Vísbending


Vísbending - 25.05.2017, Blaðsíða 4

Vísbending - 25.05.2017, Blaðsíða 4
4 V Í S B E N D I N G • 1 9 . T B L . 2 0 1 7 Aðrir sálmar Næst eru það tollamálin Ritstjóri: Sverrir H. Geirmundsson Ábyrgðarmaður: Jóhannes Benediktsson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Net fang: joiben@heimur.is. Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök. Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. Kjarabarátta á Íslandi hefur gjarnan snúist um þrennt. Í fyrsta lagi að ná fram leiðrétting- um vegna rýrnandi kaupmáttar við aðstæður verðbólgu. Í annan stað er mikil stéttavitund á Íslandi sem leiðir iðulega til höfrungahlaups í kjaramálunum. Í þriðja lagi eru tilteknir kjarahópar í betri aðstöðu en aðrir til að knýja fram kjarabætur sem oft á tíðum eru langt umfram það sem aðrir hafa fengið. Verkföll flugumferðarstjóra voru algeng fyrir nokkrum árum. Kjarabætur til lækna voru byggðar á ótta við að þeir myndu ílengjast í störfum útí heimi vegna bágra starfskjara á Íslandi. Þeir fengu fordæmalausar launahækkanir og er nú svo komið að íslenskir læknar eru mun betur borgaðir en kollegar þeirra á hinum Norð- urlöndunum samkvæmt greiningu Samtaka atvinnulífsins. Munar þar um 70% á heildar- launum. Í kjölfar ríflegra launahækkana lækna hófst svo mikið höfrungahlaup hjá öðrum kjarahópum í samfélaginu. Það vill oft gleymast að það er bæði debet og kredit í heimilisbókhaldinu - gjöld og tekj- ur. Áherslan virðist öll vera á hækkun launa en á sama tíma búa Íslendingar við ofurtolla og innflutningskvóta á ýmsar innfluttar mat- vörur í þeim tilgangi að veita íslenskum land- búnaði vernd fyrir samkeppni. Ekki nóg með það heldur þurfa neytendur að greiða tvöfalt fyrir verndina þ.e. bæði tollana og síðan styrki til landbúnaðarframleiðslunnar hér á landi. Tölur sýna að tollvernd fyrir mjólkur- og kjötvörur er mun meiri hér á landi en í sam- anburðarlöndunum eins og lesa má í fróðlegri grein sem framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda ritaði í Vísbendingu fyrir skemmstu. Opnun bandaríska verslunarrisans Costco hér á landi er gott dæmi um kjarabætur sem aukin samkeppni leiðir af sér fyrir íslensk heimili. Sama myndi gerast ef fákeppni yrði aflétt á landbúnaðarvörur. Verð á matarkörf- unni myndi snarlækka enda leggjast tollar á 40% vörutegunda í henni vegið eftir verðmæti samkvæmt tölum Viðskiptaráðs frá árinu 2015. Hér á landi starfa ýmsar stofnanir, samtök og verkalýðsfélög sem ættu að vera að berjast fyrir þessu brýna hagsmunamáli neytenda. Lítið heyrist frá þessum aðilum. Sá eini sem virðist beita sér í málinu er Félag atvinnurek- enda sem er orðinn einn helsti baráttumaður fyrir hagsmunum neytenda í landinu, svo merkilegt sem það kann að hljóma. sg Tafla 1 Kennitölur Kauphallarfyrirtækja 2016 Minnkandi arðsemi hjá kauphallarfyrirtækjum Arðsemi eiginfjár hjá Kauphallar-fyrirtækjunum fór almennt lækk-andi á árinu 2016 miðað við árið á undan. Þau fyrirtæki sem sýndu lægri arðsemi eiginfjár eru Hagar, TM, Ný- herji, Icelandair Group, Reginn, EIK fast- eignafélag, Fjarskipti, Össur, HG Grandi, VÍS, Síminn, Reitir og Skeljungur. Arð- semi eiginfjár jókst hins vegar hjá fjórum fyrirtækjum af sautján eða hjá N1, Sjóvá, Marel og Eimskipafélaginu. Rétt er taka fram að kenntölur sem birtast í töflu 1 eru teknar af vef Kauphallarinnar. Tekju- breytingar 2015 og 2016 eru hins vegar reiknaðar stærðir m.v. birtar tölur. Sum fyrirtæki gera upp í erlendri mynt og eru tekjubreytingar í gengi viðkomandi gjald- miðla. Af einstökum fyrirtækjum var arð- semi eiginfjár mest hjá N1 árið 2016 eða 33,3%. Fram kemur í ársskýrslu fyrirtækisins að síðasta ár hafi verið hag- fellt í rekstri vegna aukningar á umferð um þjóðvegi landsins samhliða auknum straumi ferðamanna til landsins. Fram- legð af vörusölu jókst um 10% milli ára. Hins vegar lækkuðu tekjur félagsins um 31% m.a. vegna brotthvarfs Icelandair úr viðskiptum við félagið. Félagið hefur endurmetið eignir í gegnum reksturinn og greitt út hlutafé a.m.k. síðustu tvö ár. Það kann að einhverju leiti að skýra mikla arðsemi félagsins. Eins og sjá má í töflunni minnkaði handbært frá rekstri N1 um ríflega 18% milli ára. Arðsemin hjá Högum minnkaði lítil- lega úr tæplega 23,9% í liðlega 23,1% á rekstrarári félagsins sem nær frá 1. mars 2016 - 28. febrúar 2017. Tekjur jukust lítillega milli ára að raungildi. Minni arð- semi má m.a. rekja til aukinna afskrifta vegna lokana og breytinga á verslunum og aukins launakostnaðar. Eiginfjárhlutfall Haga er mjög sterkt eða 57,8%. Þriðja mesta arðsemi eiginfjár var hjá TM eða 21,1% og er á svipuðu róli og árið á undan, eilítið minni þó. Tekjur juk- ust um 3,2%, en langstærstur hluti tekna félagsins eru eigin iðgjöld eins og hjá öðr- um tryggingafélögum. Fjárfestingatekjur eru þó drjúgur hluti tekna, en þær lækk- uðu um 22% milli ára. Eiginfjárhlutfall var í kringum 38,6% í árslok. Fram kom í könnun greiningardeildar Arion banka, sem framkvæmd var á ár- inu 2015 að raunávöxtunarkrafa fjárfesta á eiginfé á íslenska hlutabréfamarkaðinn sé á bilinu 8% – 13%. Það samsvarar um 10% – 15% nafnávöxtunarkröfu miðað við verðlagsþróun á síðasta ári. Ef miðað er við miðgildið þ.e. 12,5% arðsemi eig- infjár kemur í ljós að sjö fyrirtæki í Kaup- höllinni standa ekki undir þeirri ávöxtun þ.e. Össur, HB Grandi, Eimskip, VÍS, Síminn, Reitir og Skeljungur. Að öðru leiti vísast í töfluna.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.