Íþróttablaðið - 01.12.1993, Qupperneq 42
Eftirlætis-
íþróttamaðurinn
„Ég er búinn að vera í 5 ár hérna en
égerfrá Akranesi. Égspilaði með ÍA í
öllum yngri flokkunum og reyndi í
eitt sumar að vera í 1. deild. Ég fékk
lítið að spila og dreif mig í Borgarnes
til að bæta úr því. Ég held að það hafi
verið rétt ákvörðun, því ég hef spilað
mun fleiri leiki hérna en ég hefði gert
á Skaganum."
— Freistar Skaginn ekkert í dag?
„Jú, hann freistar svolítið núna.
Það getur vel verið að ég reyni mig á
Skaganum næsta sumar. Það er nátt-
úrlega ekki eins mikil stemning í 3.
deild, það er miklu skemmtilegra í 1.
deild."
ÚR ALBÚMINU
Valdimar Sigurðsson markakóngur í
vinnunni.
— Hvað gerir þú þegar þú ert ekki
að æfa eða spila knattspyrnu?
„Á veturna starfa ég við úrbeiningu
hjá Kaupfélagi Borgfirðinga en á
sumrin er ég nokkurs konar fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
Skallagríms og þjálfa þar að auki 6.
og 7. flokk, þannig að ég er á vellin-
um allt sumarið."
— Er hægt að segja að æfingin úr
knattspyrnunni nýtist þér við úr-
beininguna?
„Nei, það er ekki hægt að segja
það, maður stirðnar við að standa og
úrbeina frekar en hitt. Ég má ekki við
því að verða stirðari en ég er. Þetta
bjargast yf i r su marið því þá er ég m i k-
ið úti við og er að gera það, sem ég
hef gaman af."
— Hvað gerir þú þegar þú ert ekki
að æfa, þjálfa eða spila fótbolta og
ekki í vinnunni?
„Ég er mikill aðdáandi ensku
knattspyrnunnar. Annars reyni ég að
vera í faðmi fjölskyldunnar. Reyndar
er ég einnig að þjálfa í knattspyrnu
innanhúss á veturna, þannig að það
fer mikill tími í þetta."
— Verður þú aldrei leiður á knatt-
spyrnu?
„Nei, það er skemmtilegt að fá að
vinna við það, sem maður hefur gam-
an af."
— Hvaðan kemur þú og hvað ertu
búinn að vera lengi í Borgarnesi?
Hver er
eftirlætisíþróttamaður
Emils Sigurðssonar í
Borgarnesi?
Emil Sigurðsson er 12 ára Borg-
nesingur. Hann er m.a. tvöfaldur ís-
landsmeistari í badminton og náði
langt í knattþrautum KSÍ á síðasta
sumri. Að margra mati er Emil geysi-
Iega efnilegur íþróttamaður. Hver
ætli sé eftirlætisíþróttamaðurinn
hans?
„Það er engin spurning. Eftirlætis-
íþróttamaðurinn minn er Charles
Barkley. Hann er einfaldlega besti
körfuboltamaður í heimi," sagði Emil
án nokkurrar umhugsunar.
BJÖRN BJARTMARZ, knatt-
spyrnumaður úr Víkingi og fram-
kvæmdastjóri félagsins, hlaut gull-
verðlaun í FORD-keppninni sem KSÍ
stóðfyrirárið1972 en það var knatt-
þrautakeppni. Björn þótti einstak-
lega teknískur leikmaður (og þykir
reyndar enn) og var einn af efnileg-
ustu knattspyrnumönnum landsins
(sem hann er reyndar ekki enn).
Hinn heimsþekkti knattspyrnumað-
ur BOBBY CHARLTON, sem kom til
landsins í tilefni knattþrautakeppn-
innar, er með Bjartmari á myndinni
ásamt nokkrum öðrum.
BJÖRN BJARTMARZ ífermingar-
múnderingunni þegar slaufur og há-
ir hælar voru ítísku. Hann hefur lítið
breyst eins og sést á þessari mynd en
drengurinn var greinilega stórmynd-
arlegur (og er það reyndar enn).
42