Íþróttablaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 30
„Grundvallarstefna íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar hefur verið sú að
hafa íþróttaframboð fyrir alla aldurshópa," segir Erling Ásgeirsson.
lagið geti gengið og ætlumst til að
sjálfboðaliðar og áhugafólk reki fé-
lagið. Þetta gengur eftir í höfuðdrátt-
um en þó er fjármögnun þessarar
starfsemi verulegt áhyggjuefni því
hún verður æ fjárfrekari og stöðugt
verður erfiðara að afla fjár. Þetta er
eilífur höfuðverkur íþróttaleiðtoga
um allar jarðir.
Síðastliðið sumar malbikuðum við
körfuboltavelli á opnum svæðum og
settum að auki upp handboltamörk
svo að sem flestir gætu nýtt sér að-
stöðuna.
Viðerum nýbúnirað gera samning
við hestamannafélagið Andvara um
uppbyggingu á svæðinu sem nær yfir
fimm ára tímabil og felur í sér lagn-
ingu reiðvega og annað slíkt. Sömu-
leiðis er búið að ganga frá samningi
við Golfklúbb Garðabæjar um
stækkun golfvallarins í 18 holu golf-
völl en dalurinn er sannkölluð úti-
vistarperla og býður upp á marga
möguleika.
Hvað Stjörnunni viðvíkur höfum
við gert samning um uppbyggingu á
grassvæði til æfinga og verður það
tyrft næsta vor. Það er við nýja skól-
ann, Hofstaðaskóla við Bæjarbraut,
en þar mun skapast langþráð við-
bótaraðstaða fyrir knattspyrnumenn.
í Hofstaðaskóla verður lítill fjölnýti-
salur sem mun eflaust koma til góða
fyrir ýmsa íþróttaiðkun. Það er
ánægjulegt til þess að hugsa hve
knattspyrnuáhugi er mikill í Garða-
bæ og er Stjarnan eitt fárra félaga sem
rekur þróttmikið starf bæði fyrir
stráka og stelpur. Það kallar að sjálf-
sögðu á tvöfaldar kröfur til aðstöðu."
— Hvers vegna hefur Garðabær
fengið þá jákvæðu ímynd að vera
sannkallaður íþróttabær?
„Sú stefna, sem hefur verið rekin
undanfarin ár, að leggja peninga í
byggingu íþróttamannvirkja og að-
stöðu, hefur mikið með þessa ímynd
að gera. Þeir aðilar, sem hafa verið
kosnir í bæjarstjórn, hafa verið mjög
áh ugasam i r u m íþróttastarfsem i na og
flestir tengst íþróttafélögunum á einn
eða annan hátt. Árangur Stjörnunnar
á íþróttasviðinu hefur vakið athygli
þannig að það er margt sem ýtir undir
þessa ímynd. Meistaraflokkar karla
og kvenna í handbolta eru í fremstu
röð og er skemmst að minnast þess
að flokkarnir urðu báðir bikarmeist-
arar1989en það vakti mikla athygli á
landsvísu. Við höfum átt gott knatt-
spyrnulið sem vann sig beinustu leið
úr 3. deild í 1. deild en það afrek fékk
mikla athygli í fjölmiðlum.
„Garðabær hagnast á
þessari jákvæði
ímynd"
Það er ekkert launungamál að ým-
is önnur bæjarfélög hafa tekið upp
sömu stefnu og við í þeim málum,
sem lúta að íþróttauppbyggingu, og
er það mjög ánægjulegt. Hvers konar
tómstundaiðja á stöðugt meira upp á
pallborðið hjá fólki og íþróttaiðkun
skiptir það sífellt meira máli. Fólk er
farið að gera miklar kröfur til þess að
geta stundað íþróttir og að atvinnu-
öryggi undanskildu veltir fólk þessu
einn helst fyrir sér þegar það velur sér
búsetu til framtíðar. Ég hef stundum
spurt fólk, sem er nýflutt í Garðabæ
með fjölskyldu sína, af hverju Garða-
bær hafi orðið fyrir valinu. Oftar en
ekki er ástæðan sú að fólk vill koma
börnunum sínum í góða skóla og ör-
ugga íþróttaiðkun. íbúar í Garðabæ
hagnast á þessari jákvæðu ímynd,
sem bærinn hefur, því íbúðarverð hér
er aðeins hærra en gengur og gerist
annars staðar og það er tiltölulega
auðvelt að selja íbúðir hérna."
Ungmennafélagið Stjarnan býður
upp á fjölmargar íþróttagreinar þótt
handknattleiks- og knattspyrnufólk
hafi verið mest áberandi í Garðabæ
undanfarin misseri. Að auki á Stjarn-
an blaklið í 1. deild karla, sem er eitt
efnilegasta blaklið landsins, fim-
30