Vísbending - 01.11.2019, Blaðsíða 2
Nýja Ísland
2 V Í S B E N D I N G • 4 1 . T B L . 2 0 1 9
Magnús Halldórsson
Ritstjóri
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, hélt erindi á hádegisverðarfundi hjá Kviku banka, 29. október.
Það fór hann yfir stöðu mála í
hagkerfinu og dró upp mynd af Nýja
Íslandi, ef svo má að orði komast. Á
nokkrum myndum í fyrirlestrinum
sýndi hann þá kúvendingu sem orðið
hefur á hagkerfinu á undanförnum
árum.
Þrátt fyrir að nú sé um margt erfið
tíð, miðað við undanfarin ár, þá verður
ekki annað sagt en að Seðlabanki Íslands
og stjórnvöld búi yfir betri tækjum til
að spyrna við fótum heldur en oftar í
sögunni. Það er einsdæmi, að til sé 800
milljarða gjaldeyrisforði og viðvarandi
jákvæður viðskiptajöfnuður.
Ekki er þó hægt að ganga að neinu
vísu í viðskiptum, frekar en öðru, en
hið nýja íslenska hagkerfi er þó mun
sterkara að mörgu leyti en áður hefur
þekkst. Áhættan í hagkerfinu er minni,
efnahagsreikningar bankanna skýrari
og starfsemin að nær öllu leyti einungis
bundin við Ísland, og staða sveitarfélaga
og ríkis hefur einnig farið batnandi.
Þessa stöðu er hægt að spyrna við
fótum.
Í erindi Ásgeirs - sem um skeið var
ritstjóri Vísbendingar - mátti meðal
annars sjá myndir, sem hér fylgja. Þær
sýna miklar breytingar á undirstöðum
hagkerfisins.