Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 24

Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 24
AHEIMAVELLI ÖFUNDSÝKI? Leikmenn bandaríska fótboltans skjóta nú hverju skotinu á fætur öðru á félaga sína í NBA boltanum. Og ástæðan? Þeir eru hund- fúlir yfir því hve launin eru miklu betri í körfunni en hjá þeim sjálfum. Yfirleitt munar tvö- til þreföldum launum — NBAmönnum í vil og þetta fer í skapið á fótboltaköppunum. „Þeir gætu ekki einu sinni eytt öllum þessum peningum þótt þeir reyndu það,“ sagði Jerry Rice, ein helsta stjarna San Francisco 49’ers á dögunum. BOL UPPTEKINN VIÐ HJÁLPARSTÖRF MIAMIHEAT, sem státar nú af því að hafa risann MANUT BOL í sínu liði, byrjaði á því að sekta hann um litlar 700.000 krónur fyrir að mæta ekki nógu snemma til æfingabúða fyrir keppnistímabilið. Bol sagðist hafa verið upptekinn við hjálparstörf fyrir þjáða í Afr- íku. OG MEIRA UM MIAMIHEAT. Harold Min- er gengur nú undir gælunafninu „litli Jord- an“ en sjálfur segist hann hvorki skilja upp né niður í þessu. „Ég er ekki jafn góður og Jordan," segir Miner „og er ekkert líkur hon- um.“ KLÚÐUR!! Indiana Pacers fékk þann vafasama heið- ur í ár að hafa gert verstu leikmannaskipti ársins, að mati íþróttafréttamanna í Banda- ríkjunum, þegar þeir létu DETLEF SCHREMPF í skiptum fyrir DERRICK MCKEY frá Seattle. „Bara þetta klúður gerir það að verkum að Pacers nær ekki í úrslitakeppn- ina,“ skrifaði helsti NBA sérfræðingur San Francisco Chronicle á dögunum. „Yfir- stjórnin er full af hálfvitum sem virðast vilja sitja eftir. Jæja þá, gott á ykkur.“ Samkvæmt þessu þarf ekki búast við of miklu af Pacers í vetur. LEIÐINLEGASTA LIÐIÐ Það er samdóma álit íþróttafréttamanna um gjörvöll Bandaríkin að MILWAUKEE BUCKS sé leiðinlegasta liðið í NBA deildinni. „Leiðinlegasta lið deildarinnar leikur leiðin- legasta boltann í leiðinlegustu höll deildar- innar. Liðið verður alveg jafn leiðinlegt þegar það situr eftir þegar önnur lið fara í úrslitakeppnina." Þeir spara ekki stóru orð- in þarna „westra“. 6.000 STOÐSENDINGAR Þeir, sem hafa lengi fylgst með NBA bolt- anum, kannast vafalaust við REGGIE THEUS sem lék með Denver Nuggets. Theus hefur lagt skóna á hiliuna en gleymist seint hjá þeim sem hafa áhuga á körfubolta því hann er einn sex leikmanna deildarinnar sem skoruðu fleiri en 19.000 stig á ferlinum og voru með fleiri en 6.000 stoðsendingar. ÆVI MÍN - Sjálfsævisaga körfuboltasnillingsins EARVIN „MAGIC“ JOHNSON Á bókarkápunni segir „Magic“ John- son: „Ævi mín hefur snúist um körfu- bolta frá því ég man eftir mér. Það hefur snúist um að vera einn úr hópnum, um sigra og meistaratitla. En ég var samt Magic Johnson. aldrei fyllilega ánægður með leik minn... Strax og ég uppgötvaði að ég hafði fengið hæfileika til að spila körfu- bolta var ég staðráðinn í því að komast á toppinn. Og mér tókst það. Leiðin lá upp á við þar til föstudag einn á haustdögum 1991 þegar ég sat á móti lækni liðsins í Los Angeles. Bang! Um leið og hann sagði mér fréttirnar vissi ég að ailt, sem ég hafði afrekað í lífinu, var smáræði við hiiðina á baráttunni sem ég átti í vændum.“ Earvin „Magic“ Johnson segir í fullri ein- lægni frá lífshlaupi sínu í þessari óvenjulegu ævisögu. Hann talar um fjölskyldu sína og vini, glæsilegan körfuboltaferil og hetjulega baráttu við veiruna sem orsakar hinn skelfi- lega sjúkdóm eyðni. Frásögnin leiftrar af hreinskilni, þokka og tilfinningum. „Magic“ Johnson hefur alltaf verið annað og meira en venjulegur körfuboltamaður. Allt frá ár- inu 1979 hefur hann verið fremsti bakvörður heims og hann vann fimm NBA meistaratitla með Los Angeles Lakers og hefur þrívegis verið útnefndur „dýrmætasti leikmaðurinn" í NBA-deildinni. Utan vallar var hann hóg- vær og brosmildur og fólk um allan heim hreifst af framkomu hans. Ævi mín varpar nýju ljósi á stórkostlegan körfuboltaferil „Magic" Johnson. Hann segir frá meistaratitli sínum með Michigan, gull- aldarárunum með Lakers og síðustu afrek- unum með úrvalsliðinu í All-Star keppninni og með „draumaliðinu" á Ólympíuleikunum í Barcelona. „Magic" segir hreinskilnislega frá samherjum sínum, þjálfurum, vinum og mótherjum, svo sem Kareem Abdul-Jabbar, Pat Riley, Michael Jordan og Isiah Thomas. Ævi mín er líka mjög persónuleg bók. „Magic“ segir frá uppvaxtarárum sínum í East Lansing í Michigan, einmanaleikanum fyrstu árin í Los Angeles, kynnum sínum af konum, ferðalögum, baráttunni við HIV- veiruna og óttanum við hinn banvæna sjúk- dóm eyðni. Hann talar um konuna sína, Cookie, og sú frásögn lætur engan ósnort- inn frekar en sagan öll. Þetta er kraftmikil og leiftrandi saga. 24

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.