Íþróttablaðið - 01.12.1993, Side 37
stæðing. Hann er mikill keppnismað-
ur og gefur aldrei eftir."
— En hverjir eru eftirminnileg-
ustu leikmenn sem þú hefur spilað
með eða á móti?
„Ég er svo heppinn af hafa náð að
spila með Jóni Sigurðssyni, bæði sem
leikmanni og þjálfara. Það er mikill
heiður að hafa spilað með snillingi
eins og honum. Páll Kolbeinsson og
Axel Nikulásson voru skemmtilegir
samherjar. Jón og Páll voru skemmti-
kraftar á leikvelli og það væri gaman
ef fleiri þeim líkir væru að leika í
dag."
— Hvaða lið telurðu að fari í úr-
slitakeppnina?
„Keflavík, Skallagrímur, Njarðvík
og KR eða Haukar. Þó hallast ég frek-
ar að því að KR bæti við sig í vetur og
fari í úrslit á kostnað Hauka."
— Hvernig finnst þér liðin í Visa-
deildinni hafa farið af stað, miðað
við það sem þú bjóst við af þeim?
„Keflvíkingar hafa ekki náð að
stilla strengina það sem af er en ein af
ástæðum þess, að þeir hafa ekki gert
betur, er sú að hin liðin eru hreinlega
sterkari en í fyrra. Það, sem mér hefur
reyndar fundist vanta í deildina, það
sem af er, er að einhver leikmaður
hafi staðið upp úr og leikið frábær-
lega. Ég sakna þess að yngri strákar
láti Ijós sitt skína. Leikmenn virðast
verajafnari en áðuren leikmenn eins
og Bragi og Sigfús í Haukum hafa
leikið vel að undanförnu.
Njarðvíkingar virðast vera til alls
líklegir enda reynslumiklir menn í
liðinu. Flest liðin virðast koma ágæt-
lega undirbúin til leiks en hins vegar
eiga þau eftir að eflast og þar af leið-
andi deildin í heild sinni. Sem dæmi
um þann jöfnuð sem er í deildinni
voru öll liðin bæði búin að vinna og
tapa leikjum eftir 2-3 umferðir. Ég