGURSÆLASTA KNATTSPYRNULIÐ
KARLA
Röð Lið íslandsm. * Bikark. * Samt.
1.-2. Valur 19 8 ' 27
1.-2. KR 20 7 27
3. Fram 18 7 25
4. ÍA 14 6 20
5. Víkingur 5 1 6
6, ÍBK 4 T 5
7. ÍBV 1 3 4
8. KA 1 1
9. : ÍBA 1 1
Það er athyglisvert að aðeins 9 lið hafa ýmist hamp-
að íslands- eða bikarmeistaratítlinum á þeim rúmu
áttatíu árum sem keppt hefur verið á ísiandsmót-
inu. Það er sömuleiðis athyglisvert að Valur, KR,
Fram og ÍA hafa 71 sinni hampað titlinum af þeim
82 skiptum sem keppt hefur verið um hann.
Guðríður Guð-
jónsdóttir á mik-
inn þátt í því að
Fram er sigursæl-
asta kvennalið
landsins.
SIGURSÆLASTA
KVENNALIÐIÐ
1. Fram 29 titlar
2. Valur 24 titlar
3. KR 20 titlar
4. ÍS 19 titlar
5. Ármann 17 titlar
6. Víkingur 15 titlar
7. Breiðablik 14 titlar
8. ÍR 11 titlar
9. ÍBK 10 titlar
10. FH 8 titlar
11. ÍA 7 titlar
12. Völsungur 5 titlar
SIGURSÆLASTA KNATTSPYRNULIÐ
KVENNA
Röð LÍð íslandsn u* Bikark. Samt.
1. Breiðablik 9 3 12
2. Valur 4 6 10
3. ÍA 3 4
4. FH 4 4
5. Armnnn 1 1
6. KR 1 1
Önnur lið en þessi sex hafa ekki hampað íslands- eða
bikarmeistaratitli.
10