Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 59
Ryan Giggs.
PAÐ SEM PÚ VISSIR
EKKIUM RYAN GIGGS
RYAN GiGGS, leikmaður Manchest-
er United, er aðeins 19 ára gamall en
þykir nú þegareinn allra skemmtileg-
asti leikmaður heims. Hann leikur á
kantinum hjá United og þykir óneit-
anlega minna á gömlu kempuna
GEORGE BEST. En þrátt fyrir að
Giggs sé á toppnum núna hefur það
ekki alltaf verið raunin.
• Fyrsti stórleikur Giggs var með B-
liði Salford Boys á móti Bootle. A-
liðið lék fyrst og tapaði 2-5. B-liðið
vann hins vegar 8-1 og skoraði Ryan
Giggs sex mörk. Hann lékaldrei aftur
með B-liði.
• Giggs á ekki kærustu. Hann hætti
með sinni fyrrverandi fyrir tæpu ári
en hann segir að þau sé góðir vinir
þrátt fyrir það.
• Það heillar Giggs að leika á Ítalíu.
En þrátt fyrir að þar yrði hann meira í
sviðsljósinu ogefnaðari knattspyrnu-
maður er Giggs ánægður hjá United
og ekki á förum.
• Giggs segir að framkvæmda-
stjórinn Alex Ferguson hafi verið ráð-
ríkur og stjórnsamur. En hann segir
að hann hafi gert góða hluti fyrir sig
og United.
• Giggs finnst best að slaka á með
því að hlusta á góða, rólega tónlist,
spila billjard og golf eða fara í versl-
unarleiðangur.
• Hann segir að franski framherjinn
Canton sé mikilvægurfyrir United og
vonar að hann verði um kyrrt.
• Uppáhaldsleikarar Giggs eru
Eddie Murphy og Al Pacino. Bestu
bíómyndirnar telur hann vera The
Godfather og Goodfellas.
• Uppáhaldsmatur Giggs eru ban-
anar.
MYNDBAND MEÐ
GIGGS OG BEST
RYAN GIGGS OG GEORGE
BEST, tveir af eftirminnilegustu leik-
mönnum United, vinna nú saman að
gerð myndbandsspólu sem kemur út
í vetur. Spólan mun innihalda alla
bestu takta hjá báðum köppunum og
geta menn því borið þá saman frá
öllum hliðum.
PENNAVINUR
ÍÞRÓTTABLAÐINU hefur borist
bréf frá 24 ára gömlum ítala sem vill
eignast íslenska stúlku sem penna-
vin. Hann segist hafa mikinn áhuga á
íslandi, hinu fagra, og er m.a. áhuga-
maður um knattspyrnu.
Nafn hans og heimilisfang er:
ANGIOLILLI NICOLA
Corso Garibaldi, 229
86170 Isernia
Italy
59