Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 35

Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 35
legt breytast í starfi deildarinnar. Ég veit ekki hversu lengi ég verð í Borg- arnesi eða hvað tekur við á næsta keppnistímabili. Ég gæti jafnvel hugsað mér að hvfla mig frá þjálfun og einbeita mér að því að spila. Mér finnst ég eiga mikið eftir sem leik- maður. Síðastliðinn vetur stundaði ég nám við Samvinnuháskólann í Bifröst og það kom til greina að hætta sem þjálfari og einbeita mér að námi í vetur en ég ákvað að fresta frekara námi að sinni. Það er sem sagt margt á huldu með mig." — Hvaða breytingar myndirðu vilja sjá hjá KR? „Ég er nú ekki tilbúinn að ræða það í smáatriðum en þeir, sem þar stjórna, mættu setja sér langtíma markmið — háleitari drauma, þvífé- lagið hefur allt að bera til að vera stórveldi." — Kæmi til greina að spila fyrir eitthvert annað lið en Skallagrím og KR? „Það kæmi vissulega til greina þótt ég sé tengdastur þessum tveimur fé- lögum. Sem metnaðargjarn þjálfari er ég tilbúinn að takast á við næstum hvað sem er sé það þess virði." — Heldurðu að þú hefðir getað bætt þig mikið sem leikmaður hefð- irðu haldið áfram að spila með KR á sínum tíma? „Nei, ég held að ég hefði ekki get- að bætt mig hjá KR eins og staðan var þá hjá félaginu. Mér fannst metnað- urinn hrapa dálítið hjá liðinu eftir að Lazlo Nemeth hætti þjálfun þess. Ég þurfti að breyta til og hefði líklega getað bætt mig sem leikmaður með öðru liði. Það vorutöluverðviðbrigði að leika eitt ár í 1. deild með Skalla- grími en tel mig hafa staðið fyrir mínu sem leikmaður samhliða þjálfuninni. Hins vegar finnst mér ég hafa liðið fyrir það sem landsliðsmaður að leika í Borgarnesi. Ég var búinn að gefa svar um að taka þátt í öllum undirbúningi með landsliðinu og gerði það fyrsta veturinn sem við lék- um í úrvalsdeildinni. Hins vegar var ég ekki valinn í landsliðshópinn þegar farið var í æfingaferð til Banda- ríkjanna þrátt fyrir að margir topp- menn hafi ekki gefið kost á sér." — Varstu ekki ósáttur við það? „Jú, auðvitað varég það. En seinna um veturinn gat Torfi ekki gengið fram hjá mér. Vissulega er leiðinlegt að líða fyrir það að vera ekki á höfuð- borgarsvæðinu því ég lagði virkilega hart að mér við að mæta á æfingar með landsliðinu. Síðastliðin tvö vor mætti ég á æfingar í Reykjavík eða á Suðurnesjum eftir vinnu eða skóla, svaf í Reykjavík um kvöldið og lagði svo af stað í Borgarnes kl ukkan sex að morgni. Við Henning Henningsson gerðum þetta báðir síðastliðið vor þannig að það er ýmislegt lagt á sig til þess að æfa með landsliðinu. Þegar á heildina er litið finnst mér Körfuknattleikssambandið ekki „Gef ekki kost á mér í landsliðið eftir síðustu verkefni þess" standa nógu vel að landsliðsmálun- um miðað við þann uppgang sem er í íþróttinni. Það er alveg makalaust að enginn landsliðsþjálfari skuli vera starfandi eins og er en að sjálfsögðu er ástæðulaust að vera með mann á launum ef engin eru verkefnin. Mér finnst vanta verkefni fyrir leikmenn sem eru 23 ára og yngri til þess að halda utan um þann sterka kjarna sem myndast strax í 16 ára lands- liðinu en í honum eru framtíðarleik- menn þjóðarinnar. Mér fannst það hrein og klár mis- tök landsliðsnefndar að ferðast um landið með svokallað Nike lið síðast- liðin jól sem var eingöngu skipað er- lendum leikmönnum. Það hefði verið mun heppilegra að láta lands- liðið fara í þessa ferð því ekki veitir þvíaf samæfingu. Að auki hefði kom- ið peningur íkassann en mérskilst að hann hafi runnið til útlendinganna sem tóku þátt í þessu. Hafi Nike hins vegar áhuga á því að búa til Nike lið og ferðast á það að vera óviðkom- andi landsliðsnefndinni. KKÍ þarf að efla betur tengslin við klúbbana og skólana til kynningar á körfuboltanum og svo þarf að gera átak í þjálfaranámskeiðum. Við þurf- um betri þjálfara yfir heildina til þess að ná lengra í íþróttinni. Til þess að fylgja uppsveiflunni eftir þarf af efla þjálfarastéttina. Sömuleiðis verður að fjölga dómurunum og KKÍ þarf að hafa meiri afskipti af þeim málum." — Gefur þú enn kost á þér í lands- liðið? „Ekki eftir síðasta verkefni lands- liðsins sem var þátttaka í Evrópu- keppninni en mitt hlutskipti þá var að verma bekkinn og var erfitt að sætta sig við það eftir að hafa ekið mörg þúsund kílómetra á undirbúnings- tímabilinu til þess að geta tekið þátt í æfingunum. Ég tel að ég hefði getað komið að gagni í þessum landsleikj- um. Ég hef setið á mér og haft hljótt um mig en þegar ég er farinn að verma bekkinn trekk í trekk veit ég ekki hvert næsta skref verður. Ég myndi endurskoða afstöðu mína yrði skipt um landsliðsþjálfara." Birgir sækir að Teiti Örlygssyni leikmanni Njarðvíkur. 35

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.