Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1993, Side 29

Íþróttablaðið - 01.12.1993, Side 29
Erling Ásgeirsson ásamt Stjörnubörnunum sínum; Viðari (tv) sem leikur með 2. og mfl. í handbolta, Elvu Björk sem er íslandsmeistari með 5. flokki Stjörnunnar í handbolta og Heimi, leikmanni meistaraflokks í knattspyrnu. í góðum málum! Texti: Þorgrímur Þráinsson Myndir: Kristján Einarsson Sú jákvæða ímynd, sem Garðabær hefur í huga fólks, rak ÍÞRÓTTA- BLAÐIÐ af stað til þess að forvitnast um það hverju þetta sætti. Hvers vegna er ávallt talað um Garðabæ sem íþróttabæ? Er það rétt að svo vel sé staðið að íþrótta- og æskulýðs- málum í Garðabæ að hvergi sé betra að ala upp börn en einmitt þar? Skiptir það miklu máli fyrir börn og unglinga að alast upp við það að íþróttaiðkun sé hluti af þeirra lífs- mynstri eins og virðist vera við lýði í Garðabæ? ERLING ÁSGEIRSSON, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garða- bæjar, leiðir lesendur ÍÞRÓTTA- BLAÐSINS í sannleikann um það hvað sé hæft í ofangreindum fullyrð- ingum og svarar áleitnum spurning- um en hann hefur verið einn af for- kólfunum á íþróttasviðinu í Garðabæ um árabil. „íþrótta- og tómstundaráð, sem er annar fjárfrekasti málaflokkurinn í bæjarfélaginu á eftir menntamálum, annast skipulag og uppbyggingu íþrótta- og tómstundamála í víðustu merkingu og því er stýrt af fimm - Rætt við ERLING ÁSGEIRSSON, formann íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, urn íþróttabæinn Garðabæ og þá fyrirmyndar uppbyggingu sem á sér stað á því sviði í bænum manna, pólitískt kjörnu ráði. Grund- vallarstefna ráðsins hefur verið sú að hafa íþróttaframboð fyrir alla aldurs- hópa og liður í þvf var að koma á fót íþróttaskóla sem hefur nú verið starf- ræktur í nokkur ár. Við höfum beitt okkur fyrir því að efla heilsurækt fyrir almenning tiI þess að sá þáttur sé ekki einhver afgangsstærð í íþróttahúsun- um. Við hrindum góðum hugmynd- um í framkvæmd og færum starfsem- ina síðan í hendur íþróttafélagsins til rekstrar. Um þessar mundir erum við að fikra okkur af stað með fjölbreytta starfsemi fyrir eldri borgara, t.d. sundnámskeið. Fyrir nokkrum árum hvöttum við konur til þátttöku í íþróttum og félagsstörfum og árang- urinn varð sá að við fengum fjölda kvenna til að starfa í stjórnum deild- anna. Angi af þessari hvatningu var Kvennahlaup ÍSÍ í Garðabæ sem er nú orðinn árviss viðburður í heimi íþróttanna. Til þess að koma okkar faglegu sjónarmiðum á framfæri höfum við annast útgáfu á bæklingum þar sem íbúar Garðabæjar geta séð hvaða möguleikar eru í boði í félags-, íþrótta- og tómstundamálum. Síðan erum við tengiliður hinna ýmsu fé- laga í Garðabæ við bæjaryfirvöld. Stefna bæjaryfirvalda í Garðabæ gagnvart íþróttastarfsemi er skýr og einföld; þau styrkja félög til sjálfs- bjargar. Til dæmis leggjum við Stjörnunni til aðstöðu þannig að fé- f ^ f íwý > i PIZZÁHÚSIÐ , v 679333 • FRI HEIMSENDING 29

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.